Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 16

Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það eru engar skyndilausnir til í þessum efnum,“ segir Illugi Gunn- arsson, starfandi menntamálaráð- herra, um hinar nýlegu niðurstöður PISA-könnunar- innar um læsi grunnskólanema. Hann segir um- ræðuna í kjölfarið hafa verið á nokkrum villigöt- um. Margir hafi verið tilbúnir til þess að tjá sig um niðurstöðurnar, án þess að séð verði að viðkomandi hafi sett sig mjög djúpt inn í málin. Það eigi sérstaklega við um umræðu um viðbrögð stjórn- valda, þar sem jafnvel sé látið eins og nú fyrst sé verið að bregðast við vand- anum, þegar staðreyndin sé sú að þegar árið 2013 hafi langtímaverkefni verið sett af stað, með aðkomu rík- isins, sveitarfélaga, kennara og for- eldrafélaga um allt land. Það muni hins vegar taka tíma áður en það beri ávöxt. „Það er gjarnt í okkur Íslend- ingum að rjúka upp, jafnvel með mikl- ar fullyrðingar, svo er málið frá þegar mesti æsingurinn er um garð geng- inn. En breytingar í menntakerfinu og umræða um menntamál getur ekki farið fram með þessum hætti. Hún þarf að vera dýpri og yfirvegaðri. Við þurfum að ræða hluti eins og hvaða kennsluaðferðir eigi að nota, ræða dýpra um námskrár, innleiðingu þeirra, og hvernig staðið er að sí- menntun kennara. Allt eru þetta mik- ilvægir þættir sem er ekki hægt að ræða í upphlaupsstíl. . Munum sjá betri niðurstöður Illugi nefnir að þegar árið 2013 hafi verið ráðist í útgáfu Hvítbókar, sem birt var 17. júní 2014, þar sem skýr markmið um aukið læsi voru sett fram. Í kjölfarið hafi færustu sérfræðingar innanlands sem utan verið fengnir, bæði til þess að útfæra áætlun um hvernig þeim mark- miðum yrði náð og til þess að veita þeim skólasamfélögum og kennurum stuðning sem eftir því kölluðu. Í framhaldinu hafi Illugi fengið stuðn- ing þingsins til þess að setja 150 milljónir á ári næstu fimm árin til verkefnisins, auk þess sem samið var við öll sveitarfélög og foreldrafélög landsins um að gerðar yrðu áætlanir á hverjum stað um hvernig við gerð- um breytingar á menntakerfinu til langs tíma, þannig að tryggt væri að börnin okkar gætu lesið sér til gagns. „Undirliggjandi í öllu þessu ferli er það að við ákváðum að gera breyt- ingar, náðum að setja fjármagn í þetta og tryggja samvinnu ríkis, sveitarfélaga og foreldra“ segir Ill- ugi. „Við munum sjá betri árangur árið 2018 og aftur 2021 þegar PISA- könnunin verður lögð fyrir þá krakka sem hafa farið í gegnum þessa nýju nálgun. Við megum ekki gleyma því að krakkarnir sem tóku Písa-prófið árið 2015 komu inn í grunnskólann árið 2005 og nið- urstaðan núna endurspeglar námið þeirra síðustu tíu árin. Breytingar taka því tíma og krefjast þolinmæði.“ Illugi nefnir sem dæmi að nýlega hafi verið kynnt svokölluð lesfimi- viðmið, en í lesfimi felst það hversu auðvelt fólk eigi með að lesa. Þau við- mið munu hjálpa kennurum að meta hversu vel krökkunum miðar við að ná tökum á lestrinum, en rannsóknir sýna að samhengi er á milli lesfimi og lesskilnings. „Hugsunin er þessi, að hvert og eitt skólasamfélag þarf að finna þær leiðir sem henta best á hverjum stað þegar kemur að vali á þeim aðferðum sem nota á til að kenna læsi. Við leggjum til prófin, til þess að skólarnir geti séð hvernig þeim miðar, þannig að þá séu til mælikvarðar, ekki til þess að raða nemendum eða skólum í röð eftir getu, heldur til þess að skólarnir geti fylgst með því hvort þeir eru að ná árangri, svo að það komi ekki alltaf sjokk á þriggja ára fresti.