Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 34

Morgunblaðið - 17.12.2016, Side 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 Framfarasaga ís- lensks samfélags hefur á síðustu 100 árum ver- ið samofin sögu Fram- sóknarflokksins. Í 62 ár af þessum 100 hefur flokkurinn setið í rík- isstjórn og haft mikil áhrif á þróun sam- félagsins, allt frá því að Ísland var eitt fátæk- asta ríki Evrópu þar til nú að Ísland er meðal þeirra sem standa best. Árangur þjóðarinnar byggist á mörgum þáttum, en ekki síst þeirri framsýni að telja hags- munum sínum betur borgið sem full- valda þjóð sem réð sjálf sínum mál- um, í góðu samstarfi við alþjóðasamfélagið. Hagsæld lítilla op- inna hagkerfa byggist á skynsamri nýtingu auðlinda og góðu aðgengi fyrir vörur- og þjónustu á erlendum mörkum. Íslendingum hefur tekist að samhæfa þetta tvennt, sem hefur skilað sjálfbærum greiðslujöfnuði þjóðarbúsins og skapað almenna vel- sæld. Framsóknarflokkurinn stofnaður Framsóknarflokkurinn var stofn- aður 16. desember 1916 og var í upp- hafi fyrst og fremst þingflokkur. Einn af forvígismönnum hans, Jónas Jónsson frá Hriflu í Suður-Þingeyj- arsýslu, vildi á þeim tíma umbreyta íslenskum stjórnmálum sem höfðu að mestu snúist um sjálfstæðisbaráttuna og samband Íslands við Danmörku. Hann sá fyrir sér, að fólk skipaði sér í flokk eftir stétt líkt og þróunin hafði verið í öðrum þingræðislöndum. Að atvinnurekendur skyldu stofna til íhaldsflokks en alþýða manna skipaði sér í tvo flokka; annars vegar flokk sjómanna og verkamanna í þéttbýl- inu (Alþýðuflokk) og hins vegar flokk alþýðu í sveitum landsins (Framsókn- arflokk). Flokkarnir tveir ættu svo að vinna saman að hagsmunum almenn- ings. Það fór svo, að báðir þessir flokkar auk Alþýðusambands voru stofnaðir þetta ár og vísir að fjöl- flokkakerfi á Íslandi varð til. Fyrri heimsstyrjöldin og fullveldið Framsóknarflokkurinn var aðeins nokkurra vikna gamall þegar fulltrúi hans tók fyrst sæti í ríkisstjórn, því 4. janúar 1917 var Sigurður Jónsson frá Ystafelli skipaður í embætti atvinnu- og samgönguráðherra. Fyrri heims- styrjöldin var í algleymingi og hafði mikil áhrif á samgöngur til og frá landinu. Landsverslun var stofnuð og tók yfir nánast alla utanríkisverslun landsins. Að stríði loknu dró úr starf- seminni og á grunni Landsverslunar spruttu upp kaupfélög víða um land, ásamt því að samvinnuhreyfingin efldist mikið. Framsóknarflokkurinn lagði ríka áherslu á milliríkjaverslun til að tryggja nægt framboð af helstu nauðsynjum. Þriðji áratugurinn og kreppan mikla Á þriðja áratug 20. aldar var Framsóknarflokkurinn í óformlegu kosningabandalagi við Alþýðuflokk- inn. Í sumum tilvikum buðu þeir sig ekki fram hvor gegn öðrum og störf- uðu þannig í anda þeirrar hug- myndafræði Jónasar frá Hriflu að um systurflokka væri að ræða. Árið 1927 urðu mikil tímamót í sögu Framsókn- arflokksins en þá fékk hann í kosn- ingum 19 þingmenn af 42. Alþýðu- flokkurinn fékk 5 þingmenn og mynduðu flokkarnir meirihluta- stjórn. Allir ráðherrar stjórnarinnar komu úr hópi framsóknarmanna og úr varð hrein framsóknarstjórn undir forystu Tryggva Þórhallssonar. Mik- ill efnahagslegur uppgangur ein- kenndi fyrstu ár stjórnarinnar og ráðist var í ýmsar samfélagslegar