Berklavörn - 01.06.1946, Side 45
Frá Reykjalundi:
ViS rennibekkina.
uð, hún er háinark ósvífninnar. Það er
hún.
Þegar klukkan sló átta, reis ungfrúin á
fætur, rétt úr sér og mælti upphátt:
Ég vildi að hann væri dauður!
Hún þekkti vart þessa annarlegu rödd.
Skelfingu lostin lét hún sig falla í stólinn,
birgði andlit í höndum sér og grét.
Síminn hringdi. Ungfrúin bar hann að
eyra sér og mælti, með rödd, sem hún hafði
ekki fullt vald á:
Halló! Ó! ert það þú. — — Nei, elsku
bezti, ég vissi ekki að hún væri svona
margt, ég sat og var að lesa í bók. — —
Hvað segir þú góði? Ertu orðinn veikur af
kvefi, ó, hvað það er — — —. Nei, auð-
vitað gazt þú ekki komið. Þú mátt alls ekki
fara út, veðrið er svo hráslagalegt.---------
Viltu lofa mér því að fara strax að hátta,
drekka kamillute og taka inn kamfóru.
Láttu á þig trefil, helzt ullartrefil um
hálsinn---------og heyrðu, mældu þig, það
er vissara.--------Já, og góða nótt elskan
mín. Þakka þér fyrir að þú mundir eftir
mér og símaðir til mín. Fljótan og góðan
bata, af alhuga óska ég þér góðs bata vin-
ur minn. Góða nótt!
★
Skrítlar
A: Ég ætla að trúa þér fyrir dálitlu, vinur minn.
B: HvaS er þaS.
A: Ég er alveg félaus í augnablikinu og þarf aS fá
100 krónur aS láni.
B: Þér er óhætt aS treysta inér. Eg segi engum
frá því.
Frú A (hringir til eins af kunningjum mannsins
síns): ViljiS þér ekki gjöra okkur þá ánægju, aS líta
til okkar í kvöld. Klukkan átta verSur sungiS dálítiS
(og spilaS. Klukkan tiu borSum viS svo kvöldverS.
Kunninginn: Þakka ySur kærlega frú. Ég kem þá
um tíu leytiS.
Nonni litli: ÆtlarSu aS borSa miSdagsmat hjá okkur.
Gísli: Af hverju spyrSu aS því, góSi minn?
Nonni litli: Af því aS pabbi kom rétt áSan fram í
eldhús og sagSi: ÞaS er alveg sama hversu afundinn ég
■er viS Gísla. Honum dettur ekki í hug aS fara.
•
Drengurinn: Pabbi, hefurSu aldrei látiS tannlækn-
jnn draga úr þér tönn?
FaSirinn: Jú, hundruSum saman, hundruSum saman.
Hann: Ég skil ekkert í, aS þér skuli leiSast. Mér
.finnst svo ljómandi skemmtilegt hér.
Hún: Þér, já. — Þú ert líka ■ meS mér.
BERKLAVÖRN
29