Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Hverfisráð Grafarvogs hefur sam-
þykkt að óska eftir því við borgar-
yfirvöld að götuheitinu Hallsvegur
verði breytt í Fjölnisbraut.
Trausti Harðarson, áheyrnar-
fulltrúi Framsóknar og flugvallar-
vina, lagði fram eftirfarandi bókun á
fundi ráðsins þriðjudaginn 11. októ-
ber síðastliðinn:
„Hverfisráð Grafarvogs óskar eft-
ir við umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar að skipt verði
um nafn á götu í hverfinu, þ.e.
„Hallsvegur“ verði framvegis nefnd-
ur „Fjölnisbraut“. Vegur þessi teng-
ir saman stóran hluta Grafarvogs við
helstu íþrótta- og frístundamann-
virki hverfisins. Meðal annars liggur
vegur þessi meðfram keppnis-
íþróttavelli og sundlaug við Dalhús
og leggur leið að hinni glæsilegu
Egilshöll og einnig að frístunda-
svæðinu við Gufunes. Það er því
kjörið að vegur þessi hafi tengingu í
stolt Grafarvogs, þ.e. Ungmenna-
félagið Fjölni.“
Bókun Trausta var samþykkt með
fjórum atkvæðum, einn sat hjá.
Erindi Grafarvogsbúa var tekið
fyrir á síðasta fundi í umhverfis- og
skipulagsráði. Ráðið samþykkti að
vísa erindinu til meðferðar umhverf-
is- og skipulagssviðs, byggingarfull-
trúa. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Dalhús Fjölnir hefur aðsetur í Íþróttamiðstöð Grafarvogs.
Vilja að Hallsvegur
verði Fjölnisbraut
Ilmandi skötuhlaðborð
á Grand Hótel Reykjavík
Á Þorláksmessu kl. 12:00–14:00
6.200 kr. á mann
Heiðursgestur er Guðni Ágústsson sem fer með gamanmál og
spjallar um lífið og tilveruna eins og honum er einum lagið
Vegna mikillar aðsóknar er öruggast að bóka ilmríka gleðistund
á Þorláksmessu sem fyrst á grand.is/skata eða í síma 514 8000
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Á sama tíma og hugmyndin er að
þrefalda gistináttaskattinn er afar
mikilvægt að hafa í huga að um 30%
allra gistinátta eru óskráð og stór
hluti þeirra því undir yfirborðinu.
Taka þarf á þessari staðreynd af fullri
hörku, tryggja þarf fjármagn í skil-
virkara eftirlit og nýta heimildir til
sekta. Ef ekkert er að gert, mun
„svarta hagkerfið“ eflast sem aldrei
fyrr þar sem samkeppnisstaða
óskráðra og ólöglegra gististaða
eykst enn frekar.“
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í umsögn Samtaka ferðaþjón-
ustunnar (SAF) til efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis um ýmsar for-
sendur fjárlagafrumvarpsins. Í
umsögninni er að sögn Helgu Árna-
dóttur, framkvæmdastjóra SAF, ver-
ið að taka undir það sem fram kom í
nýlegri skýrslu Íslandsbanka, sem
gerði ítarlega greiningu á stöðunni.
„Við teljum þær tölur sem þar
komu fram nærri lagi, miðað við okk-
ar útreikninga. Það er auðvitað afar
mikilvægt að horft sé til þess atvinnu-
rekstrar sem er undir yfirborðinu og
að stjórnvöld leggi áherslu á að ná
þeim uppá yfirborðið og ná þar skött-
um og skyldum til jafns við aðra. Það
er sjálfsögð krafa okkar hjá SAF að
þeir sem eru í atvinnustarfsemi hvers
konar skili sínu til samfélagsins. Þá
má ekki gleyma öryggisþættinum í
þessu sambandi,“ segir Helga.
Samkvæmt skýrslu sem Háskólinn
á Bifröst gaf út fyrir um tveimur ár-
um voru um 84% þeirra sem voru með
íbúðagistingu ekki með tilskilin leyfi
og því ekki skráð. Helga telur nauð-
synlegt að draga úr þessu og tryggja
að allir séu uppi á yfirborðinu.
Tryggja þurfi ríkinu tekjur frá þess-
um aðilum rétt eins og þeim sem
starfa samkvæmt lögum og reglum.
Skökk staða
„Í tengslum við stjórnarmyndunar-
viðræður hefur verið dálítið ankanna-
legt að heyra hvernig menn vilja
tryggja frekari tekjur af ferðaþjón-
ustu í því óstöðuga rekstrarumhverfi
sem greinin býr við,“ segir Helga og á
þar við styrkingu krónunnar, miklar
launahækkanir og hátt vaxtastig.
Frekar þurfi að tryggja þá innviði
sem ferðaþjónustan þarf til að vaxa
og dafna til frekari framtíðar. Það
skili sér svo um muni í enn frekari
hagsæld þjóðfélagsins. Í því sam-
hengi sé nauðsynlegt að tryggja að
allir skili sköttum og skyldum af
rekstri sínum.
Helga segir vandann snúast fyrst
og fremst um íbúðagistingu, hótel og
gistiheimili þurfi að hafa allt uppi á
borðum og öll tilskilin leyfi.
„Þetta er mjög sérstök og skökk
staða sem ferðaþjónustufyrirtæki eru
sett í, að þurfa að eiga við þessa óheil-
brigðu og ósanngjörnu samkeppni,“
segir hún.
Vantar í gistináttatölur
Hagstofan birtir reglulega tölur
um fjölda gistinátta. Talið er að þar
vanti töluvert uppá til að sýna raun-
sanna mynd af ferðamannagistingu í
landinu. Hjörvar Pétursson, sem
starfar við fyrirtækjatölfræði hjá
Hagstofunni, segir stofnunina gera
sér vel grein fyrir þessu, enda megi
meira líta á þessa tölfræði sem vís-
bendingu um þróun gistingar. Mán-
aðarlegar tölur byggist eingöngu á
upplýsingum frá hótelum en árlega
safni Hagstofan saman tölum frá öðr-
um aðilum, t.d. úr Airbnb-gistingu, og
útfrá því sé gisting áætluð. Sú starf-
semi sé það fljótandi og stunduð af
mörgum að erfitt sé að kortleggja
hana mánaðarlega. Jafnan sé áætlað
á þá aðila sem ekki skili upplýsingum.
Um 30% gistinátta
í landinu eru óskráð
SAF óttast að svarta hagkerfið eflist, verði ekkert að gert
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ferðaþjónusta Talið er að stór
hluti gistingar sé ekki skráður.
Starfsmenn Neytendastofu munu á
næstunni fylgjast vel með auglýs-
ingum flugeldasala til þess að
tryggja eðlilega viðskiptahætti. Í
frétt á heimasíðu stofnunarinnar
segir að nokkuð hafi borið á því síð-
ustu árin að flugeldar séu auglýstir
á afsláttar- og útsöluverði þrátt fyr-
ir að hafa ekki verið seldir á til-
greindu venjulegu verði.
Vakin er athygli á því að sölu-
tímabil flugelda sé 28. desember til
6. janúar, en þeir gjarnan seldir
fyrr í desember á netinu en ekki af-
hentir strax. Svigrúm til markaðs-
setningar sé því þröngt. Örar verð-
breytingar með auglýsingum um
tilboð á stuttu sölutímabili geti því
verið villandi og því er Neytenda-
stofa á verði.
Eðlileg viðskipti gildi í flugeldasölu