Fréttatíminn - 09.09.2016, Page 48
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
BARNA-
GLERAUGU
til 18 ára aldurs
frá 0 kr.
Miðast við endurgreiðslu
frá Sjónstöð Íslands.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Hera Hilmars dóttir leikkona er stödd á Íslandi um þessar mundir, en hún var í vikunni viðstödd
frumsýningu á kvikmyndinni
Eiðurinn, þar sem hún fer með eitt
aðalhlutverka. Almennar sýningar
á myndinni hefjast í kvöld. Hera
fer með hlutverk ungrar stúlku,
Önnu Finnsdóttur, sem leiðist út
í fíkniefnaneyslu og tekur saman
við þekktan dópsala. Þegar hún
kynnir nýja kærastann fyrir fjöl
skyldunni ákveður faðir hennar,
sem leikinn er af Baltasar Kor
máki, að taka málin í sínar hendur
og koma henni á réttan kjöl.
Lærði allt um dóp
Hera þurfti að setja sig í ákveðn
ar stellingar fyrir hlutverkið og
leita nýrra leiða til að framkalla
réttar tilfinningar. „Ég tengi við
persónuna á mannlegan hátt en
hef sjálf ekki verið í fíkniefna
neyslu eða upplifað það að vera
háð einhverju svo mikið að það
taki algjörlega yfir líf mitt á þann
hátt sem fíknin hefur gert hjá
Önnu. Ég þurfti virkilega að kynna
mér áhrif allrar fíkniefnaneyslu og
öll mismunandi stig hennar fyrir
hlutverkið; þekkja einstök áhrif
ákveðinna efna, bæði líkamleg og
andleg. Og vita nákvæmlega hvar
Anna var stödd í neyslunni hverju
sinni, á hvaða efnum og hvar
í vítahringnum.“
Fær stundum maníur
Hera segist þó eiga það til að verða
háð vinnunni sinni. „Ég hef rosa
lega gaman af því sem ég geri og
þarf stundum að stoppa mig af í
vinnu. Ég held að það sé til dæmis
ekki auðvelt að búa með mér, eða
vera mikið í kringum mig þegar
ég er djúpt sokkin í verkefni, en
ég er meðvituð um þetta. Maður
er auðvitað alltaf að læra meira
og meira að lifa í einhverju jafn
vægi og vita hvar línan liggur. Ég
get samt dottið í ákveðnar vægar
maníur og þráhyggju, en ég myndi
segja að það væri bara ákveðið
karaktereinkenni. Þær geta þá
bæði tengst vinnu, eins og hlutum
sem ég tel mig þurfa að gera fyrir
hlutverk, en líka bara svona fá
ránlegum hlutum eins og að telja
hvað það komast margir bílar á
milli ljósastaura þegar ég er í bíl
á ferð eða framkvæma ákveðna
seremóníu sem enginn sér nema
ég þegar góðar kvikmyndir enda.
En þegar kemur að vinnunni þá
held ég reyndar að það sé erfitt að
vera leikari án þess að vera með
ákveðna þráhyggju fyrir því sem
maður er að gera. Annars væri
maður ekki að þessu.“
Hera er dóttir Þóreyjar Sigþórs
dóttur leikkonu og Hilmars Odds
sonar leikstjóra og hefur því lifað
og hrærst í leiklistinni alla ævi.
Hún ætlaði sér alltaf að verða leik
kona þó foreldrar hennar væru
ekkert sérstaklega hrifnir af þeirri
hugmynd í upphafi. „Það var ekki
alltaf pössun og ég var því oft með
þeim í einhverju leiklistartengdu.
Mér fannst það mjög skemmtilegt.
