Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 09.09.2016, Page 46

Fréttatíminn - 09.09.2016, Page 46
„Hún sagði fyrst nei“ Michael Douglas sagði frá því nýlega í viðtali að Catherine Zeta-Jones hafi fyrst neitað honum þegar hann bað hennar. Þau kynnt- ust í Frakklandi árið 1999 og giftu sig í nóv- ember árið 2000 og eru því búin að vera gift í tæp 16 ár. Michael bað Catherine í Aspen á gamlárs- kvöld árið 1999. „Ég bað hennar á þessu kvöldi svo ég myndi ekki gleyma þessu. Við vorum bæði sárlasin með flensu og ég bað hennar um leið og klukk- an sló miðnætti. Hún sagði nei,“ sagði Michael og hló. Michael greindist með krabbamein í hálsi árið 2010 og þá tók við lyfja- og geislameðferð. „Ég hélt ég myndi aldrei fara að vinna aftur,“ sagði Michael en hann hef- ur verið laus við krabbameinið í fimm ár um þessar mundir. Segir Bill Cosby vera hið raunverulega fórnarlamb Verjendur Bill Cosby undirbúa það þessa dagana að verja leikarann fyrir rétti. Hann er ákærður fyrir kynferðislega misnotkun og nauðganir en hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu. Verjendur hans ætla að bera því við að Bill sé hið raun- verulega fórnarlamb í þessu máli og ætla sér að sýna fram á að hann hafi orðið fyrir miklum kynþáttafordómum og ósanngirni í öllu þessu ferli. Lögmaður hans sagði: „Það er kominn tími til að varpa ljósi á það hvernig er búið að koma fram við Bill.“ Tæplega 60 konur hafa komið fram og sagt að Bill hafi gefið þeim ólyfjan og síðan misnotað þær kynferðislega eða jafnvel nauðgað þeim. Aflýsir tónleikum vegna mikils kvíða Zayn Malik, fyrrum meðlimur hljómsveitar- innar One Direction, hefur aflýst tónleikum sem hann ætlaði að halda, í Dúbaí, þann 7. október næstkomandi. Hann sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem sagði: „Ég hef unnið að því síðustu mánuði að vinna bug á miklum kvíða sem ég þjáist af fyrir svona stóra tónleika. Ég hef náð dágóðum bata en ég hef ekki náð mér nógu vel til að koma fram á tónleikunum í Dúbaí í október. Mér er sagt að allir miðar verða endurgreiddir. Mér þyk- ir mjög leitt að bregðast ykkur og vonast til að sjá ykkur öll mjög fljótlega. Ég vil líka þakka öllum aðdáendum mínum um allan heim fyrir stuðninginn. Með ást og virðingu alla tíð, Zayn.“ Búið spil Tom Hiddleston og Taylor Swift eru hætt saman. Tom segist hafa hætt með Taylor Stjörnuparið Tom Hiddleston og Taylor Swift skilið að skiptum. Stjörnuparið Taylor Swift og Tom Hiddleston er skilið að skiptum eft- ir nokkurra mánaða samband. Á ýmsu hefur gengið í stuttu samlífi þeirra og fjölmiðlar fylgdust grannt með hverju skrefi. Nú velta erlendir miðlar því fyrir sér hver ástæða „skilnaðarins“ sé og hver hafi hætt með hverjum. Fyrstu fréttir bentu til þess að Taylor hafi fengið nóg, enda hafi hún ekki nennt þessu „stjörnupars“-veseni. „Tom er frábær náungi en það var ekkert pláss fyrir hann í hennar lífi. Á endanum varð þetta alltof opinbert,“ sagði heimildarmaður The Sun. „Tom elskar sviðsljósið og Taylor fékk nóg af því.“ En þessu hefur nú verið svarað með herferð úr herbúðum Toms, sem einmitt fer á kostum um þessar mundir í sjónvarpsþáttunum Næt- urvörðurinn á RÚV á mánudags- kvöldum. „Þessar fréttir eru kol- rangar og komu vinum Toms í opna skjöldu. Hann fékk nóg af Taylor, því var ekki öfugt farið. Þau uxu hvort frá öðru og það hafði ekkert að gera með sviðsljósið. Það hafði meira með það að gera að Tom á erfitt með að skuldbinda sig og er fljótur að fá leið á samböndum,“ sagði kunningi Toms. …fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016 Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is „Mér finnst voða gaman að heyra hvað Íslendingar hafa tekið vel í þættina. Það er mjög gaman að hafa stuðning af heilli þjóð,“ segir leikkonan Heiða Sigurðardóttir, eða Heida Reed, eins og hún kallar sig erlendis. En á sunnudag hefst á RÚV ný þáttaröð af bresku bún- ingadramaþáttunum Poldark þar sem hún fer með eitt aðahlutverk- anna. Fyrsta þáttaröðin lagðist vel í landann og því má ætla að margir bíði spenntir að sjá hvað drífur á daga persónanna í næstu þáttaröð. Og til að gleðja aðdáend- ur enn frekar þá má segja frá því að tökur á þriðju þáttaröðinni eru hafnar. Þykir vænt um karakterinn Heiða segir gaman að vera komin af stað í tökur aftur, þó hléið á milli annarar og þriðju seríu hafi ekki verið langt. Hún er nú búin að móta sína persónu nokkuð vel og vinnan verður því eitthvað einfaldari. „Ég vann mest í henni til að byrja með þannig nú þarf ég bara að stilla mig inn á henn- ar sjónarmið. Það sem er svo skemmtilegt við sjónvarp er að maður fær að vera svo lengi með karakternum sínum. Og karakt- erarnir fara oft í miklu lengra ferðalag en í bíómynd. Það vegur þungt í því af hverju það er svona gaman að leika í sjónvarps þáttum sem halda áfram,“ segir Heiða sem viðurkennir að sér sé farið að þykja vænt um persónuna sína. Enda telur hún það nauðsynlegt til að túlkunin verði sem best. „Þó maður leiki ekki hetjuna þá verður manni að þykja vænt um sinn karakter. Jafnvel þó fólki finn- ist karakterinn ömurlegur. Karakt- erinn minn í þáttunum er alls ekki fullkominn en ég verð að réttlæta hennar gjörðir og ekki dæma hana fyrir það sem hún gerir.“ Persónulegt og vinnutengt Heiða hefur búið í London í ára- tug og kann vel við sig. Hún getur þó vel hugsað sér til hreyfings á næstunni, þegar hún hefur lokið þeim verkefnum sem framundan eru. „Mér finnst alltaf gaman að breyta til. Ég mun örugglega eyða einhverjum tíma í Banda ríkjunum á næstunni. Það hefur verið á planinu um tíma. Ég er í sambandi með bandarískum strák sem býr í Kaliforníu, þannig það eru bæði persónulegar og vinnutengd- ar ástæður fyrir því að ég stefni á Bandaríkin.“ Ástin og vinnan bíða í Bandaríkjunum Þriðja serían í vinnslu Heiða segir að gaman sé að vera komin aftur af stað við tökur á þriðju seríunni af Poldark. Heiða Rún Sigurðardóttir fer með eitt aðalhlutverkanna í sjónvarps­ þáttunum Poldark en sýningar á annarri þáttaröðinni hefjast á RÚV á sunnudag. Þriðja þáttaröðin er í vinnslu en Heiða horfir til Banda ríkjanna þar sem bæði ástin og vinnan kalla á hana.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.