Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 03.06.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 03.06.2016, Blaðsíða 2
Ferðaþjónusta Ríkissjóður hefur misst af um 28 millj- örðum króna í skatttekjur vegna ákvörðunar ríkis- stjórnarinnar að láta lög um hækkun virðisaukaskatts á gistihús taka gildi um mitt ár 2013 Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Á næstu árum gæti þessi skattaaf- sláttur til gistihúsa numið frá tæp- um 12 milljörðum króna á næsta ári og vel yfir 25 milljarða króna árlega ef spár ganga eftir um 5 milljónir ferðamanna árlega, innan fárra ára. Þessi áætlun byggir á því að hærri virðisaukaskattur fæli ekki ferða- menn frá. Með því að færa gistingu úr 11 prósent skatt í 24 prósent skatt hækkar gistingin um tæp 12 prósent. Það er vel hugsanlegt að slík hækkun myndi fæla einhverja ferðamenn frá. Á móti má benda á að gisting yfir háannatímann er meira og minna uppseld, færri komast til Íslands en vilja. Gistináttagjald brot af afslætti Hugmyndir stjórnvalda um að hækka gistináttagjald úr 100 krón- um í 300 krónur á nóttina er langt frá því að vega upp tekjumissi ríkissjóðs vegna þess að gisting er í lægra þrepi. Sé miðað við að einstaklingsherbergi kosti um 25 þúsund krónur nóttin og tveggja manna herbergi 35 þúsund krónur þá dekkar 300 króna gistináttagjald aðeins um 9 til 13 prósent af þeim afslætti sem hótel fá í gegnum virð- isaukaskattskerfið. Í ár má reikna með að skattaaf- slátturinn færi gistihúsum um 9,9 milljarða króna. Í dag er gistinátta- gjaldið aðeins 100 krónur. Það mun því aðeins skila um 400 milljón- um króna í ríkissjóð. Ef það verður hækkað í 300 krónur getur ríkissjóð- ur náð í hátt í einn milljarða króna, sem er aðeins brot af afslættinum. Nærri 10 milljarðar í skattaafslátt Ef áætlanir um fjölda ferðamanna í ár ganga eftir má gera ráð fyrir að virð- isaukaskattur af rekstri gistihúsa verði um 8,4 milljarðar króna en skattur- inn hefði orðið um 18,3 milljarðar króna ef gistihús væru í efra þrepi virðisaukaskattsins. Mismunurinn er um 9,9 milljarðar króna.Ef spár ganga eftir um fjölgun ferðamanna á næstu árum mun þessi meðgjöf með rekstri gistihúsa halda áfram að vaxa. Sé tekið mið af efri mörkum getur skattaaf- sláttur til gistihúsa numið vel yfir 25 milljörðum króna árlega þegar ferða- menn á Íslandi verða orðnir um 5 milljónir á ári eftir nokkur ár. Lægra skattþrep færir ferðaþjónustunni tugi milljarða árlega Fjölgun ferðamanna undanfarin ár hefur verið gríðarleg, hátt í fjórð- ungs viðbót á hverju ári frá 2010. Ljóst er að þessi mikla aukning mun halda áfram í ár og allt bendir til að það sama muni gerast á næsta ári. Sér ekki fyrir endann á vextinum Ef menn gera ráð fyrir sömu fjölgun ferðamanna á næstu árum má gera ráð fyrir að árið 2022 fari fjöldinn yfir 5 milljónir árlega. Ef stjórnvöld hækka ekki virðisaukaskattinn á gistingu fyrir þann tíma má reikna með að árleg eftirgjöf á skatti til hót- ela og gistiheimila verði vel yfir 25 milljarðar króna árlega. Þrátt fyrir að þessi mikli vöxtur virðist ótrúlegur eru dæmi þess að ferðamenn til landa hafi vaxið jafn mikið yfir jafn langt tímabil. Það á til dæmis við um Svartfjallaland, Laos, Georgíu og Kirgistan. Þessari miklu fjölgun ferðamanna hefur fylgt ýmiss vandi og vandamál honum tengd munu vaxa á næstu árum. Ferðamannastraumurinn mun leggja álag á náttúru og inn- viði en líka gengi krónunnar. Hætt er við að gengið munu styrkjast svo að rekstrargrundvöllur undir aðrar atvinnugreinar en ferðamennsku og útgerð muni þurrkast út. Afnám skattaafsláttar til gisti- heimili og hótela er því ekki aðeins réttlætismál heldur getur líka