SÍBS blaðið - 01.03.2000, Page 21
SJLELSJbJ a ö i ð
Vefsíðan Reykjalundur.is opnuð
Bára J.
Oddsdóttir
Þann 1. mars var opnaður vefur
Endurhœfingarmiðstöðvarinnar að
Reykjalundi. Markmið vefsins er
að veita upplýsingar um starfsemi
Reykjalundar og vera gagnvirkur
fræðslu- og upplýsingamiðill um
endurhæfingu.
A vefnum er sérstaklega fjallað um
hvert og eitt þeirra sviða sem endur-
hæfing á Reykjalundi skiptist í. Þessi
svið eru: Atvinnuleg endurhæfing,
geðsvið, gigtarsvið, hæfingarsvið, lungnasvið,
næringarsvið, miðtaugakerfissvið, hjartasvið
og verkjasvið.
Endurhæfing er flókið og sértækt ferli sem
felur í sér samvinnu ólíkra faghópa. Á vefn-
um er umfjöllun um hvern faghóp og hlut-
verk hans í endurhæfingarferlinu.
Jafnframt eru tengingar m.a. í heimasíður
fagfélaga og skóla sem bjóða nám í viðkom-
andi fagi.
Fræðsla er mikilvægur þáttur í endurhæfingu
og gestum á vef Reykjalundar gefst tækifæri
til að lesa fræðsluefni sem unnið er af starfs-
mönnum endurhæfingarmiðstöðvarinnar.
Á vefnum er að finna hagnýtar upplýsingar
fyrir sjúklinga. Þar má meðal annars finna
upplýsingar um samgöngur, réttindi sjúklinga
og heimsóknartíma svo fátt eitt sé nefnt.
Hluti vefsins er einkum og sér í lagi ætlaður
fagfólki. Þar er t.d. að finna skýrslur um
endurhæfingu. Nýtt og ítarlegra innlagna-
beiðnaform hefur verið hannað og geta
læknar nálgast það á vefnum.
Jafnframt er að finna á vefnum ágrip af sögu
þessarar merku endurhæfingarmiðstöðvar.
Eins og áður sagði þá opnaði vefurinn
1. mars sl. Vefstjóri er Bára Jóna Oddsdóttir
bókasafnsfræðingur en ásamt henni störfuðu
við hönnun vefsins þau Ólöf H. Bjarnadóttir
læknir, Mundína Kristinsdóttir sjúkraþjálfari,
Sigurður Þór Sigursteinsson iðjuþjálfi,
Þórunn Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur
og Elísabet Arnardóttir talmeinafræðingur.
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni:
http://www.reykjalundur.is
Bára J. Oddsdóttir
/
SIBS ákveöur aö auka forvarnastarf
Það liefur um nokkra hrid verid i umrœöu
innan SÍBS að auka þátttöku samtakanna í
forvarnastarfi sem verður œ brýnna fyrir allan
almenning i landinu. Með tilkomu þjálfunar-
sala og sundlauga í fyrirhugaðri nýbyggingu
opnast nýir möguleikar til þess.
A fundi framkvæmdaráðs stjórnar SÍBS 11.
febrúar 2000 var eftirfarandi tillaga samþykkt
einróma: „Framkvæmdaráð SÍBS lítur svo á að
samtökunum beri i framtíðinni - auk alhliða
endurhæfíngar - að nýta frábærar aðstæður á
Reykjalundi til fjölbreyttra forvarna á heil-
brigðissviði í þágu landsmanna. Fram-
kvæmdaráðið telur að SÍBS eigi að stefna að
því að heíja markvisst forvarnastarf á Reykja-
lundi þegar tekið verður i notkun fýrirhugað
þjálfunarhús og sundlaug. Framkvæmdaráðið
beinir þvi til forráðamanna Endurhæfingar-
miðstöðvar SÍBS að nýta yfirburöa reynslu
starfsliðs stofnunarinnar við skilgreiningu
forvarnatilboða sem unnt væri að bjóða upp á
eftir kl. 16:00 á virkum dögum og um helgar."
Hversvegna forvarnastarf á
Reykjalundi?
Góð heilsa er forsenda lífsgæða og gulli betri.
Til þess að varðveita góða heilsu verðum við
að fyrirbyggja þá sjúkdóma sem læðast að
okkur, vel öldu kyrrsetufólki í nútíma þjóð-
félagi, svo sem kransæðasjúkdóma, háþrýst-
ing, insúlin óháða sykursýki, beinþynningu,
krabbamein, slitgigt, offitu, mjóbaksverk,
kvíða og þunglyndi. Sem betur fer er hægt að
sporna við þessum menningarsjúkdómum með
skynsamlegum forvörnum. Og það er eitt af
forgangsverkefnunum á sviði heilbrigðismála í
dag. Rannsóknir hér á landi sem annars staðar
sýna að fólki sem komið er á miðjan aldur eöa
eldra er meiri hætta búin af hóglífinu en þeim
sem yngri eru og stunda fremur íþróttir eða
heilsuræktarstöövar. Þess vegna þarf að leggja
aukna áherslu á að fá þennan hóp tii þátttöku
í forvörnum. En sakir áhættu vegna aldurs
þarf slíkt forvarnastarf að vera undir umsjá
hæfra sérfræðinga. Engin heilbrigðisstofnun
hér á landi er eins vel mönnuö sérfræðingum
til þess að stýra vísindalegu forvarnastarfi
fýrir þennan hóp eins og Endurhæfingar-
miðstöð SÍBS á Reykjalundi. Og þegar fýrir-
hugaðar sundlaugar og þjálfunarsalir verða
teknir í notkun opnast ómetanlegir möguleikar
til að hefja slíkt forvarnastarf.
21