Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 72
Bíó
Kvikmyndin Nahid. Íranskt drama um
konu í klóm feðraveldisins sem sýnt
var á Cannes hátíðinni. Nahid fjallar
konu sem hefur skilið við mann-
inn sinn. Hún heldur forræði yfir
drengnum þeirra gegn því að hún
giftist aldrei aftur. Þegar Nahid
langar að stofna heimili með nýja
kærastanum flækjast málin.
Tónleikar
FM Belfast, Hermigervill og skemmti-
staðurinn Húrra ætla að halda tónleika
og leggja sitt af mörkum vegna hörm-
ungarástandsins í Nígeríu og nágranna-
ríkjum þar sem fjöldi
vannærðra barna er í
lífshættu. Allur aðgangs-
eyrir fer í neyðarsöfnun
UNICEF á Íslandi.
Dans
Reykjavík Dance Festival heldur
hátíð sem er tileinkuð unglingn-
um. Þriggja daga hátíð sem fram
fer um helgina. Bæði er boðið
upp á sýningar sem áhugaverðar
eru fyrir unglinga auk þess sem
unglingar taka þátt í danssýn-
ingunum. Fyrir hvern fullorðins-
miða fá fimm unglingar frítt inn.
GOTT
UM
HELGINA
Með eða á móti …
Jólaskraut í nóvember?
Rakel Garðarsdóttir
„Ég elska jólin – þá
verða f lestir svo
kátir og fólk gerir
fínt í kringum hjá
sér og skreytir –
oft með ljósum.
Ekki veitir af þar
sem á þessum tíma er
svo svakalega dimmt. Þannig ég er
alveg á því að fólk byrji að skreyta
snemma.“
Lárus Blöndal
Guðjónsson
„Sko, það að er
alltaf svo dimmt
hjá okkur á Ís-
landi nema á
sumrin. Þá finnst
mér um að gera að
henda jólaljósunum
á trén, grindverkin, flaggstangirnar
og þá staði sem fólki dettur í hug.
Allt verður bjartara og skemmti-
legra.
Sunna Rut
Ragnarsdóttir
„Jólaskraut í nóv-
ember hljómar
álíka gáfulega og
nagladekk í júlí.
Já, já, það munu
einhverjir segja að
jólaljósin lýsi upp
skammdegið og eitt-
hvað í þeim dúr. En það eru til aðr-
ar leiðir í lýsingamálum en jólaljós.
Ekki misskilja mig, jólin eru alveg
skemmtilegur tími en það er óþarfi
að eyða mörgum mánuðum í þau.“
Þuríður Sigurðardóttir
„Mér er svo sem sama hvað aðrir
gera en held mig við
hefðir að mestu
leyti. Mér finnst
stundum að jó-
laundirbúning-
ur, sem jafnvel
hefst í október, sé
svo útþynntur að jólin séu
búin loks þegar þau koma. Ég
bíð yfirleitt fram að aðventu með
jólaskraut. Jólatréð skreytum við á
Þorláksmessu.“
SMÁRAL IND
20% AFSLÁTTUR