verið skynsöm efnahagsaðgerð til að slá eilítið á offjölgun ferðamanna. Dýr gisting á Akureyri Meðan landsmenn kveinka sér út af leiguokri eru íbúðir boðnar ferðamönnum á verði sem engan hefði dreymt um fyrir nokkrum árum síðan. Þessi 150 fermetra, 3 herbergja íbúð við Bjarmastíg á Akureyri er til að mynda boðin ferða- mönnum til leigu fyrir tæpar 660 þúsund á viku, samkvæmt vefnum Booking.com. Sam- kvæmt heimildum Fréttatímans gæti verð slíkrar íbúðar á fast- eignamarkaði verið um 32 til 34 milljónir miðað við fermetraverð á svæðinu. Miðað við verðið ætti íbúðin að skila tæpum átta milljónum í kassann á einu sumri eða um fjórðungi af verðmæti sínu. Auglýsingin á booking.com Útburður Eigandi Bernhöfts- bakarís segist illa svikinn eftir að Hæstiréttur Íslands samþykkti útburðargerð. „Við erum bara lítið fyrirtæki sem vill fá að vera í friði með sinn rekstur,“ segir Sigurður Már Guð- mundsson, bakari og eigandi Bern- höftsbakarís, en Hæstiréttur Ís- lands samþykkti á miðvikudaginn kröfu eiganda húsnæðis bakarísins á Bergstaðastrætinu um útburðar- gerð. Það þýðir að eigandi húsnæð- isins, sem er eignarhaldsfélagið B13, má bera Sigurð Má út og allar hans eignir sem eru í húsinu. Sigurður Már er vægast sagt ósáttur. Hann reyndi að kaupa hús- næðið á yfirverði, að eigin sögn, eða fyrir um 40 milljónir króna, árið 2013. Hann sakar eigendur hússins um að hafa ekki staðið við gerða samninga og því hafi Sigurður Már greitt leigu fyrir húsnæðið þar til það yrði afhent. Deilt var um það hvort sannarlega hafi samkomulag verið um ótímabundna leigu og svo hvort eigendur hússins, feðgarnir Guðmundur Már Ástþórsson og Ástþór Reynir Guðmundsson, hafi sannarlega sagt leigusamningnum upp með réttmætum hætti. Bernhöftsbakarí hefur verið í miðborginni frá 1834 en hefur ver- ið á Bergstaðastrætinu í rúm 70 ár. „Við erum bara algjört fórnar- lamb í þessu máli. Við vorum svikn- ir af kauptilboðinu. Eigandinn efndi ekki sinn hlut. Það er bara leiðin- legt að fá ekki að vera í friði,“ segir Sigurður Már. Dómari í málinu leit svo á að tilboðið hefði runnið út og niðurstaðan er því einföld; eitt forn- frægasta bakarí landsins er orðið heimilislaust. | vg Segist bara vilja fá að vera í friði með sinn rekstur Sigurður Már Guðjónsson er ósáttur við leigusalann, sem hann segir hafa gengið á bak orða sinna við sölu á eigninni. Eggert hættir á DV – Kolbrún áfram ritstjóri Eggert Skúlason hefur látið af störfum sem rit- stjóri DV. Síðasta blaðið undir hans ritstjórn, kom út í dag, föstudag. Eggert var ráðinn ritstjóri blaðsins ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur þegar Björn Ingi Hrafnsson keypti blaðið í árslok 2014. Kol brún Bergþórs dótt ir og Hörður Ægis son verða áfram rit stjór ar DV. Halla Tómasdóttir hækkar í fylgi og virðist taka nokkuð frá Guðna Th. Jóhannes- syni sem lækkar um tæp 10 prósentustig Halla Tómasdóttir bæt- ir mest við sig af öllum forsetaframbjóðendum í nýrri könnun MMR, sem var birt í gær. Í könnun- inni kemur fram að Halla hækkaði úr 2,2% upp í 6,9% og hækkar því um tæp fimm pró- sentustig. Guðni Th. Jóhannesson er enn með langmesta fylgið þó það minnki um níu prósentustig í könnunni, eða úr 65,9% niður í 56,9%. Davíð Oddsson bætir lítillega við sig, eða úr átján upp í tuttugu prósent. Fylgi Andra Snæs Magnasonar er óbreytt, eða 10,9%. Sturla Jónsson mælist með 2,2% en aðrir frambjóðendur mælast samanlagt með 3,3% fylgi. Halla bætir mest við sig 2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. júní 2016 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 2010 2022 Vsk. Hærra þrep
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.