úr- bætur. Má þar nefna stofnun Síld- arbræðslu ríkisins á Siglufirði, Skipa- útgerð ríkisins, stofnun Ríkisútvarps, eflingu Landhelgisgæslunnar og haf- in var bygging Þjóðleikhúss. Alþýðu- flokkurinn stóð fyrir því að sett voru lög um verkamannabústaði og að kosningaaldur væri færður úr 25 árum í 21. Gerð var stórsókn í skólamálum með stofn- un gagnfræðaskóla í þéttbýli og héraðsskóla í strjálbýli. Samvinna Fram- sóknarflokks og Al- þýðuflokks hélt áfram eftir alþingiskosning- arnar 1934. Stjórn hinna vinnandi stétta var mynduð og var meginmarkmiðið að bæta hag vinnandi fólks. Ýmsu var komið til leiðar, til dæmis lögum um fiski- málanefnd, lögum um vinnumiðlun og grunnur var lagður að rannsókn- arstofnunum atvinnuveganna. Iðn- aður var stórefldur og í fyrsta sinn var heildstæðu almannatrygg- ingakerfi komið á. Seinni heimsstyrjöldin og sjálfstætt Ísland Árið 1939 var þjóðstjórn mynduð á Íslandi undir forystu Hermanns Jón- assonar, en auk Framsóknarflokks stóðu að henni Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur. Meginmarkmiðið var að gera rekstrarskilyrði sjávarútvegs sjálfbær, en auk þess fékk stjórnin ærin verkefni að glíma við þar sem seinni heimsstyrjöldin skall á og land- ið svo hernumið af Bretum stuttu síð- ar. Efnahagsástandið breyttist hins vegar hratt til hins betra, þar sem út- gerðin efldist og næga atvinnu var að fá, meðal annars vegna hernámsins. Þjóðstjórnin lifði fram að áramótum 1942 en þá tók við stjórn Ólafs Thors, svokölluð Ólafía. Hún starfaði í tvö ár eða að fram að utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar. Nokkur óróleiki einkenndi þessi ár, sem kom þó ekki í veg fyrir að langþráðum áfanga um sjálfstæði þjóðarinnar yrði náð 17. júní 1944. Kalt stríð og landhelgin stækkuð Framsóknarflokkurinn var utan ríkisstjórnar þar til Stefaníustjórnin var mynduð árið 1947. Að henni stóðu Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Talsverðar áskoranir biðu þessarar stjórnar, ekki síst vegna skorts á gjaldeyri eft- ir miklar fjárfestingar sem fyrri stjórn (Nýsköpunarstjórnin) hafði efnt til. Um þetta leyti var Íslandi boðin stofnaðild að Atlantshafs- bandalaginu, sem var samþykkt á Al- þingi 30. mars 1949. Innan Fram- sóknarflokksins voru mjög skiptar skoðanir á aðildinni og sat til að mynda Hermann Jónasson hjá í at- kvæðagreiðslunni í þinginu. Á árunum 1950-1956 sátu tvær samsteypustjórnir Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks. Nokk- ur ólga ríkti í upphafi þessa tímabilis, þar sem erfiðleikar í efnahagsmálum voru nokkrir og koma varnaliðsins 1951 olli deilum. Hermann Jónasson hvatti til samstarfs við Alþýðuflokk- inn í áramótagrein 1954, sem varð svo vísir að kosningabandalagi þessara flokka 1956. Í kjölfarið var mynduð vinstri stjórn undir forystu Her- manns. Hún þótti oft ósamstíga, til dæmis í utanríkismálum þar sem hún vildi vinna að brotthvarfi varnarliðs- ins án þess að koma því til leiðar. Stærsta mál stjórnarinnar var út- færsla landhelginnar í 12 mílur árið 1958. Eftir að hafa setið utan rík- isstjórnar í 12 ár myndaði Framsókn- arflokkur ríkisstjórn með Alþýðu- bandalaginu og Samtökum frjálslyndra og vinstrimanna undir forystu Ólafs Jóhannessonar 1971. Aftur var stækkun landhelginnar