Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 84

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 84
 kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ alla föstudaga... Farðu til Dalvíkur Skíðasvæðið á Böggvisstaðafjalli við Dalvík verður opið um helgina, fyrst skíðasvæða á Íslandi þennan veturinn. Skundið norður! Ætlar ekki að standa þögul hjá Leah Remini neitar að láta Vísindakirkjuna þagga niður í sér. Robbi Kronik snýr aftur Athafnamaðurinn Róbert Aron Magnússon er fluttur aftur til Íslands eftir áralanga dvöl í London þar sem hann vann meðal annars að uppgangi Hamborgara- búllu Tómasar. Heimkoma Robba boðar gott fyrir aðdáendur hip hops því nú hefur verið tilkynnt að útvarpsþátturinn Kronik hefji göngu sínu á ný á X-inu eftir um tíu ára hlé. Kronik fór fyrst í loftið árið 1993 og ruddi veginn fyrir íslensku hip hop- og rappsenuna sem nú er í miklum blóma. Ásamt Robba mun Bene- dikt Freyr Jónsson stýra Kron- ik og verður þátturinn á hverj- um laugardegi frá klukkan 17-19. Fyrsti þátturinn fer í loftið á morgun og munu þeir félagar spila nýja hip hop tónlist í bland við gamla ásamt Dancehall og Grime og öðru skemmtilegu. Góð- ir gestir verða í hverjum þætti og gestaplötusnúðar. Leah Remini frumsýndi á dögunum fyrsta þáttinn í heimildaþáttaserínunni Leah Rimini: Vísindakirkj- an og eftirköstin þar sem hún bæði talar um eigin reynslu af kirkjunni og tek- ur viðtöl við fólk sem hefur orðið illa útleikið eftir veru sína þar. Remini yfirgaf kirkjuna árið 2013 og skrifaði bók þar sem hún rakti reynslu sína af söfn- uðinum sem var langt frá því að vera ánægjuleg. Að sögn Remini og fleiri fyrrverandi meðlima viðgengst ofbeldi, kúgun, heila- þvottur og kynferðisleg áreitni innan kirkjunnar. Í viðtali við Ellen DeGeneres í vikunni sagðist Remini finna til ábyrgðar gagnvart þeim sem hafa ákveðið að hætta í söfnuðinum. Hún sé í aðstöðu til að segja fólki hvernig málum sé háttað. Hún hefur opin- berlega látið stjórnendur Vísinda- kirkjunnar vita að hún ætli ekki að standa þögul hjá meðan þeir ráðast á fólk sem hættir í kirkjunni með svívirðingum og lygum. Söfnuðurinn brást að vonum ókvæða við nýju heimildamynda- þáttunum og sendi frá sér ítarlega yfirlýsingu þar sem Remini er sögð athyglissjúk leikkona með ferilinn í ruslinu og því sé þetta hennar leið til þess að fá uppreisn æru – og kannski einhver hlutverk í leiðinni. Remini vísar þessu vitanlega á bug og segir tilganginn með því að tala um þetta þann einan að mögulega sjái fleira fólk ljósið og finni kjarkinn til þess að snúa baki við Vísindakirkjunni. Remini segist afar heppin að fjöl- skylda sín hafi kosið að fylgja sér úr kirkjunni. Gjarnan missir fólk öll tengsl við fjölskylduna sína þar sem meðlimum er stranglega bannað að hafa samband við ættingja sem yfir- gefið hafa söfnuðinn. Leah Remini Neitar að láta Vísinda­ kirkjuna þagga niður í sér. Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji... www.versdagsins.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.