Morgunblaðið - 17.12.2016, Síða 8

Morgunblaðið - 17.12.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 Yfir eitt þúsund manns hafa leitaðhælis hér á landi á þessu ári, sem er um það bil þreföldun frá fyrra ári. Flestir hælisleitendanna eru frá Makedóníu og Albaníu. Björn Bjarnason gerði þennan straum flóttamanna að um- ræðuefni í vikunni og benti á að enginn sem þekkti til mála í löndunum skildi hvað knýði fólk það- an til að koma hing- að.    Að baki hlyti aðvera ann- arlegur, hulinn til- gangur, sem sé vilj- inn til að dveljast hér á landi í nokkra mánuði á kostnað íslenskra skatt- greiðenda, að stunda svarta atvinnu og nýta sér heilbrigðisþjónustuna.    Og hann bendir á að frá Alþingikomi enginn þrýstingur til að stöðva þessa ásókn í skattfé almenn- ings. Aukafjárveitingar vegna þessa, sem námu rúmum milljarði króna í ár, séu samþykktar án umræðu en „menn velta fyrir sér hverri krónu þegar rætt er um fé til að gæta landa- mæranna á viðunandi hátt“.    Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerðiþessa sókn Makedóna og Albana einnig að umræðuefni og furðaði sig á stöðu í málefnum hælisleitenda hér á landi. Benti hún á að þessi tvö ríki væru ekki átakasvæði og það væri „fullkomlega óeðlilegt að verja tíma og fjármunum í að skoða hundruð hælisumsókna frá þessum löndum meðan þúsundir kvenna, karla og barna eru í neyð á átaka- svæðum heimsins“.    Er ekki tímabært að stjórn-málamenn fari að taka á þess- um málum í stað þess að ýta undir öfugþróunina? Björn Bjarnason Þurfa Makedónar og Albanar hæli? STAKSTEINAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Síminn okkar er 515 4500 og netfangið nyhofn@nyhofnfasteignir.is Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali Nýhöfn faste ignasa la ı Borgar túni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s Atvinnuhúsnæði til leigu Eyjarslóð 9 - 130 m2 Góð 130 fermetra efri hæð án milliveggja, auðvelt að stúka af herbergi, stofu, eldhús og vinnuaðstöðu. Salernisaðstaða er á staðnum. Rýmið er laust og afhendist við undirritun leigusamnings. Verð er kr. 260 þús. á mánuði. (ekki er innheimtur vsk.) Eyjarslóð 9 - 210 m2 Björt og opin 210 fm efri hæð án milliveggja með mikilli lofthæð, góðri aðkomu og miklu útsýni. Rýmið er laust og afhendist við undirritun leigusamnings. Búið er að stúka af eldhús- og salernisaðstöðu. Verð er kr. 480 þús. á mánuði, ekki er innheimtur vsk. Möguleiki á eitthvað lægri leigu fyrstu mánuðina á meðan leigutaki er að koma sér fyrir. Eyjarslóð 101 Reykjavík Veður víða um heim 16.12., kl. 18.00 Reykjavík 3 alskýjað Bolungarvík 2 súld Akureyri 4 skýjað Nuuk -12 skýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló -7 skýjað Kaupmannahöfn 1 alskýjað Stokkhólmur 1 alskýjað Helsinki -1 skýjað Lúxemborg 2 þoka Brussel 7 heiðskírt Dublin 8 skýjað Glasgow 8 rigning London 8 þoka París 9 heiðskírt Amsterdam 6 þoka Hamborg 0 alskýjað Berlín 0 heiðskírt Vín 0 heiðskírt Moskva -12 snjókoma Algarve 14 léttskýjað Madríd 8 þoka Barcelona 14 skúrir Mallorca 15 rigning Róm 10 heiðskírt Aþena 6 súld Winnipeg -20 skýjað Montreal -20 léttskýjað New York -7 skýjað Chicago -9 alskýjað Orlando 20 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:20 15:30 ÍSAFJÖRÐUR 12:06 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 11:51 14:34 DJÚPIVOGUR 10:58 14:50 Samningar um veiðar íslenskra skipa í Barentshafi árið 2017 náð- ust á fundi fiskveiðinefnda Íslands og Rússlands um samstarf á sviði sjávarútvegsmála í Reykjavík í vikunni. Alls koma 8.121 tonn af þorski í rússneskri lögsögu í hlut Íslands en þar af eru 5.075 tonn sem úthlutað er beint. Meðaflaheimild í ýsu nemur samtals 711 tonnum. Meðaflaheim- ild í öðrum tegundum er líkt og áð- ur 30% af aflaheimildum í þorski að frádregnum 711 tonnum af ýsu. Eftir er að semja um verð og með- aflaheimildir vegna 3.046 tonna sem íslenskar útgerðir hafa rétt til að kaupa af Rússum. Rússar lýstu jafnframt yfir vilja til að endur- skoða forsendur samningsins. Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um fram- kvæmd Smugusamningsins sem er frá 15. maí 1999. Þannig var fjallað um samstarf á sviði veiðieftirlits, hafrannsókna og jafnframt um veiðistjórnun sameiginlegra stofna á Norður-Atlantshafi, þ.m.t. út- hafskarfa og norsk-íslenska síld. Ísland lagði áherslu á mikilvægi þess að Rússar verði aðilar að samkomulagi um stjórnun úthafskarfaveiða á Reykjanes- hrygg. Veiðistjórnun karfastofn- anna á Reykjaneshrygg verður að byggja á bestu vísindaþekkingu og þeirri ráðgjöf Alþjóðahafrann- sóknaráðsins sem fyrir liggur, seg- ir í frétt frá atvinnuvega- ráðuneytinu. Rætt um frekara samstarf Einnig ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara iðulega saman. Að loknum fundinum lýstu báðir að- ilar yfir ánægju með viðræðurnar og mikilvægi þeirra í tvíhliða sam- skiptum ríkjanna. Samið við Rússa um fiskveiðar  Verði aðilar að stjórnun karfaveiða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.