Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016 sushisamba.is HOT MAGURO RÚLLA Ljúffengar rækjur, gómsætur túnfiskur, mjúkt avókadó, spicy jalapeno mayo og kimchee ... fáránlega góð! Djúsí Sushi Líkamsárás Maðurinn sem höfuðkúpubraut föður sinn á Höfn í Hornafirði fyrir viku hefði átt að sitja í fangelsi vegna annarra mála, en var á biðlista eftir fangelsisvist. Lögregla segir grafalvarlegt að tafir séu á að brotamönnum sé stungið inn. Íbúar á Höfn voru skíthræddir við árásarmanninn. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Koma hefði mátt í veg fyrir lík- amsárásina á Höfn í Hornafirði því árásarmaðurinn var nýlega dæmd- ur til tveggja mánaða fangelsisrefs- ingar fyrir önnur brot. Hann var á biðlista eftir fangelsisvist. Auk þess hefur hann verið ákærður fyrir fíkniefnaræktun og verður það mál tekið fyrir hjá héraðsdómi Austur- lands. Maðurinn er 32 ára gamall og réðist lífshættulega að föður sínum þann 17. nóvember. Lögregla var kölluð að heimili feðganna á Höfn í Hornafirði og var faðirinn þá svo illa leikinn eftir soninn að hann var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu. Maðurinn hafði lamið föður sinn ítrekað í höfuðið svo höfuðkúpan brotnaði og tvísýnt er um sjón hans. Hann er þó ekki í lífshættu. Vegna áverkanna var faðirinn ekki í líkam- legu ástandi fyrir yfirheyrslu fyrr en í gær, en hún fór fram á Landspítal- anum. Árásarmaðurinn gengst við brot- unum og faðir hans hefur fengið skipaðan réttargæslumann til að gæta hagsmuna sinna, enda talið að um alvarlegt heimilisofbeldi sé að ræða. Íbúar á Höfn lýsa í samtölum við Fréttatímann að mikil ógn hafi staf- að af manninum, sérstaklega þegar hann var undir áhrifum vímuefna. Hann á áralanga sögu um ofbeldi, fíkniefni og þjófnað og hefur lög- regla þurft að hafa afskipti af hon- um margoft. Samkvæmt heimildum Frétta- tímans var manninum stungið inn á Litla-Hraun strax eftir árásina og hefur því formlega hafið afplán- un á eldra máli. Hann bíður nú dómsmeðferðar á fíkniefnaræktun og auk þess má búast við að hann verði ákærður fyrir alvarlega líkams- árás á föður sinn. „Það er grafalvarleg staða að fólk sé á biðlistum eftir afplánun. Bæði er það slæmt fyrir fólkið sjálft, að fá ekki að klára sín mál, og svo er það alvarlegt þegar um er að ræða brotamenn sem eru varasamir um- hverfinu,“ segir Elís Kjartansson, lögreglufulltrúi rannsóknardeildar á Suðurlandi. Árásarmaðurinn á Höfn hefði átt að vera í fangelsi Elís Kjartansson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, segir alvarlegt að dæmd- um mönnum sé ekki stungið inn. Afar líklegt er að sýknudómi yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Aurum-málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar Íslands. Ásgeir Magnússon segir að bygging hótelsins sé hluti af mikilli uppbyggingu í Vík. Landhelgisgæslan þurfti að sækja föður árásarmannsins. Hann var höfuðkúpu- brotinn eftir árásina. Mynd | LHG Viðskipti Xinglin Zu, sem vill byggja 100 herbergja hótel í Vík í Mýrdal, gefur ekki upp nöfn með- fjárfesta sinna og segir viðskiptin vera trúnaðarmál. Ferðaþjónustu- fyrirtækið, sem sækir um lóðina í Vík, var stofnað í fyrra en var með litlar tekjur. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is „Hvar fékkstu þessar upplýsingar? Þetta á að vera trúnaðarmál eins og er. Á þessu augnabliki vil ég ekkert segja um verkefnið,“ seg- ir Xinglin Zu, kínverskur fjárfestir sem hefur verið búsettur á Íslandi um nokkurra ára skeið, sem hyggst reisa 100 herbergja hótel í Vík í Mýr- dal. Xinglin rekur ferðaþjónustufyr- irtæki á Íslandi sem heitir 9xing ehf. og hefur þetta fyrirtæki sótt um leyfi hjá bæjaryfirvöldum í Vík í Mýrdal til að reisa hótelið. Fréttastofa RÚV sagði frá því þriðjudaginn að um- sókn um bygginguna hefði borist frá Xinglin. Fjárfestirinn vill ekki svara því hvort einhverjir aðrir séu með honum í fjárfestingunni. Bygging hótelsins mun kosta á bilinu einn til einn og hálfan millj- arð króna ef af henni verður, að sögn Ásgeirs Magnússonar, sveitar- stjóra í Vík í Mýrdal. „Hann segir í sinni umsókn að fleiri muni koma að þessu með honum í framhaldinu ef af verður. Mér dettur ekki í hug að hann taki þessa peninga undan koddanum.