“ Megum ekki venjast þessu Í Hvítbókinni 2014 voru þau mark- mið sett að hlutfall þeirra sem næðu grunnviðmiðum í læsi færi úr 79%, líkt og það var árið 2012 og upp í 90% árið 2018. Blaðamaður spyr hvort þetta séu ekki nokkuð brött viðmið. „Jú, þetta er nokkuð bratt, en þú getur snúið spurningunni við og spurt: Er það ásættanlegt að 10% barna við lok grunnskóla geti ekki lesið sér til gagns? Það er hin hliðin, og ég tel að samfélagið eigi ekki að sætta sig við það að 10% barna geti það ekki. Það er nauðsynlegt að setja sér há markmið, og ef þau nást ekki 2018, að stefna þá að því að ná þeim árið eftir.“ Illugi segir að við sem þjóð meg- um ekki venjast þessu ástandi. „Ég hef þá skoðun, og legg mikla áherslu á, að öll börn eigi að hafa sömu tæki- færi í lífinu við lok grunnskóla óháð stöðu og efnahag foreldra. Síðan er ótalmargt sem ræður því hvernig hver og einn vinnur úr sínum tæki- færum. En barn sem ekki hefur lært að lesa sér til gagns hefur ekki sömu tækifæri og aðrir krakkar. Það verð- ur erfitt fyrir þessa krakka að stunda nám að grunnskóla loknum, og þar með lokast feikimörg tæki- færi sem samfélagið býður upp á og það er óásættanlegt. Síðan skiptir það meginmáli að Písa er ekki mark- mið í sjálfu sér, markmiðið er að krakkarnir okkar fái góða menntun sem nýtist þeim þegar út í lífið er komið. Písa mælir vel kunnáttu barnana á ákveðnum mikilvægum sviðum, en um leið megum við ekki gleyma því að Písa mælir einungis hluta skólastarfsins, Písa mælir ekki sköpunargáfu, þrautseigju, fé- lagsgreind, menningarlæsi o.s.frv. Þess vegna eigum við að taka Písa al- varlega, bregðast við af festu og ákveðni, en muna um leiða að það er ýmislegt fleira sem er mikilvægt í menntun barna heldur en það sem Písa mælir. “ Langtímahugsun skilar sér Þá telur Illugi vert að nefna það að inn á milli hafi verið ljósir punkt- ar. Hann nefnir sem dæmi sveit- arfélögin Árborg, Reykjanesbæ og Hafnarfjörð, sem hafi notast við innbyrðis ólíkar aðferðir, en öll náð að bæta sig milli ára. Illugi segir fordæmið úr þessum sveitarfélögum geta nýst við framhaldið. „Aðal- atriðið er að við ákváðum að ráðast í þetta allt saman. Nú er vinnan kom- in á fullt skrið, og við og börnin okk- ar munum uppskera árangur af því.“ Allir verða að hafa sömu tækifæri  Illugi Gunnarsson segir umræðuna í kjölfar PISA-könnunarinnar hafa verið á nokkrum villigötum  Langtímaverkefni að snúa þróuninni við  Munum sjá breytingar strax árið 2018 og aftur 2021 Morgunblaðið/Eggert Læsi Þjóðarátak um læsi var undirritað að Gljúfrasteini sumarið 2015, en gert var samkomulag við öll sveitarfélög landsins um þau markmið sem nást eiga á næstu árum. Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, segir að árangur verkefnisins muni sjást þegar í næstu könnunum sem birtast árin 2018 og 2021. Illugi Gunnarsson Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is S ö n g v e i s l a I c e l a n d i c a n d c l a s s i c a l s o n g s a n d a r i a s 4CD og and SINGERS SÖNGVARAR Ólafur Vignir Albertssonpiano 43 Sön g v e i s l a á fjórum hljómdiskum Til sölu hjá: 12 TÓNUM, Skólavörðustíg Smekkleysu, Laugavegi Pennanum-Eymundsson og á netinu: panta@profilm.is Ólafur Vignir Albertsson leikur íslensk lög og erlend, svo og aríur úr óperummeð 43 af helstu söngvurum okkar áranna 1964-2009.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.