Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 76

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 76
Flatahraun 5A, Hfj. | Jökla Laugavegi 90 Rvk. info@blacksand.is | www.blacksand.is | 896 8771 Íslensk hönnun OPIN VINNUSTOFA Afsláttur föstudag og laugardag milli 12-17 Flatahraun 5A, Hfj Nýjar og eldri vörur með afslætti. Fatnaður, púðaver ofl. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Snædís Rán Hjartardótt-ir er á öðru ári í stjórn-málafræði við Háskóla Íslands. Hún er með sam-þætta sjón- og heyrnar- skerðingu, ásamt því að vera bund- in við hjólastól. Hún þarf aðstoð við allar daglegar athafnir og notar þjónustu táknmálstúlks í kennslu- stundum Hún notfærir sér svokall- aða NPA þjónustu, eða notenda- stýrða persónulega aðstoð, sem er enn í þróun og á eru miklir vankant- ar, sem meðal annars hindra hana í að sinna náminu sem skyldi, þrátt fyrir að hún sé bráðgreind og mjög áhugasöm um námsefnið. Blaðamaður hittir Snædísi og Mar- gréti Baldursdóttur túlk í aðgengis- setrinu, sérstöku herbergi niðri í Há- skóla, þar sem hún hefur aðstöðu til þess að vinna verkefni. „Mér finnst námið mjög skemmti- legt en ég á stundum erfitt með að sitja á mér í tímum því ég er svo rót- tæk,“ segir Snædís og hlær, en hún er mjög pólitísk og með sterkar skoð- anir, sérstaklega í jafnréttismálum. Hún á sérstaklega erfitt með að sitja á sér í tímum hjá Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni, enda eru skoð- anir þeirra yfirleitt á öndverðum meiði. „Ég held reyndar að hann sé ekki þess virði að þræta við. Það er líklega betra að læra sjálfur heima heldur en að taka allt gilt sem hann segir.“ Hindranir við heimanámið Snædísi sækist námið vel og á auð- velt með að vinna verkefni í skólan- um, en þegar kemur að því að læra heima rekst hún á hindranir. „Hún er toppnemandi, en þar sem hún getur ekki notað hendurnar þarf starfsfólk NPA þjónustunnar að að- stoða hana við heimanámið, og það hefur reynst erfitt að ráða starfs- fólk, sem er dapurlegt. En Háskóli Íslands er með mjög einstaklings- miðaða þjónustu,“ útskýrir Margrét. Hún segir Háskóla Íslands standa framarlega þegar kemur að því að veita fötluðum þá þjónustu sem þeir þurfa til að geta sinnt náminu. Til að mynda er Snædís með vinnustundir í aðgengissetri þar sem hún vinnur verkefni með túlki. „Ég fæ túlka í tímum og í ýmsum aðstæðum tengdum náminu. Það er engin hindrun á túlkaþjónustu við háskólann og námsráðgjöfin þjón- ar mér mjög vel. En hindranirnar í daglegu lífi eru miklar. Ég þarf oft að standa í veseni í tengslum við NPA þjónustuna. Undanfarið hef- ur verið mikill skortur á starfsfólki og samkeppni um vinnuafl. Þannig ég hef leitað út fyrir landsteinana og ráðið erlent starfsfólk. Svo geta komið upp flækjur varðandi laun, því það eru oft til minni peningar en kjarasamningar gera ráð fyrir að séu borgaðir fyrir vinnuna. Sem þýð- ir að ég þarf kannski að skera niður næsta mánuð ef ég hef notað þjón- ustuna mikið. Samkvæmt samn- ingi á ég rétt á þjónustu allan sól- arhringinn, en sá samningur tekur ekki mið af kjarasamningi, heldur einhverri óskhyggju um hvað það ætti að borga á tímann.