stærsta málið, því ári síðar ákvað stjórnin einhliða að stækka landhelg- ina úr 12 mílum í 50. Hún var svo enn færð út árið 1975 og þá í 200 mílur. Útfærsla íslensku efnahagslögsög- unnar var mikið hagsmunamál fyrir þjóðina og í öllum áföngum hennar sat Framsóknarflokkurinn í rík- isstjórn. Oft reyndi mikið á, því út- færslan olli hörðum deilum milli Ís- lands og Bretlands og í kjölfar átaka á miðunum ákvað Alþingi að slíta stjórnmálasambandi við Bretland. Sættir náðust hins vegar í málinu sumarið 1976, þegar ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks var við völd undir forsæti Geirs Hall- grímssonar. Verðbólga, þjóðarsátt og staðgreiðslukerfi skatta Framsóknarflokkurinn sat sam- fellt í ríkisstjórn frá 1980-1991. Fyrst undir forystu Gunnars Thoroddsen og svo undir forystu Steingríms Her- mannssonar. Mikil ólga ríkti í efna- hagsmálum og verðbólga var mikil. Ráðist var í kerfisbreytingar á stjórn fiskveiða og kvótakerfi sett á lagg- irnar til að koma í veg fyrir ofveiði. Meðal annarra breytinga má nefna staðgreiðslu skatta og reglur um verðbréfaþing en mikilvægust var þjóðarsáttin svokallaða, milli stjórn- valda og aðila vinnumarkaðarins, sem leiddi til þess að böndum var komið á verðbólguna og grunnur lagður að auknum efnahagsstöðugleika. Efnahagsuppgangur og kerfisbreytingar Árið 1995 hófst 12 ára ríkisstjórn- arsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, lengst af undir for- sæti Davíðs Oddssonar en síðar Hall- dórs Ásgrímssonar og að lokum Geirs Haarde. Í fyrstu var megináherslan lögð á atvinnuuppbyggingu, enda hafði atvinnuleysi í upphafi 10. ára- tugarins verið mikið og því var brýnt að fá hjól atvinnulífsins til að snúast á ný. Gerðir voru tímamótasamningar um erlenda fjárfestingu og orkuauð- lindir nýttar til að skapa störf. At- vinnustig hækkaði, landsframleiðsla jókst og skuldir hins opinbera minnk- uðu mikið. Ráðist var í kerfisbreyt- ingar á húsnæðis- og fjármálamark- aði, ríkisfyrirtæki voru seld og lífskjör almennings bötnuðu. Að und- anskildu tímabili kringum aldamótin einkenndist stjórnartíðin öll af mikl- um hagvexti og auknum kaupmætti almennings. Samskipti við aðrar þjóðir tóku nokkrum breytingum á þessu tíma- bili, enda breyttist heimsmyndin mik- ið með lokum kalda stríðsins. Halldór Ásgrímsson stýrði för sem utanrík- isráðherra í 9 ár og lagði m.a. ríka áherslu á málefni norðurslóða. Undir hans forystu voru tengsl Íslands og Evrópu efld á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem áhersla var lögð á skilvirka hags- munagæslu gagnvart Evrópuríkjum og opnun nýrra markaða. Þá voru ör- yggis- og varnarmál fyrirferðarmikil, ekki síst hin alþjóðlega barátta gegn hryðjuverkaógninni í kjölfar hryðju- verkaárásanna á Bandaríkin 11. sept- ember 2001. Þá varð eðlisbreyting á varnarsamstarfi Íslands og Banda- ríkjanna með brotthvarfi varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli árið 2006. Efnahagsáfallið, Icesave, skuldir heimilanna og baráttan við kröfuhafana Framsóknarflokkurinn var í stjórnarandstöðu frá árinu 2007 til 2013. Eftir efnahagsáfallið 2008 beitti flokkurinn sér mjög fyrir endurreisn efnahagslífsins og lagði sérstaka áherslu á hag heimilanna. Hann tók skýra afstöðu gegn Icesave- samningunum