Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 09.07.2016, Page 2

Fréttatíminn - 09.07.2016, Page 2
Úr skýrslu Womens Refugee Commission frá febrúar 2016 Í ljósi fjölda umsækjenda um hæli í Sví- þjóð og Þýskalandi gerði WRC sérstaka rannsókn og úttekt á stöðu kvenna í hæl- iskerfum ríkjanna. Niðurstaðan er í grófum dráttum sú að aðbúnaður kvenna sem orðið hafa fyr- ir ofbeldi sé óviðunandi, auk þess sem stefna og framkvæmd ríkjanna setji kon- ur í aukna hættu. Þrátt fyrir að bæði rík- in viðurkenni kynbundnar ofsóknir sem grundvöll fyrir stöðu flóttamanns þurfa konur og stúlkur að rata í gegnum sífellt flóknara laga- og stjórnsýsluumhverfi án fullnægjandi stuðnings. Brottvísun Mæðgurnar Torpikey og Maryam verða sendar aftur til Afganistan þrátt fyrir alvarlega heilsu- kvilla og meingallaða með- ferð í Svíþjóð. Móðirin hefur verið á flótta í fimmtán ár. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Torpikey þjáist af kvíða og svo mik­ illi áfallastreitu að hún er farin að glíma við líkamleg einkenni þess, eins og til dæmis alvarleg minnis­ glöp. Niðurstaða kærunefndar kemur mér því verulega á óvart,“ segir Arndís K. Gunnarsdóttir, lög­ fræðingur hjá Rauða krossinum, en mæðgurnar Maryam Raísi og Torpi­ key Farrash bíða nú eftir að verða sendar til Afganistan eftir ellefu mánaða dvöl á Íslandi. Maryam og Torpikey hafa ver­ ið á flótta í fimmtán ár. Þegar Mar­ yam var fjögurra ára tóku talíbanar völdin í Afganistan og þær neyddust til að flýja Kabúl. Síðan hafa þær ver­ ið á flakki milli Írans og Afganistan. Þegar stríðsherra í Afganistan ætlaði að taka sér Maryam sem konu ákvað Torpikey að flýja til Evrópu. Eftir langt ferðalag komu þær til Svíþjóð­ ar þar sem þeim var neitað um hæli eftir þriggja ára dvöl. Þá fóru þær til Íslands þar sem þeim var neitað um hæli eftir þrjá mánuði. Arndís kærði ákvörðun Út lend­ inga stofnunar til kærunefnd­ ar útlendingamála. „Niðurstaða nefndar innar hefur ekki verið kynnt en þar sem málið er komið til lög­ reglu þýðir það bara eitt; að þær verða sendar aftur til Svíþjóðar og þaðan til Afganistan,“ segir Arndís. Hún segir niðurstöðu Útlendinga­ stofnunar því miður ekki koma á óvart, gríðarlega erfitt sé að fá ís­ lensk stjórnvöld til að veita konun­ um skjól eftir að Svíar hafi ákveðið að vísa þeim þaðan. „Ég tel að þær hafi ekki fengið fullnægjandi lög­ fræðilegan stuðning í Svíþjóð. Þar var þeim synjað um hæli vegna þess að umsókn þeirra er túlkuð þannig að þær séu að „leita að betra lífi“, og þær því skilgreindar sem „efna­ hagslegir flóttamenn“ í leit að leð­ ursófa og flatskjá. Staðreyndin er sú að þær eru í leit að „lífi“. Það er því orðalagið sem verður þeim að falli en opinberar skýrslur sýna að þetta er algengt vandamál í Svíþjóð. Vandamálið er að það verður aldrei viðurkennt hér á landi,“ segir Arn­ dís. Það kemur Arndísi ekki á óvart 2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016 Um ofbeldi gegn konum í Afganistan 87,2% kvenna hafa upplifað annaðhvort and- legt, líkamlegt, kynferðislegt ofbeldi eða hafa verið þvingaðar í hjónaband. 60% kvenna hafa upplifað margskonar ofbeldi. Nauðgun er ekki viðurkennd innan hjónabands. Heimilisofbeldi er ekki viðurkennt sem glæpur. 17,3% stúlkna eru giftar á aldrinum fimmtán til nítján ára. ÚR SKÝRSLU SÞ FRÁ 12. MAÍ 2016 Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 Á R A Grillbúðin AFMÆLISTILBOÐ 39.900 FULLT VERÐ 49.900 Hjólavagn Kr. 14.900 gasgrill 2ja brennara 50 áraAFMÆLISTILBOÐ Þetta frábæra 2ja brennara verðlaunagrill er komið aftur í nýrri útgáfu Opið laugardag 11-16 grillbudin.is Minnislaus af áfallastreituröskun send úr landi af Útlendingastofnun Arndís K. Gunnars- dóttir, lögfræðingur hjá Rauða Krossin- um, batt vonir við að kærunefndin tæki ástand Torpikey til greina. Maryam og Torpikey hafa verið á flótta frá Afganistan frá því að Maryam var fjögurra ára gömul. Mynd | Hari að íslensk stjórnvöld taki, líkt og stjórnvöld í Svíþjóð, ekki til­ lit til óvenju erfiðra aðstæðna afg­ anskra kvenna. Hún batt þó vonir við að kærunefndin myndi snúa ákvörðuninni í ljósi ástands Torpi­ key en Torpikey þjáist af alvarlegum kvíða og er að svo stöddu minnislaus vegna áfalla streitu röskunar. Aðspurð segir Torpikey að henn­ ar bíði ekkert nema dauðinn í Afganistan. Maryam hefur miklar áhyggjur af móður sinni og framtíð­ inni og hefur lítið getað sofið síðustu daga vegna kvíða. „Ég er svo þreytt. Stundum langar mig bara að deyja. Ég hef gert lítið annað en að gráta síðustu daga. Ég skil ekki af hverju það er talað um mannréttindi og kvenréttindi á Vesturlöndum því ég hef ekki upplifað þessi réttindi.