Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 09.07.2016, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 09.07.2016, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 9. júlí 2016 Krúttlegur bær! Jess og Jemma frá London, Englandi: „Við komum fyrir nokkrum dögum en erum í stuttu stoppi á leið til Bandaríkjanna að hitta vini okkar. Þetta er skemmtilegt land og borg. Rosalega ólík London, auðvitað,“ segir Jess. „Síðustu daga fórum við Gullna hringinn en í dag höfum við bara verið að skoða Reykjavík. Krúttlegur bær!“ segir Jemma. Íslenskar konur svo fallegar Chris, Frank og Henry frá Brighton, Englandi: „Við flug- um til Keflavíkur fyrir rúmum tveimur vikum og höfum bara verið hjólandi síðan. Fórum í Þorlákshöfn, Selfoss, Hveragerði og Grindavík. Búin að vera flipp- uð ferð,“ segir Chris. „Okkur finnst íslenskar konur svo fal- legar en það sem hefur komið á óvart er að við erum sólbrennd- ir. Sól á Íslandi! Hverjum hefði dottið það í hug?“ Í annað skipti á Íslandi Florian frá Leipzig, Þýska- landi: „Þetta er annað skiptið mitt hérna. Ég kom hingað fyrir tveimur árum og fannst svo gaman að ég vildi koma aftur. Ég hef aðallega verið að ganga en ég var á Skógum og labb- aði frá Þórsmörk í Land- mannalaugar. Þetta land er mjög ólíkt Þýskalandi og náttúran er engri lík.“ Komu með bílinn til Íslands Camilla, Nils og Tomte litli frá Hamborg, Þýskalandi: „Við komum með Norrænu og byrjuðum því ferðina á Seyðisfirði. Keyrðum síðan norð- urleiðina til Reykjavíkur og fórum á Landsmót hestamanna enda mikið hestafólk. Ég bjó hér og starfaði þegar ég var yngri,“ segir Camilla. Nils tekur til máls: „Við förum með ferjunni heim þannig við keyrum núna suðurleiðina og okkur langar að sjá Jökulsárslón. Erum á bílnum okkar, komum með hann til landsins.“ Fjölmennt stúlknanámskeið á vegum FC Barcelona hófst í gær en um 300 stúlkur sóttust eftir að komast á námskeiðið sem fram fer við Valsheimilið. Um er að ræða átak á vegum Barcelona, en til stendur að fara um Evrópu með samskonar námskeið fyrir stúlkur, en Ísland er fyrsti viðkomustaður- inn í Evrópu. Á meðal leiðbeinanda á nám- skeiðinu er Dagbjört Ína Guð- jónsdóttir, sem er dóttir hand- boltakappans Guðjóns Vals Sigurðssonar, en hún spilaði meðal annars með unglingaliði Barcelona á Spáni. | vg Íslenska kvikmyndin Human Timebombs vann tvenn verðlaun í liðinni viku á kanadísku hátíðinni Neuro Film Festival. Ágústa Fann- ey stendur að gerð myndarinnar en hún vann til verðlauna fyrir Bestu mynd keppninnar og Vin- sælustu myndina, að mati áhorf- enda. Human Timebombs er heim- ildarmynd sem fjallar um hina níu ára gömlu Sunnu Valdísi Sigurðar- dóttur og fjölskyldu hennar við AHC-taugasjúkdóminn sem talinn er flóknasti taugasjúkdómur sem vitað er um. Ágústa hefur auk þess fengið verðlaun fyrir myndina á Accolade Global Fiml Competition í flokknum „Woman Filmmakers“. Myndina er hægt að sjá í Sarpi RÚV til 19. júlí. | bg Mynd | Hari Stúlknanámskeið Barcelona hafið Verðlaun fyrir bestu og vinsælustu myndinaTil sölu Mercedes Bens Actros 1851 dráttarbifreið árg.2007 og malarvagn Schmitz Gotha 3-Achs árg 2012 með segli. Verð 7,6 millj. +vsk. Uppl. vadvik@vadvik.com & sími 8214625. 20-70% sumarmarkaður ellingsen afsláttur af öllum vörum

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.