“ Ferðaþjónustufyrirtæki Xinglins var stofnað í fyrra en ekki var mik- ill rekstur í því það árið, samkvæmt ársreikningi þess. Fyrirtækið seldi þjónustu fyrir einungis 165 þúsund krónur og tapaði 178 þúsundum. Einu eignir félagsins voru rúmlega Leynd yfir fjárfestingum Kínverja í Vík í Mýrdal Kínverskur fjárfestir, sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, vill byggja 100 herbergja hótel í Vík í Mýrdal. Fjárfestirinn vill ekki gefa upp hverjir standa að verkefninu með honum. Umsvif kínverska ríkisins á Íslandi hafa einnig aukist talsvert á liðnum árum og má meðal annars nefna fjárfestingu í nýju og miklu stærra sendiráði við Skúlagötu í Reykjavík sem vakti alþjóðlega athygli árið 2012. Sérfræðingur um málefni Grænlands, Damien Degeorges, spurði meðal annars að því í blaðinu International Herald Tribune hvort aukin umsvif Kína á Íslandi tengdust áhuga þeirra á að komast til áhrifa á Grænlandi og norðurslóðum og minntist hann á komu ísbrjótsins Snædrekans til Íslands um sumar- ið 2012. „Sveitarstjórn Víkur tók um- sókn 9xing ehf. fyrir á fundi sínum á fimmtudaginn en Fréttatíminn fékk ekki upplýsingar um niður- stöðu fundarins áður en blaðið fór í prentun. “ 320 þúsund króna hlutafé og það skuldaði sjö þúsund krónur. Ljóst er að fyrirtækið hefur varla fjár- hagslegt bolmagn, miðað við þess- ar tölur, til að ráðast í fjárfestingu í hóteli upp á einn til einn og hálfan milljarð króna. Mikil sprenging hefur orðið í komu kínverskra ferðamanna til Íslands á liðnum árum og fór fjöldi þeirra til dæmis úr rúmlega 26 þús- und árið 2014 og upp í tæplega 48 þúsund í fyrra og gæti Xinglin með- al annars verið að horfa til þessa. Dómsmál - Lárus Welding og Magnús Arnar dæmdir í Aurum- málinu. 18 af 20 hrunmálum hefur verið áfrýjað til Hæstarétt- ar Íslands. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Yfirgnæfandi líkur eru á því að sýknudómi yfir Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni í Aurum-málinu verði áfrýj- að til Hæstaréttar Íslands. Í átján af þeim tuttugu málum sem embætti héraðssaksóknara, áður sérstaks saksóknara, hefur höfðað vegna efnahagsbrota sem tengdust hrun- inu hefur niðurstöðu héraðsdóms verið áfrýjað til Hæstaréttar. Dóm- ur féll í málinu í gær, fimmtudag. Saksóknarinn í málinu, Ólafur Hauksson, krafðist fjögurra ára fangelsisvistar yfir Jóni Ásgeiri í málinu sem snýst um sex milljarða króna lánveitingu út úr Glitni um sumarið 2008. Lánið var notað til að kaupa bresku skartgripakeðjuna Aurum af eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, Fons ehf., og rann einn milljarður af peningunum til félags í eigu Jóns Ásgeirs. Jón Ás geir var einn stærsti hluthafi Glitnis á þessum tíma og beitti hann áhrif- um sínum innan bankans til að fá Lárus Welding bankastjóra til að veita lánið. Lárus Welding var hins vegar dæmdur í fangelsi í eitt ár í málinu sem og Magnús Arnar Arngríms- son, sem var framkvæmdastjóri fyr- irtækjasviðs Glitnis, en hann hlaut tveggja ára dóm. Bjarni Jóhannes- son var einnig sýknaður í málinu, eins og Jón Ásgeir. Ólafur Hauksson segir í sam- tali við Fréttatímann að hann geti ekki tjáð sig um hvort málinu verði áfrýjað þar sem embætti ríkissak- sóknara taki ákvörðun um það. Hann vill heldur ekki tjá sig um dóminn í málinu almennt séð. Miðað við fyrri dóma í málum sem tengjast hruninu má hins vegar nánast fullyrða að því verði áfrýjað. Yfirgnæfandi líkur að saksóknari áfrýi sýknudómi Jóns Ásgeirs Stjórnmál Stjórnmálaforingjar reyna að finna flöt á samstarfi á milli flokka, en það glittir í stjórnarkreppu vegna tregðu við að mynda ríkisstjórn. „Ég hef ekki setið á neinum leyni- fundum,“ segir Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, en þreifingar voru á Alþingi í gær um myndun ríkisstjórnar eftir að það slitnaði upp úr viðræðum flokk- anna fimm á miðvikudaginn. Þá herma heimildir að Framsókn sé algjörlega út úr myndinni þar sem Píratar hafa útilokað samstarf við flokkinn með afgerandi hætti. Það þýðir að möguleikunum fækkar verulega og snúið að mynda ríkis- stjórn á vinstri vængnum. Eftir því var tekið að Benedikt Jóhannesson fór einn á fund með Katrínu Jakobsdóttur og tilkynnti um að hann teldi ekki grundvöll fyrir samstarfi á miðvikudaginn en Óttar segir ekkert hafa breyst þeirra á milli. Nokkur óvissa ríkti á göngum Alþingis í gær, en Brynjar Níels- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins sagði um stöðuna í gær: „Það er allsherjarþukl í gangi.“ Formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson, sagðist ekki hafa rætt við aðra formenn í gær og að hugmyndir um viðræður á milli VG, Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingarinnar væru lítið annað en hug- myndir á þessu stigi. Samkvæmt heimildum Fréttatím- ans stóð til að halda þingflokksfund í gærkvöldi hjá VG, þar sem næstu skref væru ákveðin. Meðal annars hvort það ætti að skila umboðinu. | vg Allsherjaþukl á þingi Óttarr Proppé segir ekkert hafa breyst á milli Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Mynd | Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.