Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 61

Fréttatíminn - 09.09.2016, Qupperneq 61
Horfirðu mikið á sjónvarp? „Ég náði að fylgjast með fleiri sjónvarpsseríum áður en ég uppgötvaði hlaðvarpið. Finnst nú orðið skemmtilegra að leggjast upp í rúm og hlusta á hlaðvarpsþátt þegar ég kem heim úr vinnunni. Svo lítil fyrirhöfn í því að liggja bara og hlusta. Jú, jú, ég reyni nú samt að fylgjast með því sem ég er spennt fyrir.“ Hvers konar sjónvarpsefni er í uppáhaldi? „Raunverulegir sjónvarpsþættir. Athuga: Ekki raunveruleikasjónvarp, raunverulegir sjónvarpsþættir. Þættir á borð við Transparent, Girls, Broad City og Honorable Woman. Nú þegar ég segi það þá eru þetta allt þættir með raunverulegum og sterkum kvenpersónum. Það er greinilegt að ung mannleg kona sækist í það að horfa á aðrar ungar mannlegar konur. Mikilvægi fyrirmynda, ha! Annars horfi ég mest á heimildarmyndir og finnst afar heillandi þessi þróun sem er að eiga sér stað hvað varðar heimildarmynda sjónvarpsþætti. The Jinx og How To Make A Murderer eru dæmi um heimildarmyndaefni sem er brotið upp í nokkra sjónvarpsþætti og gert mjög vel að mínu mati. Annars er Sex And The City tímalaus snilld. Skrif þáttanna eru enn betri en mig minnti í æsku.“ Hvaða þætti/sjónvarpsefni hefurðu horft mest á að undanförnu? „Mér finnst Jill Soloway gera besta sjónvarpsefnið í dag. Þættirnir Transparent eru það allra besta sem ég hef séð í mörg ár. Ég horfði nýlega á pilot þátt sem hún gerði, byggðan á bókinni I Love Dick, og hann var frábær. Sögurnar sem hún skrifar eða velur eru frumlegar, fallegar, mannlegar en svo er kvikmyndatakan og klipping líka mjög heillandi.“ Sófakartaflan Anna Gyða Sigurgísladóttir, annar umsjónarmanna Lestarinnar á Rás 1. Raunverulegir sjónvarpsþættir í uppáhaldi Hinsta strippið Stöð 2 kl. 22.10 Magic Mike XXL Þrjú ár eru nú liðin síðan Magic Mike, sem er sem fyrr leikinn af glæsimenninu Channing Tatum, ákvað að segja skilið við strippdansferilinn og þar með félaga sína í The Tampa Kings- dansflokknum. Þeir hafa hins vegar haldið áfram að dansa en fundið um leið fyrir því að aðalstjörnuna vantar. Þegar í ljós kemur að félagar Mikes í The Tampa Kings eru að hugsa um að draga sig í hlé líka ákveða þeir allir að gera það með slíkum stæl að eftir verði tekið. Hópurinn semur því ný dansatriði og heldur áleiðis til Myrtle Beach í Suður-Karólínu þar sem þeir setja á svið sýningu sem slær allar aðrar strippsýningar út í gæðum og fjöri. Með önnur hlutverk fara m.a. Elizabeth Banks, Amber Heard og Jada Pinkett Smith. Jaws-maraþon Netflix Allar Jaws-myndirnar Nú er hægt að renna sér í gegn- um allar fjórar Jaws-myndirnar á Netflix, hafi fólk þar til bæran aðgang. Fyrsta Jaws-myndin var frumsýnd árið 1975 og naut fá- dæma vinsælda. Hún var byggð á skáldsögu frá árinu á undan og það var Steven Spielberg sem leikstýrði. Jaws gat svo af sér þrjár framhaldsmyndir, þemagarð og ótrúlegasta varning. Jaws 2 kom út 1978, Jaws 3 árið 1983 og Jaws: The Revenge árið 1987. Hugljúft ferðalag Hringbraut kl. 21 Ferðalag keisaramörgæsanna Margverðlaunuð mynd um líf keisaramörgæsanna og lífsbar- áttu þeirra. Einstaklega falleg og hugljúf mynd eftir leikstjórann Luc Jacquet frá árinu 2005. Horfi mest á heimildarmyndir Anna Gyða er hrifin af þáttum á borð við How To Make a Murderer. Mynd | Hari Nú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: “Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.” www.versdagsins.is VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA og ÁREIÐANLEIKI Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is VÍKURVAGNAR EHF MIKIÐ ÚRVAL AF KERRUM FYRIR IÐNAÐARMENN OG VERKTAKA …sjónvarp17 | amk… FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.