Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á fundi borgarráðs Reykjavíkur á
fimmtudaginn lagði Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri fram tillögu
um að borgarstjórn veitti samþykki
sitt fyrir því að eignasjóður Reykja-
víkurborgar seldi Félagsbústöðum
hf. 10 fasteignir í borginni. Fé-
lagsbústaðir eru að fullu í eigu
borgarinnar.
Um er að ræða eftirtaldar eignir:
Álfaland 6, Árland 9, Ásvallagötu
14, Eikjuvog 9, Holtaveg 27, Laug-
arásveg 39, Miklubraut 18-20,
Njálsgötu 74, Seljahlíð og Snorra-
braut 52. Heildarverð eignanna er
metið á 1.982.129.000 krónur. Að
teknu tilliti til uppsafnaðrar við-
haldsþarfar greiða Félagsbústaðir
hf. krónur 1.703.429.000 fyrir eign-
irnar 10. Tillögu borgarstjóra var
vísað til borgarstjórnar.
Taka skrefið til fulls
Í greinargerð með tillögunni seg-
ir m.a. að allt frá því að Félagsbú-
staðir hf. voru stofnaðir hafi félagið
sérhæft sig í rekstri íbúðarhúsnæð-
is. Við stofnun félagsins hafi meg-
instofn íbúðareignar Reykjavíkur-
borgar færst til Félagsbústaða hf. Í
eignasafni eignasjóðs sátu þó eftir
fasteignir þar sem íbúðir voru hluti
af öðru húsnæði s.s. þjónustumið-
stöðvum. Á árinu 2005 voru þessar
eignir færðar til Félagsbústaða hf.
með örfáum undantekningum, t.d. í
þeim tilfellum þegar íbúar voru
ekki með fasta búsetu í þeim. „Nú
er verið að taka þetta skref til fulls
og flytja þær eignir sem ekki voru
fluttar þá, auk þeirra eigna sem
Reykjavikurborg eignaðist með til-
flutningi málaflokks fatlaðs fólks
frá ríki til sveitarfélaga. Eignir
þessar eru að stærstum hluta íbúð-
arhúsnæði og því er talið hagkvæmt
að Félagsbústaðir hf. eigi þær og
sjái um rekstur þeirra í samstarfi
við velferðarsvið Reykjavíkurborg-
ar,“ segir m.a. í greinargerðinni.
Í framhaldi af tillöguflutningi
borgarstjóra lögðu borgarráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar og flugvallarvina fram
eftirfarandi fyrirspurn: „Óskað er
eftir greinargerð um áhrif fyrir-
liggjandi hugmynda meirihluta
borgarstjórnar um sölu eigna frá
Reykjavíkurborg til Félagsbústaða
hf. Sérstaklega er óskað eftir því að
fram fari greining á því hvort og þá
hvaða breytingar umrædd eigna-
sala kunni að hafa í för með sér fyr-
ir viðkomandi íbúa en allar þessar
eignir eru nú nýttar af velferðar-
sviði Reykjavíkurborgar. Þá er ósk-
að eftir umsögn fjármálaskrifstofu
Reykjavíkurborgar um málið, m.a.
hvaða áhrif fyrirhugaðar breyting-
ar kunni að hafa á stöðu A- og B-
hluta Reykjavíkurborgar.“ Einnig
fluttu borgarráðsfulltrúar minni-
hlutans tillögu um að framlagðar
hugmyndir meirihluta borgar-
stjórnar um sölu á eignum til Fé-
lagsbústaða hf. færu til umfjöllunar
velferðarráðs Reykjavíkur sem og
notendaráða íbúa viðkomandi hús-
næðis, sem til stendur að selja, í
þeim tilvikum sem um þau er að
ræða.
Borgin veitir einfalda ábyrgð
Á sama fundi lagði borgarstjóri
fram tillögu þar sem lagt er til að
borgarráð samþykki að vísa til
borgarstjórnar tillögu Félagsbú-
staða hf. um að veitt verði veðheim-
ild í útsvarstekjum Reykjavíkur-
borgar til tryggingar á ábyrgð á
lántöku félagsins hjá Lánasjóði
sveitarfélaga ohf. Samkvæmt tillög-
unni mun Reykjavíkurborg veita
einfalda ábyrgð vegna lántöku Fé-
lagsbústaða hf. hjá Lánasjóði sveit-
arfélaga að nafnvirði 1.500 milljónir
króna en að útgreiðslufjárhæð
1.352 m.kr. til 39 ára, í samræmi við
samþykkta skilmála lánveitingar-
innar. Lánið sé tekið til að fjár-
magna kaup á félagslegu húsnæði
og til uppgreiðslu óhagstæðra lána
Félagsbústaða hf.
Selji Félagsbústöðum 10 eignir
Tillaga um að Félagsbústaðir hf. kaupi eignir af Reykjavíkurborg fyrir 1.703 milljónir Minnihlut-
inn óskar eftir greinargerð Félagsbústaðir taka 1.500 milljóna króna lán með veði í útsvarstekjum
Seljahlíð í Breiðholti Þjónustuíbúðirnar í húsinu eru 49 talsins. Fé-
lagsbústaðir munu eignast Seljahlíð ef áformin ná fram að ganga.
„Það er verið
að útbúa
minnisblað
um áhrif
þessarar
eignasölu að
okkar ósk
enda fannst
okkur ýmsum
spurningum
ósvarað,“
segir Kjartan Magnússon borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan segir að það veki at-
hygli að verið sé að keyra þetta
mál áfram í flýti og lögð sé
áhersla á að klára það fyrir ára-
mót. Um sé að ræða háar upp-
hæðir sem muni hafa áhrif á
borgarsjóð og samstæðuna.
„Mér sýnist af þeim gögnum
sem ég hef, sem eru ekki tæm-
andi, að salan muni bæta stöðu
borgarssjóðs og þá ekki síst
sjóðsstreymishluta reiknings-
ins. „Félagsbústaðir kaupa
eignirnar og taka lán fyrir kaup-
unum. Það þarf að innheimta
leigu og gera ráð fyrir vaxta-
kostnaði,“ segir Kjartan.
Spurningum
er ósvarað
MINNIHLUTINN
Kjartan
Magnússon
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend
™
Enn snjallara heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004