Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 4

Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 Farið með svarið í ferðalagið Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600 • Vegakort • Þéttbýliskort • Ítarlegur hálendiskafli • 24 síðna kortabók • Vegahandbókar App • Þjóðsögur • Heitar laugar o.fl. o.fl. GAGNLEG GJÖF App Snjalltækjaútgáfa (App) fylgir bókinni en í henni er að finna alla þá staði sem eru í bók- inni ásamt þúsundum þjónustuaðila um land allt. land allt. Ríkisstjórnin hafi lofað framlagi haustið 2016 til að bregðast við þessum tímabundnu erfiðleikum og tilgangurinn sé að vernda störf út um landið og koma í veg fyrir byggðaröskun. Ennfremur segir að sala á íslensku lambakjöti hafi geng- ið ágætlega innanlands og erlendis þar sem afurðirnar séu seldar sér- staklega sem íslenskar. Þar sem kjöt sé selt án uppruna- tengingar á heimsmarkaði, sé verð hins vegar mun sveiflukenndara. Það sé nokkuð algengt að þjóðir grípi til aðgerða ef hætta sé á hruni í einstaka greinum, gjaldþrotum af- urðastöðva, atvinnuleysi eða byggðaröskun vegna slíkra tíma- bundinna sveiflna keppnislögum.“ Hann segir að búast megi við að þeir sem óski framlags sendi inn umsókn og geri grein fyrir hvernig þeir hyggist ráðstafa því fé sem þeir fá. „Það verður gerð krafa um að menn standi í stykkinu og ár- angur náist.“ Í tilkynningu sem Þórarinn Ingi sendi frá sér í fyrradag segir að mik- il styrking á gengi íslensku krón- unnar hafi valdið þrengingum hjá öllum útflutningsgreinum á Íslandi. Þá hafi viðskiptadeila Vesturvelda og Rússlands leitt til verðlækkunar á mörkuðum fyrir ýmsar landbún- aðarafurðir í Evrópu. Segir einnig að íslenskur landbúnaður velti nær 70 milljörðum árlega og skapi 10 til 12 þúsund störf, beint og óbeint, um Sendibréf frá Jörgen Jörgensen eða Jörundi hundadagakonungi til Fritz, bróður hans, er til sölu á upp- boðsvefnum eBay. Lágmarks- boð 799,95 doll- arar, um 91 þús- und krónur, en tilboðsfrestur rennur út á þriðjudag. Bréfið var sent frá London til Kaupmanna- hafnar 7. mars 1824. Það er ó- frímerkt enda var fyrsta frímerkið gefið út í Bretlandi 1. maí 1840. Til Ástralíu ári síðar Jörundur var danskur æv- intýramaður, fæddur 1780. Á Vís- indavefnum kemur meðal annars fram að hann fór á sjó fjórtán ára gamall og sigldi um heiminn á breskum skipum, kom meðal ann- ars til Suður-Afríku og Ástralíu og tók þátt í að gera Tasmaníu að breskri nýlendu. Jörundur hundadagakonungur var við völd á Íslandi um nokkurra vikna skeið sumarið 1809. Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, hefur kynnt sér sögu Jörundar og sendi frá sér reisubókina Enginn ræður för um ferðir sínar á slóðir hans víðs vegar um heiminn fyrir nokkr- um árum. Hann bendir á að Jör- undur hafi átt erfitt á þessum árum og ári eftir að hann skrifaði bréfið hafi hann verið fluttur sem fangi til Tasmaníu í Ástralíu, þar sem hann lést í Hobart 1841. Seljandi bréfsins á eBay er skráður á Seltjarnarnesi. Á vefnum kemur fram að hann sé reyndur og háttskrifaður hjá eBay og hafi selt þar 14.818 muni síðan árið 2000. steinthor@mbl.is Bréf frá Jörundi til sölu á eBay  Lágmarksboð er um 91 þúsund kr. og tilboðsfrestur rennur út á þriðjudag Bréfið Framhlið bréfsins sem Jörundur sendi Fritz bróður sínum. Jörundur hunda- dagakonungur Í tilkynningu sem formaður Markaðsráðs kindakjöts sendi frá sér í fyrradag segir að íslenskir sauðfjár- bændur hafi orðið fyrir 600 milljóna tekjuskerðingu síð- astliðið haust vegna ástandsins á heimsmarkaði. Hafa beri í huga að bændur hafi lagt út fyrir nær öllum kostn- aði við framleiðsluna og innt af hendi nær alla þá vinnu sem til þurfi. Engin opinber verðlagning sé í sauðfjár- rækt á Íslandi. Kvótakerfi hafi verið afnumið 1996 og út- flutningsbætur aflagðar 1992. Þá kemur fram að fram- lag það sem fjáraukalög geri ráð fyrir tengist ekki nýjum búvörusamningi, enda hafi ákvarðanir um framleiðslu þessa hausts verið teknar áður en viðræður um samniginn hófust. Bændur tapa 600 milljónum LAMBAKJÖT Þórarinn Ingi Pétursson Jón Þórisson jonth@mbl.is Í nýframlögðu frumvarpi til fjár- aukalaga er lagt til að 100 milljónum króna verði varið til að markaðssetja lambakjöt erlendis. Fyrirkomulag þessa er þannig að Markaðsráði kindakjöts verður falin umsýsla og ráðstöfun fjárins til sláturleyfishafa. „Það er með þessu verið að reyna að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann,“ segir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Markaðs- ráðs kindakjöts. „Sláturleyfishafar munu nýta féð til að koma kjöti á þá markaði sem þeir hafa verið að vinna á. Það hafa verið þrengingar á þessum mörk- uðum og þetta fé verður nýtt til markaðs- og kynningarmála þar.“ Hann segir að helst sé um að ræða Spán og Rússland en sumir slátur- leyfishafar hafi leyfi til að selja kjöt til Rússlands þrátt fyrir viðskipta- bann og verði því haldið áfram. „Svo hafa menn verið að þreifa fyrir sér með markað á Norðurlöndum.“ Hann segir markaðsráðið munu hafa umsjón með útdeilingu þessa fjár. „Þetta fer þannig fram að við munum halda utan um þetta og reyna að stýra þessu, gæta þess til dæmis að mönnum verði ekki mis- munað. Það var talið heppilegast að þetta verkefni væri unnið á þessum vettvangi, Markaðsráði kindakjöts, sem hefur heimild samkeppnisyf- irvalda til þess. Það er því ekki hætta á að þetta starf fari gegn sam- Morgunblaðið/RAX Lambaskrokkar 10 til 12 þúsund störf um allt land eru beint eða óbeint tengd íslenskum landbúnaði. Lambakjötsala í lægð vegna viðskiptadeilu  100 milljónir í markaðsátak  Horft til Spánar og Rússlands Leikskólabörn á leikskólanum Barnabóli á Þórshöfn sýndu ljós- myndaranum föndurvinnu um leið og þau sögðu honum upp- numin frá heimsókn Hurðaskell- is og Stúfs. Börnin kættust við heimsóknina en fannst Grýla hafa alið þá illa upp: „Það voru voðaleg læti í þeim, Stúfur klifr- aði yfir girðinguna, sem er bannað, og Hurðaskellir skellti hliðinu svo oft að girðingin brotnaði! En við gáfum þeim samt kakó og piparkökur,“ sögðu börnin. Kát börn í Barnabóli á Þórshöfn Morgunblaðið/Líney

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.