Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016 Sá sem var tvítugur 1968 er 68 ára í dag. Það segir sig sjálft. Hugmyndir okkar um ungt fólk á þessu ári, 1968, er af uppreisnargjörnum æskulýð sem neitaði að beygja sig undir kröfu eldri kynslóða, hafn- aði gömlum úr sér gegnum gild- um og vildi reyna eitthvað nýtt, eitthvað allt annað. Sá sem var 68 ára árið 1968 var að sjálfsögðu jafn gamall öldinni og var því tvítugur 1920. Það var líka umrótsár, umlukið ungu fólki sem véfengdi flest af því sem eldra fólk hafði treyst á. Sá sem var 68 ára árið 1920 fæddist árið það magn- aða ár 1852 þegar Evrópa var að vakna og lifði því sín ungdómsár á miklum mótunartíma. Sá sem er tvítugur í dag fæddist árið 1996 og mætir tvítugur aftur- haldssemi þeirra sem eru 68 ára í dag, sama fólkinu og var að kafna undan einþykkni eldri kynslóða á sínum yngri árum. Svona er líklega lífið. Eða svona hefur það í það minnsta verið. Það er eilíf hringrás af fólki sem er opið fyrir nýjungum til að byrja með en heldur síðan dauðahaldi í óbreytt ástand þegar yngra fólk vill aðlaga samfélagið eigin hugmyndum. Fljótt á litið er þetta tilgangslaust streð í gamla fólkinu. Svo vitnað sé í nóbelssöngvarann ætti það að færa sig úr dyragættinni og hleypa breytingum tímans fram hjá sér. Ég er ekki enn orðinn 68 ára en það eru nokkur ár síðan mér fannst ég of gamall til að hafa skoðanir á skipulagsmálum. Ég leyfi mér svo sem að hafa skoðanir á því hvað sé vellukkuð borg og hvað sé illa skipulagður bær. Þegar ég gekk inn og úr út frönskum bæjum og þorpum fyrir ári síðan upplifði ég hversu illa bíllinn hafði farið með suma bæi. Þeir höfðu einhvern veg- inn brotið sig upp úr mannlegri stærð svo að maður á göngu gat varla fundið leiðina inn eða út og gat ekki notið margs á göngu sinni. En ég nenni ekki að æsa mig yfir því hvort spítali verður byggð- ur hér eða þar eða hvort best sé að hafa flugvöll niðri í bæ eða úti í hrauni. Ég verð orðinn gamall maður þegar af þessum ráðagerð- um verður. Það er miklu nær að unga fólkið ákveði þetta. Það þarf að búa við niðurstöðuna lengur en ég. Það er varla svo að ég nenni að kjósa lengur. Auðvitað getur komandi ríkisstjórn gert mér lífið leitt en mér finnst mikilvægara að yngra fólk hlutist til um landsmál- in. Mín kynslóð hefur kosið þrjátíu, fjörutíu ár og mér sýnist samfélagið vera í hálfgerðum molum eftir það; eilífar deilur um það sem minnstu skiptir á meðan fátt er rætt um hvernig samfélag við vildum helst. Ég gaf því dóttur minni, níu ára, atkvæði mín í forsetakosningun- um í sumar og alþingiskosningun- um í haust. Ég gekk á kjörstað og kaus það sem hún hafði valið. Mér fannst ekki mikið um val hennar en get ekki vefengt það á nokkurn hátt. Ég hefði örugglega ekki varið atkvæðinu betur. Kynslóðabil er orðið eitt af helstu vandamálum vestrænna stjórn- mála. Til einföldunar má segja að eldri karlar hafi kosið Trump í for- setakosningum í Bandaríkjunum og yngri konur Hillary. Sama má segja um Brexit. Þar vildu eldri karlar út úr Evrópu en yngri kon- ur vera þar áfram. En þótt skiptingin sé skýr milli kynja er hún þó mest milli aldurs- hópa. Og það skrítna er að yngra fólk er sáttara við það hvernig ver- öldin er að þróast. Það er gamla fólkinu sem finnst eins og allt sé að fara á verri veg. 1968 vildi unga fólkið knýja á um breytingar en eldra fólk halda veröldinni kjurri. Hvar þetta endar allt saman veit ég ekkert um. Ef ég reyndi að segja ykkur eitthvað um það myndi ég ráðleggja ykkur að taka ekkert mark á því. Þegar ég var um tvítugt komst Margraet Thatcher til valda í Bretlandi og Ronald Reagan í Bandaríkjunum. Þegar fólk mun horfa úr framtíðinni á tímann sem ég var ungur maður og bar ábyrgð á því að hnika samfélaginu til skárri vegar mun dómurinn verða þungur. Þetta er það tímabil sem unga fólkið brást. Vonandi á það ekki við um ungt fólk í dag. Gunnar Smári EINU SINNI VORU ALLIR UNGIR, LÍKA GAMLIR KARLAR lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir auglysingar@frettatiminn.is 531 3300 Sérblað um Þann 8. desember netverslanir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.