“ Landmælingar Íslands vinna í sumar að því að taka nýja mælipunkta í svokölluðu landshnitakerfi fyrir Ísland. Verkefnið liggur til grund- vallar allri kortagerð og landmælingum hér á landi. Jarðskorpuhreyfingar á Ís­ landi eru miklar, enda er landið á flekaskilum Ameríku­ og Evrasíuflekanna. Því er nauðsyn­ legt, til að tryggja nákvæmni í landmælingum, kortagerð og framkvæmdum, að endurmæla reglulega svokallað grunnstöðv­ anet landins. Verkefnið, sem hófst á dögunum, er unnið í samstarfi Landmælinga Íslands og Vega­ gerðarinnar. Auk þess styðja Landsvirkjun og Landhelgis­ gæslan við starfið. Aðeins tvisvar áður hefur þessi grundvöllur landmælinga hér á landi verið mældur með nútíma GPS­ ­tækni. Mælip­ unktarnir eru 123 talsins um allt land, en fyrsta mælingin fór fram á Valhúsahæð á Sel­ tjarnarnesi á dögun­ um. Valhúsahæð hefur verið grunnpunktur í landmæl­ ingum allt frá árinu 1904. Að loknu mælingaferl­ inu í sumar verður gefin út ný viðmiðun fyrir Ísland. Gera má ráð fyrir að bjögun frá því að síðast var mælt (2004) sé 20-25 cm og bjögun frá mælingu þar á undan (1993) sé 40-50 cm, að því er fram kemur á vef Land­ mælinga Íslands. Það er því ljóst að nákvæmni er mikilvæg, bæði við allar mælingar, kortagerð og framkvæmdir í framtíðinni. | gt Ísland mælt upp á nýtt Gera má ráð fyrir að bjögun frá því að síðast var mælt (2004) sé 20-25 cm og bjögun frá mæl- ingu þar á undan (1993) sé 40-50 cm. Býflugur Sífellt fleiri gerast býflugnabændur. „Því miður drapst 65% af öllum býflugnastofninum í landinu þar­ síðasta vetur,“ segir Egill Rafn Sigurgeirsson, formaður Býs, bý­ flugnafélags Íslands. Egill kom til landsins frá Álandseyjum í vik­ unni með 39 kg af býflugum og 26 drottningar. Hann segir ganga frekar illa að halda býflugur á Íslandi en áhugi fólks sé samt mikill. Nýju flugurnar bæti upp búin sem hafi fallið síð­ ustu ár og gott betur en það. Sjálfur er Egill einn af frumkvöðl­ um þessarar ræktunar hér á landi. „Ég flutti heim til Íslands árið 1998 eftir að hafa verið með býflugur í tíu ár og tók þær með heim. Það skemmtilegasta við þetta hobbí er dýrið sjálft og samfélagsmyndunin hjá þeim. Mér finnst langskemmti­ legast að fylgjast með þeim og sjá hvernig þær vinna. Hunangið er bara bónus,“ segir Egill en það vakti athygli blaðamanns að hann var léttlæddur í engum hvítum galla þar sem hann stússaðist með flugurnar. „Þetta eru svo gæfar flugur að það er ekkert að óttast. Þetta er eins og hver önnur ræktun, maður ræktar gæðinga og gæfar flugur.“ | hh „Hunangið er bónus en þetta er samt háklassahunang. Það er hvergi hreinna því hér er lítið sem ekkert sprautað svo þær lifa eingöngu á villiblómum.“ Margrét Lára Viðarsdóttir, lands­ liðskona í fótbolta, sagði í viðtali í þættinum Women's hour á BBC 4 í gær að árangur Íslands í fótbolta skýrist af þjálfuninni. Stelpur og strákar séu frá 5 ára aldri þjálfuð af menntuðum þjálfurum. Núna sé jafnræði í þjálfun beggja kynja og krakkarnir geti valið nánast hvaða íþrótt sem er til að leggja stund á. Þá sé aðstaðan orðin mjög góð. Hægt sé að æfa innanhúss allan ársins hring. | þt Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd­ enta, braut gegn lögum um persónu­ vernd þegar meðlimur Vöku hringdi í nemanda skólans sem er skráður á bannskrá Þjóðskrár Íslands. Hringj­ andi hugðist kynna stefnumál stúd­ entafélagsins fyrir einstaklingnum og segir í málsvörn Vöku að viðkom­ andi hafi líklega fundið númerið á innraneti skólans, Uglunni. Vaka baðst afsökunar á mistök­ unum og baðst afsökunar á að hafa hringt í einstaklinginn. | vg Persónuvernd Vaka hringdi í nemanda á bannskrá Nýjar drottningar til landsins Margrét LáraÞakkar menntuðum þjálfurum

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.