Þau voru samt dugleg að benda
mér á að ég gæti algjörlega líka
gert eitthvað annað. En ég held að
það hafi bara gert mig enn spennt
ari fyrir leiklistinni. Af hverju ætti
ég ekki að mega gera það sem þau
voru að gera, fyrst það var svona
skemmtilegt? Þannig að fyrst
þegar ég fór að leika sjálf var ég
svolítið að reyna að sanna mig fyr
ir þeim, eins og svo margir krakk
ar fyrir foreldrum sínum. Og það
tókst bara, held ég. Þau eru miklir
stuðningsmenn í dag.“
Ætlaði alltaf að vera heima
Hera bjó í eitt ár í London á aldr
inum 8 til 9 ára, á meðan móðir
hennar var í námi þar í borg. Hún
heillaðist strax af London og dvöl
in þar hafði mikil áhrif á hana.
„Ég bjó í AusturLondon sem var
þá enn hrárra og blandaðra hverfi
en það er núna. Ég enduruppgöt
vaði algjörlega sjálfa mig þarna
og kynnist krökkum af allskonar
þjóðernum. Ég óx mjög hratt upp
líkamlega sem barn og var ótrú
lega hávaxin á þessum tíma. Ég
upplifði mig allt öðruvísi en allir
í kringum mig. Mér fannst það
mjög merkilegt. Það var svolítið
eins og ég færi í annað hlutverk en
á Íslandi.“
Hera flutti svo aftur til London
þegar hún var 19 ára, eftir að hafa
lokið stúdentsprófi frá Mennta
skólanum í Hamrahlíð. Og þá til
að læra leiklist. „Ég ákvað að fara
til London því ég fann að það var
einhver taug sem togaði í mig.
Draumurinn var alltaf að læra
heima og vera heima, en allt í einu
fannst mér það of nálægt mér og
hugmyndin að fara út ógnvæn
legri á góðan hátt,“ segir Hera sem
var þá búin að leika í nokkrum ís
lenskum kvikmyndum, sjónvarps
þáttum og stuttmyndum. Þar á
meðal kvikmyndinni Veðramót
um sem vakti mikla athygli. „Samt
sá ég ekki fyrir mér að ég væri að
fara að vinna úti beint eftir skóla,
allavega ekki eftir augljósum leið
um. Ég var í rauninni ekki með
neitt plan. Ég ætlaði bara í skól
ann, byrja þar, og svo var ég allt í
einu komin með starf,“ segir Hera
sem hefur búsett í London síðan,
en hún er 27 ára í dag.
Hún var enn í námi þegar hún
fékk fyrsta hlutverkið sitt úti og
þá fór boltinn strax að rúlla. Í kjöl
farið landaði hún meðal annars
hlutverki í sjónvarpsþáttunum
Da Vinci’s Demons, sem varð að
þremur þáttaröðum. „Þetta voru
þrjú ár, sem var svolítið mikill
pakki. Það var mjög gaman og ég
lærði rosalega mikið.“
Það var samt ekki fyrr en Hera
og umboðsmaðurinn hennar
skiptu um umboðsskrifstofu að
hún fór sjálf að hafa meira um það
að segja hvaða verkefni hún tæki.
„Þá losnaði um einhverja orku og
ég ákvað að fara til Los Angeles í
tvær vikur. Hugmyndin var að fara
í frí og taka mögulega einhverja
fundi og ég endaði á því að ráða
þar tvo „managera“ sem ég unnið
með síðan.“
Hollywood ógnvekjandi
Verkefnin byrjuðu fljótlega að
hrúgast inn og frá því í fyrravor
hefur Hera nánast unnið sleitu
laust. Hún hefur landað hverju
hlutverkinu á fætur öðru og sum
eru ansi stór. Má þar helst nefna
aðalhlutverk í kvikmyndinni The
Ottoman Lieutenant sem kemur
út á næsta ári, þar sem hún leikur
á móti ekki verri mönnum en Josh
Harnett og Ben Kingsley, og stórt
hlutverk í An Ordinary Man sem
kom í kjölfarið.
