Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Theodór Sigurðsson er Gaflari í húð og hár: „Ég fæddist í Hafn-arfirði og hef átt þar heima nánast alla mína tíð, að und-anskildu einu ári í Danmörku og tveimur mánuðum í Reykja-
vík. Ég held maður fari ekkert að skipta um bæjarfélag úr þessu.
Þegar ég fæddist var ég fyrst settur i kommóðuskúffu. Ég kom því
út úr skúffunni - ekki út úr skápnum.“
Theodór er kvæntur Ragnhildi Guðrúnu Júlíusdóttur, kennara í
Hafnarfirði. Þau eignuðust þrjú börn, Elvar Má sem lést í fyrra eftir
stutt veikindi, Arnar Frey sem er umboðsmaður handboltamanna, og
Silju Rós sem er sjúkraþjálfari.
Theodór lærði offsetprentun og vann við það um langt árabil, hjá
Hilmi hf, Prentsmiðju Árna Valdimarssonar, Steinmarki, Prisma og
hjá Prentbæ. Síðan þjálfaði hann í handbolt í Danmörku 1994-95.
Theodór hóf svo störf hjá innflutningsfyrirtækinu Altis, árið 1995,
eignaðist snemma helminginn í fyrirtækinu en hefur rekið það frá
1998. Altis býður uppá flest það sem íþróttafólk þarf á að halda við
sína iðkun og ýmis konar búnað sem tengist íþróttaleikvöngum.
Theodór er ekkert að gera mikið úr afmælinu og finnst hann ekkert
eldast þó bætist við nýr áratugur: „Ég hélt síðast upp á afmælið þegar
ég varð 49 ára, eða fyrir 11 árum. Mér finnst ég ekkert hafa elst síð-
an. Ég er bara sprækari ef eitthvað er. Og ég ætla heldur ekki að gera
mikið úr deginum. Slappa bara af með fjölskyldunni.“
Teddi Hefur ekkert elst frá því hann hélt upp á afmælið fyrir 11 árum.
Kom úr skúffunni –
ekki út úr skápnum
Theodór Sigurðsson er sextugur í dag
N
ótt fæddist í Vest-
mannaeyjum 17.12.
1976 en flutti hálfs
árs með fjölskyldunni
til Svíþjóðar og ólst
þar upp í Malmö til 1986. Þá fluttu
þau til Noregs þar sem þau áttu
heima á eyjunni Bakkesund við
Bergen í tvö ár. Fjölskyldan flutti
svo heim og settist að í Reykjavík.
Nótt var í grunnskóla í Malmö og
Bakkesund, gekk síðan í Hagaskóla,
var skiptinemi í Kanada í eitt ár, síð-
an tvö ár í MR og stundaði síðan
nám við skúlptúrdeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands. Samhliða því
stundaði hún leiðsögunám við Leið-
söguskóla Íslands og starfaði síðan í
ferðaiðnaði í nokkur ár, sem leið-
sögumaður og viðskiptastjóri.
Nótt stundaði nám í markaðs-
fræði við HR, lauk tveimur diplom-
um í markaðsfræðum á vegum The
Chartered Institute of Marketing og
lauk MSc-prófi með láði í markaðs-
fræðum við The Univerisity of
Strathclyde í Skotlandi 2009.
Nótt hóf störf hjá Samskipum árið
2004 – fyrst sem viðskiptastjóri en
tók síðan fljótega við sölustjórnun á
innanlandssviði félagsins, þá Land-
flutningum-Samskipum. Hún var
Nótt Thorberg, framkvæmdastjóri Marels á Íslandi – 40 ára
Fjölskyldan Afmælisbarnið og Sigurjón Hermann með litlu krílunum sínum tveimur, þeim Tíma og Óttu.
Úr leiðsögn í markaðs-
fræði og stjórnun
Það er kominn 17 júní Tími og Ótta aðeins yngri að fagna lýðveldisafmæli.
Gullbrúðkaup eiga í dag Guðbjörg Vignisdóttir og Kristján Ármannsson, Lauta-
smára 1, Kópavogi. Sr. Birgir Snæbjörnsson gaf þau saman í Akureyrarkirkju 17.
desember 1966. Þau hófu búskap á Akureyri en bjuggu í 18 ár á Kópaskeri. Tíma-
mótunum verður fagnað með fjölskyldu og vinum.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Í dag eiga hjónin Sesselja Pálsdóttir, f.v. kaupkona, og Þorbergur Bæringsson
trésmíðameistari gullbrúðkaupsafmæli. Hjónin hafa alla tíð búið í Stykkishólmi.
Þau eiga fjögur börn, fimm barnabörn og er sjötta barnabarnið á leiðinni. Hjónin
verða að heiman á brúðkaupsafmælisdaginn.
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Tim Bryan
@timbryanofficial
Daniel Wellington
WD
D A N I E LW E L L I N G T O N . C O M
I N S TA G R A M . C O M / D A N I E LW E L L I N G T O N
FA C E B O O K . C O M / D A N I E LW E L L I N G T O N O F F I C I A L
T W I T T E R . C O M / I T I S D W
P I N T E R E S T. C O M / I T I S D W