SÍBS blaðið - 01.03.2000, Síða 10
ámóta verkefni og að þróa nýtt lyf og því er
ferlið tímafrekt og dýrt. Flest úðalyf frá
íyrirtækinu innihalda nú freonfrí drifefni og
þess nýtur umhverfið.
Stöðug þróun og endurnýjun á sér einnig stað
í þeim tækjum sem notuð eru til að koma
öndunarfæralyfjum á réttan stað í lungum.
Hjálpartækin Volumatic og Babyhaler auð-
velda lyfjagjöf, bæta nýtingu úðalyfja og
auka árangur meðferðar og innöndunartæki
eins og Diskus léttir sjúklingum enn frekar
lífiö. í Diskus er hver lyfjaskammtur innsigl-
aður í tækinu, skömmtunin er ávallt söm og
jöfn, óháð innöndunargetu, ekkert lok eða
lausir hlutir, hann er afar auðveldur i notkun
og í því er teljari sem sýnir hve mikið er eftir
í tækinu.
Önnur lyf fyrir lungnasjúklinga
Inflúensa getur verið skæð sjúklingum með
öndunarfærasjúkdóma. Veiran berst með
úðasmiti til lungna, fjölgar sér í lungavef og
byrjar að herja á fórnarlambið. Bólusetning
hefur til skamms tíma verið eina vörnin gegn
inflúensu, en nú hefur Glaxo Wellcome þróað
nýtt lyf viö inflúensu sem heiti zanamivir.
Lyfið er gefið sem innöndunarlyf i Diskhaler
tæki og hemur fjölgun veirunnar í öndunar-
veginum og dregur úr smiti. Flensan verður
því vægari og gengur fýrr yfir. Lyfið gagnast
einnig sem fyrirbyggjandi meðferð þeim sem
eru i návígi við infiúensu veiruna. Zanamivir
fæst nú gegn lyfseðli hér á landi.
Það skal tekið fram að sem fyrr er bólu-
setning fyrsta forvörn gegn inflúensu.
Reykingavarnalyf
Reykingamenn geta vænst betri tiðar því lyfið
wellbutrin frá Glaxo Wellcome er ætlað þeim
sem vilja venja sig af tóbaksfíkn. Lyfið er
tekiö inn í töfluformi og niðurstöður rann-
sókna sýna að þeir sem nota lyfið, eigi auð-
veldara með að hætta að reykja en þeir sem
nota hefðbundin reykingavarnalyf. Wellbutrin
er nú til umsagnar hjá evrópskum heilbrigðis-
yfirvöldum en er komið á markað í
Bandaríkjunum.
Fjölþjóðleg
erfðafræðirannsókn á astma
Rannsóknarverkefni Glaxo Wellcome eru
fjölþætt og sem dæmi má nefna að nýlega
tilkynnti fýrirtækið að það hefði hrundið úr
vör samstarfsverkefni 7 vísindastofnana sem
rannsakar erfðafræðilegan grunn
astmasjúkdómsins. Verkefnið heitir Asthma
Clinical Genetics Network og er nýstárlegt,
bæði hvað varðar umfang og snið. Það er
sannað að astmi liggur í vissum fjölskyldum
og því er nauðsynlegt að fá skorið úr
erfðaþættinum með vandaðri rannsókn. í
verkefninu taka þátt 6 evrópsk vísindasetur
og eitt bandarískt. Hvert setur safnar 100
astmafjölskyldum, framkvæmir vissar rann-
sóknir á fjölskyldumeðlimum s.s. húðpróf
vegna ofnæmis, lungna-áreitipróf o.fl. auk
þess sem blóðsýnum er safnað til DNA-
greiningar. Þar sem 700 fjölskyldur tengjast
verkefninu er þetta stærsta einstaka gena-
rannsókn á astma sem framkvæmd hefur
verið og vísindamennirnir bíða spenntir eftir
niðurstöðum sem gætu afhjúpað þau erfða-
fræðilegu atriði sem mestu skipta í astma.
Fyrirtækið vonast til að innan 4 ára hafi
vísindamönnum þess tekist að finna þau
svæði á erfðamenginu sem upplýsi hvað
veldur astma eða hvers vegna sumir
einstaklingar fá astma og þá hvernig við
getum þróað nýjar aðferðir til meðhöndlunar
sjúkdómsins.
Glaxo Wellcome hefur um árabil stundað
rannsóknir hérlendis í samstarfi við ísfenska
vísindamenn og sjúklinga. Sem dæmi má
nefna að nú stendur yfir rannsókn á meðferð
COPD með lyfinu Seretide® í samvinnu við
lungnalækna á Vífilsstöðum, Læknasetrinu
Mjódd og Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri.
Aö lokum er vert að benda á Astma- og
ofnæmislínu Glaxo Wellcome 570 7700 og
fræðsluefni um astma, langvinna lungna-
teppu, fæðu og frjóofnæmi og fleira sem
gefið er út af Glaxo Wellcome ehf og fæst
ókeypis í apótekum.
ÍSLAN DSBAN Kl
Pharmaco
Stórhöfða 17
Hörgatúni 2, 210 Garðabær
Pósthólf 200, 212 Garðabær
Sími 565 8111, Telefax 565 6485