Fréttatíminn - 03.06.2016, Side 12
vel, en segist hafa átt fremur erf-
iða ævi og vonast til að ná fótfestu
á Íslandi. „Hann var viðskiptavinur
vinkonu minnar sem var vændis-
kona í borginni. Hann er með sína
eigin skrifstofu í Prag enda rekur
hann kaffihús í miðborginni, alveg
eins og í Reykjavík. Ég var þjónn á
veitingastað í miðborginni en átti í
vandræðum þegar ég hitti hann og
hann bauð mér að koma og hitta sig
á skrifstofunni. Hann bauð mér síð-
an vinnu í Reykjavík og lofaði mér
300.000 á mánuði og mér leist bara
vel á það. Við gerðum engan skrif-
legan samning, ég átti að vinna í
þrjá mánuði til reynslu en eftir það
ætlaði hann að gera fastan samning
við mig.“
Áreitti mig stöðugt
Elyna segir að eigandi hótelsins hafi
spurt hvað hún þyrfti mikinn tíma
til að undirbúa sig. Hann hafi síð-
an sent sér flugmiða í tölvupósti.
„Nokkrum dögum seinna, í byrjun
nóvember í fyrra, lenti ég í Keflavík.
Hann tók sjálfur á móti mér á flug-
vellinum og var mjög kurteis. Hann
bauð mér út að borða þegar við
komum til Reykjavíkur og lagði sig
greinilega fram. Ég man að ég var
mjög fegin því það er alltaf svolítið
kvíðvænlegt að fara í nýjar aðstæð-
ur.“
En það átti þó eftir að síga á
ógæfuhliðina þegar líða fór á
kvöldið og hann sýndi á sér nýja
og aðra hlið: „Þegar við komum á
hótelið brá mér mjög mikið þegar
hann sagði að ég yrði að sofa í
sama rúmi og hann. Það rann upp
fyrir mér að hann hélt greinilega
að ég hefði verið í vændi, eins og
vinkona mín sem kynnti mig fyrir
honum. Ég spurði hann hvort ég
gæti ekki fengið mitt eigið herbergi
en hann sagði nei.“
Hún fullyrðir að hún hafi ekki
átt i neinu kynferðissambandi við
hann þrátt fyrir að þau hafi deilt
rúmi í tvo mánuði að kröfu hans.
„Hann reyndi mjög mikið og gerði
mér erfitt fyrir, á hverju einasta
kvöldi. Hann nauðgaði mér ekki
en áreitti mig stöðugt. Ég fékk tíma
fyrir sjálfa mig þegar hann var í
burtu en hann var tíu daga í mánuði
í Prag til að sinna rekstrinum þar
og stundum var hann úti á landi
um helgar. Ég hefði auðvitað átt að
biðja hann oftar um mitt eigið rúm
og vera harðari en ég var hrædd um
að hann yrði reiður.“
Fyllti 200 vatnsflöskur á jóladag
Skömmu fyrir jól kom eigandinn
heim með konu frá Litháen og
þurfti því að nota rúmið. „Ég fékk
loksins mitt eigið herbergi en kon-
an flutti í hjónarúmið. Hótelið fyllt-
ist af ferðamönnum, það var nóg
að gera því ræstingakonan hafði
líka fengið frí og sjálfur var hann
upptekinn með konunni. Eitt af því
sem hann setti mér fyrir var að fylla
plastflöskur með kranavatni til að
selja ferðamönnunum fyrir 400
krónur stykkið. Á herbergjunum
var miði þar sem þeir voru varaðir
við því að drekka vatnið, það væri
Málið er til rannsóknar hjá lögreglu
„Málið er í rannsókn hjá okkur núna,“ segir
Snorri Birgisson rannsóknarlögreglumaður en
eftir að grunur um mansal á Hótel Adam komst
í hámæli lét konan sem átti í hlut sig hverfa
um stundarsakir. Hún gaf hinsvegar skýrslu hjá
lögreglunni á þriðjudag. Hún útskýrir í viðtalinu
við Fréttatímann að hún hafi farið til Prag en
rætt við lögreglu eftir að hún kom til baka.
„Hún hefur mjög áhugaverða sögu að segja
og er að meta með lögreglunni hvaða skref
verða tekin í framhaldinu,“ segir Snorri og
staðfestir jafnframt að hún hafi greint frá fleiri
dæmum sem hún taldi orka tvímælis á vinnu-
staðnum. „Við erum að fá inn á borð til okkar
fjöldann allan af tilkynningum frá almenningi
um ömurlega stöðu erlendra verkamanna hér
á landi. Það hefur orðið mikil vitundarvakning í
þessum efnum eftir þá umræðu sem hefur átt
sér stað.“
Hótel Adam á Skólavörðustíg hef-
ur ítrekað komist í fréttirnar, bæði
fyrir að selja ferðamönnum á hót-
elinu vatn á plastflöskum á okur-
verði undir því yfirskyni að krana-
vatnið væri ekki í lagi og síðast fyrir
vinnumansal, eftir að starfskona
hótelsins frá Tékklandi leitaði til
lögreglu. Hún hafði ráðið sig í góðri
trú til hótelsins fyrir 300 þúsund
á mánuði. Þegar á hótelið kom lét
maðurinn hana sofa við hliðina á
sér í rúmi og nær sex mánuðum síð-
ar hafði hún enn ekki fengið greidd
laun, nema naumt skammtaða vasa-
peninga.
„Ég hitti eiganda Hótels Adam út
í Prag,“ segir konan sem við getum
kallað Elynu en hún vill ekki koma
fram undir nafni í viðtalinu af ótta
við fordóma, þar sem hún vill gjarn-
an vera áfram á Íslandi. Við hittu-
mst á kaffihúsi nálægt hótelinu, hún
er brosmild og reynir að bera sig
Kona frá Tékklandi sem
réði sig í vinnu á hóteli á
Skólavörðustíg í góðri trú,
varð að sofa við hlið vinnu-
veitandans, fékk ekki laun
í sex mánuði og hafði enga
pappíra í höndunum þegar
kom að því að sækja rétt
sinn. Hún segir sögu sína í
Fréttatímanum en áætlað er
að um 400 manns séu í svip-
uðum sporum á Íslandi.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Hann kom
fram eins
og ég væri
einskis virði
Fáum fjöldann allan af
tilkynningum um öm-
urlega stöðu erlendra
verkamanna.
Grunur um mansal á Hótel Adam við Skólavörðustíg er nú á borði lögreglu.
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. júní 2016
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900