Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Lagt er til að stofnaður verði vett-
vangur með óskráð bréf vaxtarfyrir-
tækja í samstarfi við hagsmunaaðila,
eins og Samtök iðnaðarins og Kaup-
höllina, í skýrslu um fjármögnunar-
umhverfi sprotafyrirtækja sem end-
urskoðunarfyrirtækið KPMG vann
að beiðni atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins. Tillagan er ein af
sex sem miða að því að fjölga val-
kostum sprotafyrirtækja á fjár-
mögnunarmöguleikum.
„Við settum fram tillögur um úr-
bætur eftir að hafa talað við aðila
eins og samtök sprotafyrirtækja,
Kauphöllina og fleiri, þar sem við
spurðum að því hvað þessum aðilum
fyndist vanta í sprotasamfélagið,“
segir Stefán Þór Helgason, sérfræð-
ingur hjá KPMG, í samtali við Morg-
unblaðið.
Forstofa hlutabréfamarkaðarins
Hægt væri að liðka fyrir fjár-
mögnun sprotafyrirtækja með því að
skapa vettvang fyrir viðskipti með
bréf sem ekki eru skráð á skipulegan
markað, að því að fram kemur í
skýrslunni. Þó þyrfti að setja skil-
yrði fyrir þátttöku í slíkum vettvangi
þar sem gengið væri úr skugga um
að þær upplýsingar sem fyrirtækin
leggja fram væru réttar.
Í skýrslunni er meðal annars lagt
til að ríkið styðji hópfjármögnun, til
dæmis með skattafrádrætti eða
beinum framlögum, og að farið verði
í kynningarátak þar sem kostir og
gallar þess að fjárfesta í sprota-
fyrirtækjum væru kynntir
almenningi.
Öflugt net á fyrstu stigum
Staðan á fyrstu stigum fjármögn-
unar er almennt nokkuð góð, að því
að fram kemur í skýrslunni, og undir
það tekur Almar Guðmundsson,
framkvæmdarstjóri Samtaka iðnað-
arins. „Ríkið hefur verið að auka
mjög myndarlega stuðning sinn við
Tækniþróunarsjóð og svo eru fleiri
sjóðir sem snúa að háskólasamfé-
laginu sem hafa verið að stækka.
Þetta er mjög jákvætt þar sem meira
fjármagn er að elta góðar hugmynd-
ir í samfélaginu og svo er umgjörðin
utan um sjóðina fagleg og öguð,“
segir Almar.
Hlutverk NSA að breytast
Það hefur verið heilmikil vinna í
gangi í ráðuneytinu varðandi stefnu
Nýsköpunarsjóðs síðastliðin tvö ár
að, sögn Almars. „Lögin um NSA
voru sett 1998 og það er þörf að upp-
færa þau en á fyrri hluta næsta árs
þá verðum við komin með skýrar lín-
ur varðandi umgjörð sjóðsins og
væntanlega í góðu samstarfi við
þann ráðherra sem tekur við mála-
flokknum,“ segir Almar. „Það er
mikilvægt að NSA hafi eitthvert
hlutverk og geti gripið inn í ef um-
hverfið er erfitt. Í dag virðist staðan
vera sú að markaðurinn sé að leysa
þetta vandamál nokkuð vel og þá er
kannski betra að aðrir aðilar séu að
fjárfesta beint í fyrirtækjunum,“
segir Almar að lokum.
Vilja bæta umhverfi sprota
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sprotar Efla þyrfti kynningu á sprotasamfélaginu á meðal almennings.
Sprotafyrirtæki kalla eftir fleiri möguleikum á fjármögnun Auka þarf þekk-
ingu almennings á sprotafyrirtækjum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu KPMG
starfsfólks fjármálafyrirtækja, og einnig hinn svokallaða
sérstaka fjársýsluskatt, þ.e. 6% á tekjur fjármálafyr-
irtækja umfram 1 milljarð króna, sem sé í raun aukaþrep
tekjuskatts.