svokölluðu og taldi ekki efnislegar forsendur fyrir þeim. Þar gekk Framsóknarflokkurinn í takt við þjóðina, sem hafnaði í tvígang samningum sem stjórnvöld gerðu um að ábyrgjast greiðslur vegna Icesave- málsins. Baráttan varði í nokkur ár en að lokum vannst fullnaðarsigur þegar EFTA-dómstóllinn dæmdi Ís- landi í vil og tók undir sjónarmið Framsóknarflokksins. Þegar samsteypustjórn Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við stjórnartaumunum vorið 2013 var endurreisn heimilanna meðal helstu forgangsmála. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór fyrir stjórninni, sem lækkaði skuldir heimilanna með sérstökum aðgerðum sem lögðu grunninn að sterkari stöðu þeirra. Leiðréttingin var flókin í fram- kvæmd, en heppnaðist vel. Hún var bæði nauðsynleg og sanngjörn og ár- angurinn var mikill. Nú er svo komið, að skuldir heimilanna eru lægri en þær hafa verið í aldarfjórðung. Eftir efnahagsáfallið 2008 var efna- hagsleg staða landsins um margt óljós og raunar tók nokkur ár að skilja stöðuna til fulls. Smám saman kom í ljós að uppgjör föllnu bankanna gæti valdið miklu ójafnvægi, sem myndi bitna harkalega á almenningi ef ekki væri rétt haldið á málum. Rík- isstjórn Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks tók þetta flókna mál föstum tökum og tryggði með stuðn- ingi Alþingis farsæla lausn, sem varð til þess að kröfuhafar bankanna sam- þykktu að afhenda ríkinu umtals- verðar eignir svo stöðugleiki íslensks efnhagslífs væri tryggður. Fullyrða má að vel hafi tekist til, því skuldir ríkissjóðs lækka hratt og í fyrsta sinn síðan mælingar hófust eru eignir Ís- lendinga erlendis meiri en skuldirnar. Það er góður árangur, sem skilar aukinni hagsæld til allra. Framsóknarflokkurinn er einn af burðarásunum í íslenskum stjórn- málum. Hann hefur verið samferða þjóðinni í 100 ár og á enn brýnt er- indi, nú undir styrkri forystu Sig- urðar Inga Jóhannssonar forsætis- ráðherra. Hann hefur sýnt í verki að hann getur unnið með öllum flokkum, sætt ólík sjónarmið og stuðlað að betri árangri fyrir alla.  Byggt m.a. á grein Guðjóns Friðrikssonar í Tímanum 16. desember 2016. Samferða þjóðinni í 100 ár Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Framsóknarflokk- urinn er einn af burðarásunum í íslensk- um stjórnmálum. Hann hefur verið samferða þjóðinni í 100 ár og á enn brýnt erindi. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er utanríkisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Ljósmyndir/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Forsætisráðherra og fréttamenn Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra og fréttamenn á tröppum Stjórnarráðsins, m.a. Helgi E. Helgason og Helgi Pétursson. 1924 Tryggvi Þórhallsson guð- fræðingur, kennari, alþingismaður og ráðherra. Maí 1983 Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tekur við stjórnartaum- unum. F.v. eru Halldór Ásgrímsson, Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti, Guðmundur Bene- diktsson ríkisráðsritari, Geir Hallgrímsson, Matthías Á Mathiesen (sést ekki), Matthías Bjarnason, Ragnhildur Helgadóttir (sést ekki) og Sverrir Her- mannsson. Á hægri hönd Halldórs Ásgrímssonar situr Albert Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.