„The Ottoman Lieutenant var
fyrsta leiðandi hlutverk mitt í
amerískri mynd, þar sem ég leik
Ameríkana. Ég held ég hafi aldrei
verið jafn hrædd við neitt hlut
verk áður. Ég pældi í alvörunni í
því í örskotsstund hvort ég ætti
að taka verkefnið. Hvort það væri
kannski betra að stoppa áður en
ég færi að standa mig illa. Ég var
mjög hrædd um að ég yrði ekki
nógu góð og það voru leikarar
viðloðandi myndina sem ég hafði
þekkt frá því ég var barn. Átti að
vera manneskjan sem leiddi þessa
mynd? Josh Hartnett leikur til
dæmis á móti mér og þegar ég var
krakki var hann gaurinn sem allir
voru skotnir í. Ég vissi að hann
átti að leika annan gaurinn í ást
arþríhyrningi með mér. Var hann
að fara að samþykkja það? Þar að
auki var ég með komplexa gagn
vart hreimnum því ég hafði aldrei
leikið Ameríkana áður. Þetta var í
rauninni hreinræktuð Hollywood
mynd og það var ógnvekjandi. En
svo fór ég og gerði þetta. Kláraði
verkefnið og bara gat það.“
Er að hreinsa hausinn
Þrátt fyrir að verkefnið væri virki
lega skemmtilegt var það líka
mjög krefjandi og erfitt. Mögu
lega það erfiðasta sem hún hefur
tekist á við. „Þá aðallega af því ég
þurfti að takast á við hræðsluna
í sjálfri mér. Tökurnar voru samt
ansi strembnar líka. Ég held ég
hafi aldrei unnið jafn mikið á ævi
minni. Þetta voru fjórir mánuð
ir og ég vann alla daga, þó svo
við leikstjórinn yrðum fárveik í
tvær vikur. Vinnudagurinn var að
minnsta kosti 15 tímar, alla daga
vikunnar, og þeir dagar sem áttu
að vera frídagar fóru í strangar
reiðæfingar og hreimatíma. En ég
gat þetta og núna finnst mér ekk
ert mál að gera það sem hræddi
mig svo mikið þarna fyrir ári.“
Út frá þeirri mynd fékk hún svo
hlutverk í kvikmyndinni An Ord
inary Man, þar sem hún leikur á
móti Ben Kingsley enn á ný, en það
var einmitt hann sem benti leik
stjóranum, Brad Silberling, á hana
eftir vinnu þeirra í The Ottoman
Lieutenant.
Eftir það lá leiðin til Indlands.
„Ég var þar að leika í mjög merki
legri mynd, aðallega þar sem þetta
var fyrsta myndin sem var form
lega unnin í fullkomnu samstarfi á
milli Indlands og Hollywood. Við
erum við að tala um tvo gjöró
líka heima. Þetta var fyrsta mynd
leikstjórans en hann er hálfur
Ameríkani og Indverji, sem hjálp
aði að brúa heimana. Það verður
áhugavert að sjá hvað kemur út úr
henni.“
Verkefnin síðasta árið hafa verið
töluvert fleiri en hér eru upp
talin, en nú er hún í smá fríi til að
hreinsa á sér hausinn, eins og hún
orðar það sjálf. „Maður brennur
svo fljótt út ef maður keyrir sig
endalaust áfram og það kemur
niður á öllu sem maður gerir. Ég
þarf líka að eiga líf og hafa tíma
til að vinna úr hlutum í lífinu. Það
hefur mikil áhrif á mann að vinna
í mörgum verkefnum í mismun
andi löndum á stuttum tíma. Það
getur verið ansi lýjandi þó það sé
líka gefandi. Svo er ég byrjuð að
skoða nokkur verkefni sem gætu
hafist seinna í haust og byrjun
næsta árs.“
Í ástarþríhyrningi með Josh Hartnett
Hera leikur aðalhlutverkið í bandarísku kvikmyndinni The Ottoman Lieutenant sem kemur út á næsta ári. Hún var mjög
hrædd við hlutverkið í byrjun og spáði í að taka það ekki. Hún óttaðist að standa sig ekki nógu vel á móti þekktum
leikurum og var með komplexa yfir hreimnum sínum.
Skoðar ný verkefni Hera er nú aðeins að hvíla sig eftir langa og erfiða vinnutörn. En hún er engu að síður farin að skoða ný verkefni sem
gætu hafist síðar í haust. Mynd | Rut