Morgunblaðið - 17.12.2016, Page 45

Morgunblaðið - 17.12.2016, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016 HÖNNUNARÚTBOÐ vegna hönnunar nýrrar skrifstofu- byggingar fyrir Byggðastofnun á Sauðárkróki Útboð nr. 20481 Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR), f.h. Byggða- stofnunar, hér eftir nefndur verkkaupi, auglýsir eftir hönnuðum til að taka þátt í hönnunarútboði vegna nýs skrifstofuhúsnæðis Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Hér er um að ræða hönnunarútboð þar sem þátttakendur verða valdir með tilliti til hæfni, reynslu af hönnun mannvirkis og lóðar. Leitað er að hönnunarteymi sem getur tekið að sér að hanna skrifstofubygginguna, samkvæmt kröfu og þarfalýsingu sem er hluti af útboðsgögnum. Útboðsgögnum þessum er ætlað að kynna umfang hönnunarútboðsins, tímaáætlun og kröfur til bjóðenda. Í hönnunarútboðinu verður viðhaft tveggja umslaga kerfi, þar sem annars vegar verða gefin stig fyrir hæfni og reynslu og hins vegar fyrir verðtilboð. Gert er ráð fyrir að vægi þessara tveggja þátta verði 60% hæfni og 40% verð. Að loknu útboði verður samið við eitt hönnunarteymi. Allur kostnaður við þátttöku í þessu hönnunar- útboði er á kostnað og ábyrgð þátttakenda. Verkkaupi áskilur sér rétt til að víkja í einhverjum atriðum frá ákvæðum hönnunarútboðsgagna. Hér er átt við að upp getur komið nauðsyn á minni háttar aðlögun eða þróun, en grunnforsendum og hugmyndafræði verður ekki breytt. Byggðastofnun hefur valið lóð á Sauðarkróki fyrir bygginguna, Sauðármýri 2. Deiliskipulag er til fyrir lóðina og er samþykkt deiliskipulag hluti af skilyrðum hönnunarútboðsins. Deiliskipulag er fylgiskjal kröfu og þarfalýsingu. Fyrirhugað er að byggingin verði um 900 fermetrar.Tímaáætlun frumathugunar gerir ráð fyrir 6 mánuðum í fullnaðarhönnun til útboðs. Útboðsgögnin verða aðgengileg á heimasíðu ríkiskaupa www.ríkiskaup.is, þriðjudaginn 20. desember 2016. Fyrirspurnir varðandi útboð nr. 20481 skulu sendar á netfangið utbod@rikiskaup.is eigi síðar en 3. janúar 2017, kl. 14:00. Fyrirspurnin skal merkt: ,,Útboðsfulltrúi Ríkiskaupa”, útboð nr. 20481. Fyrirspurnir og svör við þeim, ásamt hugsan- legum breytingum á útboðsgögnum, verða ein- ungis birt á vefsíðu Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, eigi síðar en 6. janúar 2017. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í hönnunar- útboði þessu skulu leggja fram þátttökutil- kynningu og öll önnur umbeðin gögn samkvæmt leiðbeiningum í útboðsgögnum, í lokuðu umslagi til Ríkiskaupa að Borgartúni 7C, Reykjavík, þannig merktu: Ríkiskaup Útboð nr.20481 BYGGÐASTOFNUN – ÚTBOÐ Nafn ábyrgðaraðila umsóknar Umsóknum skal skila til Ríkiskaupa fyrir kl. 10:00, þriðjudaginn 10. janúar 2017. ÚTBOÐ Selfossveitur bs. óska eftir tilboðum í : „Eyraveita Dælustöð - 2017“. Verklok eru 1. júlí 2018. Verkið felur í sér byggingu á 110m² dælustöð fyrir hitaveitu og vatnsveitu fyrir Eyrarbakka og Stokkseyri, á gatnamótum Gaulverjabæjarvegar og Eyrarbakka- vegar, ásamt lagningu á vatns-, hitaveitu-, fjarskipta- og raflögnum. Einnig skal setja upp vélbúnað og stýringar, ásamt því að taka niður núverandi dælu- stöðvar á Eyrarbakka og Stokkseyri fyrir heitt vatn. Helstu magntölur eru: • Gröftur v/byggingar 270m³ • Fylling v/byggingar 450m³ • Neðra burðarlag 350m³ • Bygging dælustöðvar 110m² • Fráveitulagnir 100m • Vatnsveitulagnir - Ø280 100m - Ø180 160m • Einangraðar hitaveitulagnir - DN250 160m - DN200 100m • Rafbúnaður • Strengir 635m • Kraft og stýritöflur 2stk Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 21. desember 2016. Þeir sem hyggj- ast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Helga Bárðarson í síma 661 0331, eða með tölvupósti í netfangið stv@stv.