Loks gagnrýna samtökin gjald til Umboðsmanns
skuldara, en það mun nema rúmum milljarði á árinu
2017. Bent er á að í rekstraráætlun stofnunarinnar fyrir
næsta ár hafi verið gert ráð fyrir að gjaldið þyrfti að
nema 843 milljónum króna. Ekki virðist gerð grein fyrir
mismuninum á áætluninni og endanlegri upphæð gjalds-
ins í fjárlagafrumvarpinu. ses@mbl.is
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) gagnrýna fyrirhugaða
hækkun eftirlitsgjalds, en samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs mun gjaldið hækka í tæpa 2,2 milljarða króna
á árinu 2017 úr röskum 1,7 milljörðum í ár. Fyrirtæki á
fjármálamarkaði standa undir gjaldinu. Gagnrýnin kem-
ur fram í umsögn SFF við nýtt fjárlagafrumvarp sem nú
er í meðförum Alþingis og er hún undirrituð af nýjum
framkvæmdastjóra samtakanna, Katrínu Júlíusdóttur.
Benda samtökin á að eftirlitsgjald á vátryggingafélög
eigi að hækka um 40% milli ára. Í umsögninni er vísað til
álits samráðsnefndar eftirlitsskyldra aðila þar sem bent
er á að af 117 starfsmönnum FME starfi 54 þeirra á
stoðsviðum stofnunarinnar. Telur nefndin að meta þurfi
æskilegt umfang FME og að gera þurfi ráðstafanir til
hagræðingar.
Þá gagnrýna SFF einnig að sérstakur skattur á fjár-
málafyrirtæki, sem hækkaður var tímabundið árið 2013
úr 0,041% í 0,376% í tengslum við leiðréttingu húsnæð-
islána, helst óbreyttur milli ára. Ennfremur gagnrýna
þau fjársýsluskattinn, sem er sértækur skattur á laun
Samtök fjármálafyrirtækja
gagnrýna aukna gjaldtöku
Segja Fjármálaeftirlitið þurfa að gæta aðhalds í rekstri
Fjárlög Fjármálafyrirtæki greiði 2,2 milljarða til FME.
● Samskip og austurríska járnbrautar-
félagið Rail Cargo Group hafa samið um
að hefja beina lestarflutninga milli Rúm-
eníu og Svíþjóðar um áramótin. Félögin
munu tengja flutningsnet sín saman í
gegnum lestarflutningamiðstöð Sam-
skipa í Duisburg í Þýskalandi svo úr verð-
ur fyrsta óslitna lestartengingin milli
Austur-Evrópu og Skandinavíu.
Samskip með lestar-
flutninga til A-Evrópu
NÚ
Á
ENN
BET
RAV
ERÐ
I
TRYGGÐU ÞÉR ATVINNUBÍL FYRIR ÁRAMÓT!
Kynntu þér Opel fjölskylduna á benni.is | opel.is
OPEL Á ÍSLANDIReykjavíkTangarhöfða 8
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is - Opið til 22:00 til jóla
Laugardag 10-22, sunnudag 12-22, mánudaga - föstudaga 11-22
Agnes-ljós. 6,5 cm. Glært. 2.795 kr. Nú 1.956 kr. Hjarta eða jólatré.
SPARAÐU
30%
AFÖLLUM
JÓLALJÓSUMOG
JÓLAVÖRUM
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
17. desember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.28 113.82 113.55
Sterlingspund 141.96 142.66 142.31
Kanadadalur 85.02 85.52 85.27
Dönsk króna 15.948 16.042 15.995
Norsk króna 13.2 13.278 13.239
Sænsk króna 12.164 12.236 12.2
Svissn. franki 110.32 110.94 110.63
Japanskt jen 0.9562 0.9618 0.959
SDR 151.99 152.89 152.44
Evra 118.6 119.26 118.93
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.6636
Hrávöruverð
Gull 1134.85 ($/únsa)
Ál 1735.0 ($/tonn) LME
Hráolía 53.76 ($/fatið) Brent