SÍBS blaðið - 01.03.2000, Síða 19
SXR£±daðið
Hönnun þjálfunarhússins á lokastigi
Jón M. Benediktsson fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússsviðs
Reykjalundar hefur tekið
saman fyrir SÍBS-blaðið
eftirfarandi fréttir af undir-
búningi nýbyggingarinnar á
Reykjalundi
LL
Jón M.
Benediktsson.
Hönnun hins nýja þjálfunarhúss
á Reykjalundi hefur tekið
miklum breytingum á
undanförnum vikum.
Avinningur þessarar
aðgeröar er einkum sá
að mun hægara er að útbúa
tæknirými fyrir húsið undir
sundlaugum og búningsklefum
auk þess sem auðveldara er með
frárennslislagnir frá húsinu.
Þá þarf einungis að fleyga í
burtu u.þ.b. helming þess magns
af grjóti sem þurfti í fyrra
fyrirkomulagi.
Önnur veigamikil breyting er, að
búningsklefar hússins hafa verið
færðir og eru nú milli salar og
lauga eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd.
Með þessu móti geta búnings-
og hjálparklefar þjónað bæði
íþróttasal og sundlaugum og
umferð þeirra sem eru að koma
inn í húsið þurrum fótum
skarast ekki við umferð þeirra
sem koma frá laugarsvæðunum.
Staðsetning vaktherbergis er nú
einnig mun betri með tilliti til
þeirrar fjölþættu starfsemi sem
verður í húsinu.
Veigamestu breyting-
arnar eru þær, að
húsinu hefur verið lyft
um eina hæð, þannig að
gólf íþróttasalarins og
yfirborð sundlaugar-
innar er nú í sömu hæð
og gólf sjúkraþjálfunar-
innar.
Á nýju teikningunum, færast
tækja- og þrekæfingasalir ásamt
rými fýrir loftræstibúnað,
samtals u.þ.b. 540 m2, upp og
verða yfir búningsklefum,
almenningi og geymslum
2. hæðarinnar.
Á fýrstu hæð hússins (jarðhæö)
verður tengigangur sem tengist
eldra húsinu við hornið þar sem
verslunin er. Auk þess verður á
hæðinni allur annar tækni-
búnaður en loftræstibúnaður,
þ.e. hreinsibúnaður og klór-
blöndunarbúnaður ásamt dælum
og jöfnunartönkum fýrir
laugarnar.
Þá verður þar allur tækni-
búnaður sem lýtur aö upphitun
hússins ásamt varmaskiptum
fýrir laugar og búningsklefa.
Milli hæðanna þriggja verður
síðan rúmgóð lyfta við hlið
stigahúss.
Reiknað er með að húsið verði
að mestu leyti byggt úr stein-
steypu og einangrað utanfrá og
að frágangur að utan verði með
þeim hætti að viðhaldskostnaður
verði í lágmarki.
Unnið er að gerð útboðsgagna
og stefnt að því að jarövinna
með tilheyrandi vegagerð að
svæðinu og lögnum frá bygg-
ingunni geti hafíst í lok mars.
Uppsteypa hússins ætti síðan að
geta hafist í júlímánuði í sumar.
Sú mikla þensla sem veriö hefur
á byggingamarkaðinum undan-
farin ár heldur fýrirsjáanlega
áfram og það veldur að sjálf-
sögðu áhyggjum þegar um jafn
viðamikla framkvæmd er að
ræða eins og hér er raunin á.
Stefnt er að því að heildarbygg-
ingartíminn verði u.þ.b. tvö ár,
en aö honum loknum þ.e. á
miðju ári 2002 bætist 2300 m2
bygging viö húsakost Reykja-
lundar, sem mun bæta úr brýnni
þörf stofnunarinnar fyrir alhliða
þjálfunarhúsnæði og nýtast ört
vaxandi fjölda landsmanna sem
hingað sækja endurhæfíngu og
bætta heilsu árlega.
Jón Benediktsson
19
Fréttir