Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 ✝ GuðmundurÞorgrímsson fæddist að Garði í Núpasveit 23. maí 1926. Hann lést 24. október 2016 á Sól- teigi Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar Guð- mundar voru Guð- rún Guðmunds- dóttir, f. 16. febr- úar 1905, d. 24. desember 1989, og Þorgrímur Ármannsson, f. 13. apríl 1898, d. 30. janúar 1978. Guðmundur var elstur í 7 systkina hópi en þau eru: Hálfdán, f. 24. desem- mundsson. Börn þeirra eru: Jón Óskar, Guðmundur Úlfar, Sonja og Sigurður. 2) Valgeir, f. 21. júní 1948, maki Rósa Emelía Sigurjónsdóttir. Börn þeirra eru: Þórhalla og Guðrún Krist- ín. 3) Guðrún, f. 7. mars 1955, maki Viðar Hafsteinn Eiríks- son. Börn þeirra eru: Linda og Guðmundur Hafsteinn. Barnabarnabörn Guðmundar eru 16 og barnabarnabarna- börn eru fimm. Guðmundur starfaði lengst af sem verkstjóri á Húsavík, hjá Kaupfélagi Þingeyinga og einn- ig sem bæjarverkstjóri hjá Húsavíkurkaupstað. Eftir 50 ára búskap á Húsavík fluttu þau hjónin til Reykjavíkur, í Ljósheima 12a og var Guð- mundur þá kominn á eftirlaun. Útför hans fór fram í kyrr- þey 4. nóvember 2016 að ósk hins látna. ber 1927, Þorbjörg, f. 3. september 1929, Ármann, f. 10. janúar 1932, Jónas, f. 21. júní 1934, d. 13. nóv- ember 2014, Þóra, f. 16. maí 1938, og Halldór, f. 12. des- ember 1939. Guðmundur gift- ist 28. desember 1952 eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Gunnarsdóttur, f. 29. mars 1930. Börn Guðmundar eru: 1) Guðbjörg Stella, f. 11. sept- ember 1947, maki Gísli Guð- „Það er ekki eftir það sem búið er,“ eru þau orð Guð- mundar sem fyrst koma mér í hug þegar ég leiði hugann að samskiptum okkar. Samskiptum sem hófust fyrir um 43 árum þegar við Guðrún dóttir hans fórum að draga okkur saman og hún kynnti okkur. Samskiptum sem æ síðan einkenndust af trausti, vináttu, væntumþykju og virðingu. Þegar ég kynntist Guðmundi bjuggu þau hjónin í fallegu húsi, Baldursbrekku 19 á Húsa- vík, húsi sem þau með atorku og dugnaði reistu sér. Allt handbragð þar bar vott um vandvirkni og natni jafnt innan- sem utandyra þar sem hver hlutur var á sínum stað og hver hlutur átti sinn stað. Við Guðrún festum kaup á okkar fyrstu íbúð á Víðimel í Reykjavík, þar fæddist dóttir okkar Linda og því varð að gera töluverðar breytingar, sameina herbergi o.fl. Þegar Guðmundur heyrði af áformum okkar sagði hann okkur að hafa ekki neinar áhyggjur, hann mundi koma suður og hjálpa til við breyting- arnar sem hann gerði og unn- um við hörðum höndum að því verki, því það varð að klárast áður enn prinsessan litla kæmi í heiminn. Þremur árum síðar ákváðum við að flytja til Húsavíkur og það í sömu götu, Baldursbrekk- una. Þar fæddist sonur okkar Guðmundur Hafsteinn. Það var aldeilis ómetanlegt að vera í svona miklu návígi við þessa góðu bakhjarla okkar Guðmund og Guðrúnu og börn- in okkar Linda og Guðmundur nutu þess í hvívetna að hafa afa og ömmu svona nærri sér. Eftir ellefu ára búskap á Húsavík fluttum við aftur til Reykjavíkur og enn kom Guð- mundur til hjálpar bæði við að koma búslóðinni fyrir til flutn- ings og ók svo sem leið lá til Reykjavíkur til að hjálpa til við að koma okkur fyrir á nýju heimili. Heilsu hans tók að hraka verulega fyrir fáeinum árum. Það þekkja það allir sem reynt hafa hve erfitt það er að horfa upp á ástvini sína hverfa smátt og smátt í burtu, það er langt og stöðugt sorgarferli, sem þeir sem næstir standa glíma við. En við sem eftir lifum með þá reynslu að baki kunnum e.t.v. að meta lífið, samskipti og sam- veru enn betur eftir slíka reynslu. Það er ómetanlegt að hafa átt slíkan bakhjarl allt frá fyrstu búskaparárum okkar Guðrúnar. Bakhjarl sem alltaf var til staðar jafnt á erfiðum stundum sem og á gleðistund- um og gleðistundirnar voru margar. Á ferðalögum erlendis urðu til heilu ljóðabálkarnir, þar sem minnstu atvik ferðalagsins röt- uðu í bundnu máli á pappírs- snepla og í vasabækur. Ég er í hjarta mínu afar þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast tengdaföður mínum Guðmundi Þorgrímssyni, læra af og njóta með honum gleði- og alvörustunda. Viðar H. Eiríksson. Við kveðjum vin minn og frænda, Guðmund Þorgríms- son, í Fossvogskapellu í dag. Hann var bæjarverkstjóri á Húsavík þegar ég flutti þangað ásamt