Morgunblaðið - 17.12.2016, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Rannsóknamaður í sjávarvistfræði
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða til starfa rannsóknamann á
sviði uppsjávarfiska með starfsstöð í Reykjavík. Um fullt starf er að
ræða og staðan heyrir undir sviðsstjóra uppsjávarlífríkis.
Helstu verkefni
• Gagnasöfnun í rannsóknaleiðöngrum.
• Þátttaka í rannsóknaverkefnum, gagnasöfnun og úrvinnslu sýna og
gagna er tengjast uppsjávarfiskum.
• Vinna með öðrum rannsóknasviðum stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið M.Sc prófi í líffræði/vistfræði eða skyld-
um greinum. Reynsla af rannsóknavinnu er skilyrði og kostur ef sú reynsla
er tengd fiskirannsóknum og rannsóknavinnu á sjó. Umsækjandi þarf að
hafa gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti. Umsækjandi þarf
að vera lipur í mannlegum samskiptum, skipulagi og agaður í vinnubrögð-
um. Þá þarf umsækjandi að sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Í umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af prófskírteinum) og
fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda sem leita má til varðandi
frekari upplýsingar.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðuneytis og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2016. Umsókn óskast send á
netfangið umsokn@hafogvatn.is merkt rannsóknamaður á sviði uppsjávar-
fiska eða á skrifstofu Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
Henni skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Öllum umsókn-
um verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Helgadóttir mannauðsstjóri,
(kristin.helgadottir@hafogvatn.is) og Þorsteinn Sigurðsson sviðstjóri
uppsjávarlífríkis, (thorsteinn.sigurdsson@hafogvatn.is).
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rannsóknastofnun landsins
á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu
og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar
hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt
um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS)
vill ráða starfsfólk til að sinna slökkvi-
starfi og/eða sjúkraflutningum. Bæði er
um framtíðarstörf að ræða og sumarstörf
fyrir sumarið 2017. Framtíðarstarfsmenn
munu fá nauðsynlega menntun og
þjálfun til að geta sinnt bæði slökkvistarfi
og sjúkraflutningum hjá SHS en sumar-
starfsmenn þurfa að hafa starfsréttindi
sem sjúkraflutningamenn. Allir starfs-
menn verða að vera reiðubúnir að vinna
vaktavinnu.
Við erum að leita að einstaklingum sem
vilja láta gott af sér leiða og hafa áhuga
á að tilheyra öflugu liði sem hefur það
hlutverk að sinna útkallsþjónustu á höfuð-
borgarsvæðinu. Við viljum gjarnan sjá
fleiri konur í liðinu og æskilegt er að um-
sækjendur séu ekki eldri en 28 ára vegna
kröfu um eðlilega endurnýjun í liðinu.
Kynningarfundur verður haldinn fyrir
umsækjendur í slökkvistöðinni í Hafnar-
firði þann 6. janúar kl. 17:00 og hlaupa-
próf (æfingapróf) fara fram í Kaplakrika
17. desember og 7., 14. og 21. janúar.
Nánari upplýsingar um hæfniskröfur og
umsóknarferlið í heild sinni má finna á
heimasíðu SHS.
SLÖKKVILIÐIÐ LEITAR
AÐ LIÐSAUKA
VILTU TAKA ÞÁTT?
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Skógarhlíð 14 / S: 528-3000
www.shs.is
Sérfræðingur í líkanagerð
og stofnmati
Hafrannsóknastofnun óskar eftir sérfræðingi til starfa á sviði
líkanagerðar, stofnmats og tölfræði. Um fullt starf er að ræða og
heyrir staðan undir sviðsstjóra botnsjávarlífríkis.
Helstu verkefni
• Fjölstofnalíkön.
• Stofnmat botnfiska.
• Tölfræðileg úrvinnsla gagna.
• Úrvinnsla gagna og birting niðurstaðna.
• Vinna með öðrum rannsóknasviðum stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistaragráðu í fiskifræði, tölfræði
eða sambærilegum fögum og hafa reynslu af rannsóknum og birtingu
niðurstaðna. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á forritun, stofn-
mati og reynslu af úrvinnslu flókinna gagna. Hæfni til að vinna sjálfstætt
og í teymisvinnu. Í umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af
prófskírteinum) og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda sem
leita má til varðandi frekari upplýsingar.
Um er að ræða fullt starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðuneytis og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar n.k. Umsóknir með ítarlegum
upplýsingum um menntun, starfsreynslu og nöfnum tveggja meðmælenda
skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.is eða á skrifstofu Haf-
rannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Konur, jafnt sem karlar
eru hvattar til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri (kristin.
helgadottir@hafogvatn.is) og Guðmundur Þórðarson , sviðsstjóri
botnsjávarsviðs (gudmundur.thordarson@hafogvatn.is).
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rann-
sóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar
tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur
auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.
Rannsóknamaður í sjávarvistfræði
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða til starfa rannsóknamann
á sviði uppsjávarlífríkis með starfsstöð í Reykjavík. Um fullt starf er
að ræða og heyrir staðan undir sviðsstjóra botnsjávarlífríkis.
Helstu verkefni
• Rannsóknir á fæðutengslum nytjafiska.
• Rannsóknir á ungviði botnfiska.
• Gagnasöfnun á sjó.
• Úrvinnsla gagna og birting niðurstaðna.
• Vinna með öðrum rannsóknasviðum stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið M.Sc gráðu í sjávarvistfræði eða
sambærilegum greinum og hafa reynslu af rannsóknum og birtingu
niðurstaðna. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á aðferðarfræði
við fiskrannsóknir, fæðugreiningum og úrvinnslu slíkra gagna. Hæfni til að
vinna sjálfstætt og í teymi.
Í umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af prófskírteinum) og
fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda sem leita má til varðandi
frekari upplýsingar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis
og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar n.k.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
nöfnum tveggja meðmælenda skulu sendar á póstfangið umsokn@
hafogvatn.is eða á skrifstofu Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101
Reykjavík. Jafnt karlar sem konur, eru hvött til að sækja um starfið. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri (kristin.
helgadottir@hafogvatn.is) og Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjáv-
arsviðs (gudmundur.thordarson@hafogvatn.is).
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rann-
sóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar
tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur
auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.