“ Háskólinn er draumaland Margrét segir það hafa gengið upp ofan hjá Snædísi að læra heima á þessari önn vegna þess að hún hef- ur ekki haft fulla mönnun í NPA þjónustunni. En HÍ hefur komið á móts við það með því að gera henni kleift að sitja aukatíma, með túlki, í aðgengissetrinu til að vinna verk- efni. Sjálf tekur hún þessu af miklu æðruleysi þó vissulega það geti ver- ið þreytandi að þurfa að stóla á aðra með þessum hætti. „Það hefur gengið ágætlega en mig vantar ýmislegt upp á. Ég hef oft þurft að treysta á mömmu og pabba. Þá hef ég þurft að fresta verkefnum af því ég þarf að bíða eftir rétta að- stoðarmanninum,“ segir Snædís. Háskólinn er sem betur fer sveigj- anlegur í þessum efnum og það hef- ur því ekki komið niður á einkunn- um Snædísar ef verkefni hafa tafist af þessum orsökum. „En það er mjög óþægilegt að geta ekki skilað á réttum tíma. Það þýðir bara lengra stresstímabil fyrir mig,“ segir Snædís og Margrét grípur orðið. „NPA þjónustusamningurinn býður heldur ekki upp á að Snædís geti óskað eftir starfsfólki sem býr yfir ákveðinni kunnáttu, á tölvur til dæmis. Það er svo sorglegt að það hamli svona greindum einstaklingi. Ef allt kerfið væri eins og námsráð- gjöfin hérna í HÍ þá væri ekkert vandamál. Ef Snædís byggi bara í Örlög mín eru að fara á þing einn daginn Snædís Rán er nemandi á öðru ári við stjórnmálafræði í HÍ. Hún er rammpólitísk og liggur ekki á skoðunum sínum, sérstaklega ekki í tímum hjá Hannesi Hólmsteini. Það sem hindrar Snædísi hins vegar í náminu er skortur á aðstoð við heimaverkefni, sem NPA þjónustunni gengur illa að skaffa. skólanum og fengi alla þjónustu hér, þá væri það mjög fínt,“ segir Mar- grét og túlkar á sama tíma fyrir Snæ- dísi. Þær skella báðar upp úr. Snæ- dís er sammála, skólinn er hennar draumaland. Getur bara verið til á virkum dögum Utan skólatíma fær Snædís oft ekki svör fyrr en á síðustu stundu hvort túlkur fæst fyrir hana þegar hún þarf á því að halda. „Það er leiðin- legt að standa í því. Ef ég vissi með meiri fyrirvara að ég fengi ekki túlk þá gæti ég leitað annað eða reynt að færa til það sem ég þarf að gera,“ seg- ir Snædís en það getur verið erfitt að fá túlka utan skrifstofutíma. „Það er auðvitað alls ekki alltaf hægt að færa það sem ég þarf að gera yfir á virka daga fyrir klukkan fjögur,“ bætir Snædís við, hún skrifaði einmitt fær- slu á facebook um daginn, hálfgerða ádeilu, þar sem hún sagðist bara geta verið til á virkum dögum á milli átta og fjögur eða níu og fimm. Og helst ekki á sumrin. Í sumar, þegar Snædís fór á ráð- stefnu í útlöndum, þá þurfti hún að hafa með sér heimatilbúna túlka, en til samanburðar þá var danskur strákur á ráðstefnunni með fjóra fag- lærða túlka með sér. Snædís þekkir þó ekki nógu vel til kerfisins í Dan- mörku til að vita hvernig þessum málum er háttað þar. En miðað við upplifun hennar af ráðstefnunni má ætla að þjónustan sé þróaðri þar. Ef Snædís þarf svo á meiri þjón- ustu að halda en fjármagn er til fyrir, eða ef starfsfólk fæst ekki, þá þarf hún að borga úr eigin vasa eða redda sér aðstoðarfólki sjálf. En hún greiddi til dæmis sjálf laun fyrir starfsfólkið á ráðstefnunni. „Ég þarf að hugsa mig um hvort ég tími að borga hitt og þetta og spái stund- um í því hvort ég eigi að fara með skuldina niður í ráðuneyti.