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila til STORD verkfræðistofu, Austur- vegi 1-5, 800 Selfoss (húsnæði EFLU verkfræðistofu) fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 11. janúar 2017 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is Útboð           Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið: Verkið skiptist í tvo meginverkþætti sem eru annars vegar plötuskipti á hluta af botnplötum geymisins og hins vegar sandblástur og þrif á innra byrði geymisins, auk þess felst í verkinu aðstöðusköpun, svo sem opnun og lokun geymis, þrif og frágangur og umsjón með lokun og læs- ingu geymis utan vinnutíma þar til verkinu er lokið og geymirinn tilbúinn til vatnsfyllingar. Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 20.12.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016 Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum: VEV-2016-16-Hitaveitugeymir Grafarholt, geymir 5 tæringarvörn og viðgerð á botni. Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 05.01.2017 kl. 11:00. VEV-2016-16 17.12.2016 HITAVEITUGEYMIR Grafarholt, geymir 5 Tæringarvörn og viðgerð á botni Útboð: VEV-2016-16 Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is Útboð Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is           Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið: Endurnýja skal samtals um 5 km langan kafla aðveituæðar frá Deildartungu. Verkefnið er á þremur stöðum á lagnaleiðinni, frá Læk að Urriðaá sem eru um 3,4 km, frá Laugarholti að Brún sem eru um 1,7 km og 40 metrar við Deildartunguhver. Verktaki skal fjarlægja núverandi DN 250 asbest- lögn á kaflanum frá Laugarholti að Brún og við Deildartunguhver. Verktaki skal í framhaldi fjarlægja asbestlögnina á kaflanum frá Læk að Urriðaá að verki loknu. Nýjar lagnir eru foreinangraðar stálpípur. Sverleiki nýju aðveituæðarinnar verður DN400 í Ø 560 mm. kápu á kaflanum frá Læk að Urriðaá en DN250 í Ø 400 mm. kápu á kaflanum frá Laugarholti að Brún og DN250 í Ø 450 mm. kápu við Deildar- tunguhver. Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 20.12.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016 Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum: VEV-2016-17-Hitaveita frá Deildartungu, endurnýjun aðveituæðar 2017. Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 05.01.2017 kl. 11:30. VEV-2016-17 17.12.2016 HITAVEITA FRÁ DEILDARTUNGU Endurnýjun aðveituæðar 2017 Útboð: VEV-2016-17  Orkuveita Reykjavíkur Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Fax 516 630 • Sími 516 6100 www.or.is/um/utbod Samstæða Orkuveitu Reykjavíkur sef. óskar eftir tilboðum í útboðsverkefnið: KAUP Á BIFREIÐUM fyrir samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur Útboð: ORIK-2016-15 Um er að ræða innkaup í eftirfarandi bifreiðaflokkum: • 4x4 tengiltvinn bíll 1 stk. • 4x4 pallbíll 3 stk. • 4x4 sendibíll 2 stk. • sendibíll 2 stk. • vinnuflokkabíll með palli og krana 1 stk. Heimilt er að skila inn tilboðum í einstaka flokka út- boðsverkefnisins. Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 20.12.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016 Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „ORIK-2016-15- Kaup á bifreiðum fyrir samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur, útgefinni í desember 2016“ Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 05.01.2016 kl. 10:30. ORIK-2016-15 17.12.2016     ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.