SÍBS blaðið - 01.03.2000, Qupperneq 6
Viðt
ðqvRKJABANDALAj
heilbrigöara fólk. Stjórnvöld telja sig
stundum vera að gera vel við öryrkja og
skoða þá hvað aðstoðin kostar brúttó í
almannatryggingakerfinu, en skoða ekki
jafn einfalda hluti og þá að ef betur
væri gert við öryrkja myndu 2 af
hverjum 3 krónum rata á einn eða
annan hátt aftur í ríkiskassann, ef ekki í formi
beinna skatta þá í formi neysluskatta.
Við þurfum að hækka verulega örorku-
lífeyrinn, rýmka frítekjumörkin og hætta að
láta bætur til öryrkja ráðast af tekjum maka.
- Er ekki sú ráöstöfun einstakt fyrirbrigði?
- Mér er ekki kunnugt um að slíkt sé nokkurs
staðar gert. Jafnvel þótt þetta kynni að
tíðkast annars staðar þá er það jafn siðlaust.
Þetta er angi af ölmusuhugsun sem ætti fyrir
löngu að vera horfin. Mannréttindasáttmáli
Evrópu hefur lagagildi á íslandi og þessu
verður að breyta, spurningin er bara hverjir
verða á undan að afnema þetta - stjórnvöld
eða dómstólar. Varðandi launatekjur þá vita
allir að það er erfiðara fyrir öryrkja og fatlað
fólk að afla sér tekna, eða aukatekna, en
fullfrískt fólk. Öryrkjar búa við þá furðulegu
staöreynd að þegar þeir hafa náð 3o þúsund
krónum á mánuði koma ekki aðeins 45% þess
sem umfram er til skerðingar heldur er 38%
skattur tekinn af því sem þá er eftir.
t
Ur Mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuöu
þjóöanna
22. gr.
Hver þjóðfélagsþegn skal Jyrir atbeina
hins opinbera eða alþjóöasamtaka og í
samrœmi við skipulag og efnahag hvers
ríkis eiga kröfu á félagslegu öryggi og
þeim efnahagslegum, félagslegum og
menningarlegum réttindum, sem honum
eru nauösynleg til þess að virðing hans
og þroski fái notið sín.
25. gr.
1. Hver maður á kröfu til lífskjara, sem
nauðsynleg eru til verndar heilsu og
vellíðan hans sjálfs og fjölskyldu hans.
Telst þar til matur, klœönaður, húsnœði,
lœknishjálp og nauðsynleg félagshjálp,
svo og réttindi til öryggis gegn atvinnu-
leysi, veikindum, örorku, jyrirvinnu-
missi, elli og öðrum áföllum, sem skorti
valda og hann getur ekki við gert.
(Úr bæklingi frá ÖBÍ)
Með þessu er eiginlega verið að banna
öryrkjum að vinna, þvi þessar frádráttar- og
skattakúnstir jafngilda nánast atvinnubanni.
Að eignast maka getur orðið dýrt
Öryrki sem hugsanlega væri með tæpar 7o
þús. kr á mánuði gæti lækkað niður í 17 þús.
kr. tekjur ef hann eignast útivinnandi maka.
Það er nógu erfitt að vera sá fatlaði í sambúð
þótt ekki bætist ofan á að verða sérstök byrði
á makanum vegna stórskertra tekna.
Stjórnvöld telja fatlaða léttari á fóðrum en
barn - tvöfalt meðlag aö viðbættum
barnabótum er hærra en þær 17 þús. kr. sem
öryrkja í sambúð er boðið uppá. Stjórnvöld
eru nýbúin að setja reglur um hver skulu vera
lágmarkslaun Au-pair fólks, en það skal fyrir
utan frítt fæði og húsnæði hafa að lágmarki
3o þús kr. í vasapeninga. Við vitum hver eru
talin lágmarksframfærslulaun til námsmanna,
listamanna og stórmeistara í skák sem vilja
helga sig skáklistinni. Þá er talað um sem
sjálfsagðan hlut tvöfalt hærri upphæð en þá
sem öryrki getur mest fengið í bætur, hvað þá
ef um skerðingar er að ræða.
Getum lagfært svo margt
Margir verða nú öryrkjar ungir að árum, t.d.
vegna slysa, og það fólk getur ekki safnað í
lífeyrissjóði, á ekki eignir og hefur ætíð veru-
legan kostnað af fötlun sinni. Við erum hér
einungis að tala um 3% þjóðarinnar, eða um
8 þús. manns, sem er heildarfjöldi örorku-
lífeyrisþega. Ef við lagfærum kjör þessa fólks
þá lagfærum við svo margt annað í leiðinni
sem heldur þessu fólki nú i heljargreipum. Til
viðbótar því sem ég tel mjög ranglátt og hef
rakið hér að framan þá hefur frítekjumark
ekki hækkað í samræmi við hækkun launa og
skattleysismörk eru sifellt að lækka að raun-
gildi þannig að öryrkjar eru líka að tapa á
þessum vígstöðvum.
Mannréttindabarátta
Við munum reka baráttu okkar fýrst og fremst
sem mannréttindabaráttu, en ekki sem hefð-
bundna kjara- og verkalýðsbaráttu. Við höfum
stefnt sjórnvöldum fyrir brot á stjórnarskrá
lýðveldisins og það mál er nú fyrir hæstarétti.
Ef niðurstaða málsins verður okkur ekki óhall-
kvæm munum við fara með málið fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu.
Eg spyr Garðar að lokum hvað hann hugsi sér
að vera lengi í þessu starfi og hef þá ritstörf
hans í huga.
- Ritstörf eru lýjandi eins og önnur vinna og
þar lifir maður í einangruðum heimi. Úr því
að ég fór að skipta mér af þessum málum þá
ætla ég að beita mér af alefli á meðan mín er
þörf og kraftur og heilsa leyfir. SJ
6