fjölskyldu minni kalda vorið 1979 og tók þá á móti mér eins og týnda syninum. Guð- mundur var óvenju skemmti- legur maður, víðlesinn, minn- ugur og margfróður þó skólagangan hafi ekki verið löng. En þeir sem leggja sig fram við að læra í skóla lífsins verða oft þeim snjallari sem lengri skólagöngu hafa. Við áttum nána samleið í rúm 11 ár sem voru mikill þroskatími hjá mér og hann einn af mínum lærifeðrum. Engan annan þekki ég sem kann slík kynstur af ljóðum og vísum sem Guðmundur og hann var sögumaður góður. Ferðir fórum við með Guð- mundi og Guðrúnu í Músakot, en svo nefndist sumarhús þeirra í landi Presthóla, en þar var Guðmundur borinn og barnfæddur. Þar var stundum vakað eina vornótt í þingeysku blíðviðri. Eftir að við fluttum frá Húsavík urðu samfundirnir strjálir en þegar af þeim varð var eins og við hefðum hist í gær. Nú kveður Guðmundur vinur minn jarðvistina saddur lífdaga og heldur í betri heim. Þegar við hittumst næst hef ég trú á að það verði fagnaðarfundir eins og verið hefur. Samúðarkveðjur sendum við hjónin Guðrúnu Gunnarsdóttur og fjölskyldunni allri. Bjarni Þór Einarsson. Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu, sem festu rætur í íslenskri jörð, veggi og vörður hlóðu og vegi ruddu um hraun og skörð, börðust til þrautar með hnefa og hnúum og höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt. Þeim fækkar óðum, sem feðrunum unna, sem finna sín heilögu ættarbönd, sögur og kvæði kunna og kjósa að byggja sín heimalönd. Fyrr sátu hetjur við arineldinn að óðali sínu, er vetra tók, og lásu við koluna á kveldin kafla í Landnámabók. (Davíð Stefánsson) Elsku pabbi minn. Megi góð- ur Guð og englarnir gæta þín á himnum. Hafðu þökk fyrir allt. Fyrir hönd fjölskyldu minn- ar, þín dóttir, Guðbjörg Stella. Guðmundur Þorgrímsson Herbert Benja- mínsson var frá Ísa- firði. Kornungur kom hann austur til Neskaupstaðar og varð fljótt bátsmaður á togara. Hebbi var togaramaður í húð og hár. Neta- vinna og splæsingar, allt er því viðkom lék í höndunum á honum. Þegar ég var krakki og fór að hugsa um sjó heyrði ég af þessum hæfileikum hans. Á ævinni hef ég af og til verið að hitta Færeyinga og eldri íslenska sjómenn sem spyrja um Hebba. Vinna og verk- lagni sitja í minningum þeirra. Hann varð síðan starfsmaður Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað. Farsæll og góður skipstjóri á Barða NK til fjölda ára. Það var alltaf gaman að hitta Hebba í bænum eftir að hann var hættur að vinna. Þó að hann ætti við veikindi að stríða var hann alltaf hress og það var gaman að tala Herbert Ágúst Benjamínsson ✝ Herbert ÁgústBenjamínsson fæddist 20. febrúar 1933. Hann lést 8. desember 2016. Útför hans fór fram 15. desember 2016. við hann um fisk og fyrri tíma. Við fór- um m.a. saman til Japans að ná í Bjart NK. Ég á mynd af honum, berum að ofan, að splæsa vír á siglingunni heim í tuttugu og fimm stiga hita. Herbert gaf sig ekki að fé- lagsmálum eða öðru ámóta stússi. Fljót- lega eftir að hann kom austur kom konan í spilið. Hann kvænt- ist Guðnýju Jónsdóttur Zoëga, þau bjuggu sér hreiður að Blómsturvöllum 12 í Neskaup- stað og þar eignuðust þau þrjú börn. Þar bjuggu þau þar til Hebbi kvaddi. Hebbi og Gúlla áttu sumarbústað í mynni Seldals en hann brann fyrir nokkrum ár- um. Þar undu þau sér vel. Ég hygg að hann hafi í frístundum helst kosið að sinna fjölskyld- unni, auk þess að dytta að húsinu og sumarbústaðnum og fegra og snyrta þar í kring. Blessuð sé minning Hebba. Við hjónin vottum Gúllu og af- komendunum okkar dýpstu sam- úð. Magni Kristjánsson. Elsku amma Þá ertu loksins komin til afa og búin að fá hvíldina. Það rifjast upp svo margar minningar en ekki verður hægt að segja frá þeim öllum hér. Við barnabörnin vorum númer eitt hjá ykkur afa og kærleikurinn sem þið sýnduð okkur var ómetanlegur. Við kom- umst upp með allt og fengum nánast að gera það sem vildum. Hvort sem það var að setja upp leikrit eða leiki, leika okkur úti í skúr með gamla dótið úr búðinni Smárakjör eða búa til ævitýra- heim ofan í kompu. Þið kennduð okkur líka að allir eru jafnir, sama hvaðan þeir koma eða í hverju þeir hafa lent. Sem dæmi átti ég föður sem var frekar óheppinn í lífinu en ég fann aldrei fyrir því að hann væri minni maður en