“ Fór í mál við ríkið Snædís höfðaði mál gegn Samskipta- miðstöð heyrnarlausra og heyrnar- skertra og íslenska ríkinu árið 2014 vegna þess að henni var synjað um endurgjaldslausa túlkaþjónustu, þegar peningar úr túlkasjóðnum voru uppurnir. Hún vann málið, lagði íslenska ríkið, sem var dæmt til að greiða henni miskabætur. Hún segir ríkið hins vegar ekki hafa tekið við sér í kjölfar dómsins, því lítið hef- ur breyst hvað þjónustuna varðar. „Af því það er ekki nægt framboð á fólki og fjármagni, þá þarf til dæmis að forgangsraða túlkapöntunum eft- ir mikilvægi, en ég veit ekki hvern- ig það er gert því það er ekki þeirra ákveða að eitt verkefni sé mikil- vægara en annað. Fólk hlýtur að vita það best sjálft hvað er mikilvægt,“ segir Snædís og það er augljóst að henni svíður óréttlætið. „Þetta kerfi er reyndar í þró- un og ég vona að þetta fari að lag- ast bráðum. NPA samningurinn er bara tilraunaverkefni ennþá þannig það þarf að endurnýja hann einu sinni á ári og stundum oftar. Stund- um koma upp flækjustig. Eins og þegar það var ekki hægt að endur- nýja hann að fullu því það vantaði fjármagn. Hann var bara endurnýj- aður til þriggja mánaða. Núna veit ég til dæmis ekki hvort það tekst að endurnýja hann fyrir áramót því það koma ekki svör frá ráðuneytinu,“ segir Snædís sem lifir því í raun í stöðugri óvissu, eins og málum er háttað í dag. Fyrst menntun svo pólitík Þar sem við erum staddar aðgengis- setrinu, umkringdar tölvum, ákveða Snædís og Margrét að sýna blaða- manni hvernig þær vinna verkefni saman á tölvu þegar líður á viðtalið, en Snædís getur lesið sjálf af tölvu- skjá þegar letrið hefur verið stækk- að mjög mikið. Hún leiðbeinir að- stoðarmanni hvað gera skal og gefur fyrirmæli um hvað eigi að skrifa því hún getur ekki skrifað sjálf á lykla- borðið. Margrét segir Snædísi algjöran snilling í að gefa munnleg fyrirmæli. „Þetta er sérstakur hæfileiki en ég veit ekki hvort hann er meðfædd- ur eða hún hefur þróað hann með sér. Ég get þetta ekki. Hún stýrir mér fullkomlega með orðum og ég er eins og vélmenni,“ segir Margrét og brosir. „Ég er alveg „foolproof“,“ bætir Snædís kímin við. Hún sér fyr- ir sér að læra eitthvað meira þegar hún hefur lokið stjórnmálafræði- náminu, en segir það verða erfitt að velja eitthvað eitt til að sérhæfa sig í. Þá heillar pólitíkin hana líka. „Ég held að það séu örlög mín að fara á þing einn daginn. Ég er reynd- ar ekki búin að ákveða fyrir hvaða flokk. Það er best að vera óflokks- bundin fyrst um sinn. Ég veit það allavega fyrir víst að ég geng hvorki í Sjálfstæðis- né Framsóknarflokk- inn,“ segir Snædís en hún hefur verið mjög virk í hagsmunabaráttu síðustu árin og er meðal annars for- maður Fjólu, félags fólks með sam- þætta sjón- og heyrnarskerðingu. „Ég ætla samt að klára að mennta mig áður en ég fer út í pólitík. Ég vil geta verið málefnaleg. En ég á örugg- lega oft eftir að springa á leiðinni, allavega í þessu námi,“ segir hún og hlær. En Snædís á líka önnur áhugamál. „Mér finnst mjög gaman að gróður- setja og rækta tré. Það er eitt af mín- um helstu áhugamálum yfir sumar- ið. Mér finnst líka gaman að borða. Annars er ég alltaf með þráhyggju fyrir einhverju og sökkvi mér ofan í hluti. Svo kemur það fyrir að ég er í einhverjum aðstæðum þar sem vitneskja mín kemur sér vel,“ segir Snædís og Margrét hlær. Hún kann- ast við þráhyggjuna í Snædísi og seg- ir hana vita ótrúlegustu hluti. Frábær þjónusta í HÍ Snædís fær alla þá þjónustu sem hún þarf til að geta stundað nám sitt innan veggja Háskóla Íslands. Öðru máli gegnir um aðstoð sem hún þarf utan skólatíma. Mynd | Hari Ég á rétt á þjón- ustu allan sólar- hringinn, en sá samn- ingur tekur ekki mið af kjarasamningi, heldur einhverri óskhyggju um hvað það ætti að borga á tímann. …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2016 Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.