aðrir. Ég gleymi því aldrei þegar þú, elsku amma, í leik hljópst á eftir okkur á fjórum fótum og urraðir eins og ljón og við hlupum um hlæjandi og skríkjandi. Skemmtilegustu stundirnar voru þegar ég, Fanný og Hallur gist- um saman hjá ykkur. Þá var aldr- ei farið að sofa fyrr en um miðja nótt, það var bara svo gaman og ekki hægt að fara að sofa. Sög- Sigríður Björg Vilhelmsdóttir ✝ Sigríður Vil-helmsdóttir fæddist 23. ágúst 1923. Hún lést á 7. desember 2016. Útför Sigríðar fór fram 16. desem- ber 2016. unar sem þú sagðir okkur á meðan við sátum á stólbakinu, klóruðum og fiktuð- um í hárinu gleym- ast seint. Elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín óendanlega en er um leið glöð fyrir þína hönd að þú haf- ir fengið friðinn. Eitt sem þú kenndir mér var að vera aldrei hrædd við að deyja, því þín trú var sú að við dauðann fáum við að hitta alla hina sem farnir eru og það er ekkert sem maður á að vera hræddur við. Ég sé þig fyrir mér, sitjandi í gamla ruggustólunum, með prjóna í hendi. Alltaf smá nammi í skál á borðinu undir öllu prjóna- dótinu og alltaf hægt að skríða upp í mjúkt fang þegar mann vantaði smá knús. Afi frammi í eldhúsi að bardúsa við einhvern mat, rúgbrauðið og mjólkur- grauturinn í miklu uppáhaldi. Ávallt fallegur og góður andi í húsinu og allir velkomnir. Þó nokkrir kettir voru á heim- ilinu í gegnum tíðina og mörg dýr hvíla lúin bein í garðinum á Smáratúninu. Ég elska þig, amma mín, og hef aldrei og mun sjálfsagt aldrei hitta jafn merkilega, gjafmilda, óeigingjarna og aumingjagóða konu eins og þig. Ég á eftir að sakna þín og ég bið að heilsa öll- um. Þín Sigríður Jóhannsdóttir. Óska eftir góðu fólki Ungt fólk, t.d. hjón, par eða vinir Vantar ykkur skemmtilega vinnu? Ég er 22 ára fatlaður ungur maður og ég bý í sveit hjá foreldrum mínum. Ég er að leita að tveimur einstaklingum til að aðstoða mig við vinnu, heimilislíf, tómstundir, félagslíf o.fl. Ef þið eruð reyklaus, sjálfstæð í vinnu- brögðum, jákvæð, sveigjanleg og með góðan húmor (ég er mikill húmoristi) þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir ykkur. Unnið er á vöktum (nætur- og dagvinna) og bílpróf er nauðsynlegt. Við búum í litlu sveit- arfélagi á Suðurlandi, ódýrt leiguhúsnæði er í boði, og gjaldfrjáls leikskóli á staðnum. Frábært tækifæri fyrir fólk sem vill prufa eitt- hvað nýtt, búa í litlu notalegu samfélagi þar sem þó er stutt í alla þjónustu. Meðmæli óskast með umsóknum. Ef þú hefur áhuga eða hefur einhverjar spurningar hafðu þá samband við hana Dísu á netfangið gauksrimi10@internet.is Help wanted! Young people, couples or friends Do you need a rewarding job? I´m 22 years old disabled male, and I live in the country with my parents. I´m looking for two non-smoking individuals to assist me in in my daily life, job, domestic chores, hobb- ies, social activities and so forth. If you are an independent and positive person, flexible and with a good sense of humor (I have a good sense of humor too) this could be the right job for you. The working arrangements is day shift and night shift, and you’d need a driver’s license We live in a small municipality on the south side of Iceland, we can offer low-rent hous- ing, and there is a free kindergarten close by. This is a great opportunity for those willing to try something different and live in a small and cozy community, a short drive from the next town. A recommendation is required. If you’re interested or have any questions please contact DISA in gauksrimi10@internet.is Félagsþjónusta Seltjarnarnesbæjar óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf á Sæbraut á Seltjarnarnesi sem er íbúðakjarni fyrir fatlað fólk á aldrinum 20-40 ára. • Þroskaþjálfi eða starfsmaður með menntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda. • Stuðningsfulltrúi Nánari upplýsingar um störfin gefur Ásrún Jónsdóttir forstöðumaður í síma 8690775 eða asrun.jonsdottir@seltjarnarnes.is. Sjá einnig nánar um störfin á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is – Störf í boði Umsóknarfrestur er til 29. desember næstkomandi. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Seltjarnarnesbær seltjarnarnes.is Atvinnuauglýsingar ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.