Fréttatíminn - 25.11.2016, Síða 46
Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir er unglingurinn
á Alþingi þegar kemur að fatastíl.
Stíllinn er glaðlegur, litríkur og
afslappaður og stundum eins og
dregin beint úr fataskáp skandinav-
íska háskólanemans. Hún er oft í
þægilegum buxum og striga-
skóm og hún er greinilega
aðdándi hinna klassísku Con-
verse strigaskóa.
Katrín getur verið þjóðleg í
klæðaburði, er mikið í prjón-
uðum flíkum, bæði peysum
og sjölum, sem gefa unglinga-
stílnum smá tvist. Katrín er
hrifin af röndum eins og
Logi hún er líka trú sín-
um flokki í litavali því oftar
en ekki er hún í grænu.
Bjarni Benediktsson
Dökk jakkaföt, skyrta og bindi
í bláum og gráum fötum eru að-
alsmerki Bjarna, þó að hann eigi
það til að brydda uppá hversdag-
legri fatnaði svo sem póló-bol eða
köflóttum Harris Tweed. Jakka-
fötin eru gjarnan í minni kantin-
um og bindishnúturinn í stærra
lagi. Bandarísk áhrif eru greinileg í
fatavali Bjarna. Stundum sendir
hann dularfull skilaboð
með litavali sínu, eins
og grænu peysunni sem
enginn skildi hvað þýddi
í stjórnarmyndunar-
viðræðunum.
Óttarr Proppé
Það er alltaf bjart
yfir lávarði íslenskra
stjórnmála. Lita-
palletta Óttars hefur
lengst af einkennst
af rauðum og gulum
tónum sem flútta vel
við skegg- og hárlit
hans. Fullyrða má að
pönkið lifi enn í Óttari
og hafi dafnað vel á Al-
þingi. Öllum að óvörum
birtist Óttar í grænum jakka
á dögunum og vakti verð-
skuldaða athygli fyrir.
Benedikt
Jóhannesson
Benedikt Jóhannesson
tekur engar áhættur í fata-
vali. Oftar en ekki skartar
hann klassískum jakkafötum
í gráum eða bláum tónum
og hvítri skyrtu. Bindin er
líka oftast í dökkum tónum,
stundum röndótt en alltaf
dökk. Við þetta tækifæri
hefur Benedikt valið sér
óvenjudjarft bindi með gulu
mynstri sem lífgar óneita-
lega upp á litlaus jakka-
fötin. Eitt smáatriði sem
Benedikt hefur dálítið
verið að leika sér með
gerir hér
Steldu stílnum
frá stjórnmálamönnunum
Leiðtogar stjórnmálaflokkanna hafa allir einkennandi fatastíl sem segir
margt um persónueinkenni þeirra. Dyggir aðdáendur, og þeir sem láta
sig dreyma um frama á sviði stjórnmálanna, geta auðveldlega stolið
stílnum þeirra.
gæfumun þegar á heildina er litið,
en það er vasaklúturinn í brjóstvas-
anum. Skemmtilegt smáatriði sem
alls ekki margir í svo hefðbundnum
klæðnaði spila með.
Birgitta Jónsdóttir
Kapteinninn tjáir sig frjálslega með
fatnaði. Eins og sannur pírati á
netinu stelur hún stílum úr hinum
og þessum áttum og sækir inn-
blástur í pönkið, rokkið og póesí-
una. Hún blandar skærum og myrk-
um litum og tekst stöðugt að koma á
óvart. Hakkaraáhrifin eru áberandi
í klæðavali hennar. Hún ber svarta
Matrix-frakkann af miklu sjálfs-
öryggi og rammar inn andlitið
með rauðum dramatískum
varalit.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns-
son hefur markað sér al-
gjöra sérstöðu með tveimur
djörfum stíleinkennum sem
aldrei hafa sést á Alþingi áður.
Hann ber giftingarhringinn á þum-
alfingri og bindur silki-
klút um hálsinn undir
skyrtukraganum. Þetta
óvenjulega tvist á yfirveg-
aðan Framsóknarmanninn
sýnir karakter sem þorir að
fara ótroðnar slóðir þó hefð-
bundin jakkafötin pakka því
inn í trúverðuga umgjörð.
Ef þú vilt vera Sigurður Ingi
gæti Saga Boutiqe verið þín
verslun.
Logi Már Einarsson
Logi Már Einarsson hef-
ur skapað sér einstak-
an stíl og augljóslega
sótt sér innblástur
til Frakklands. Oft-
ar en ekki má sjá
hann í blárönd-
óttum bómullar-
bol í klassísk-
um frönskum
sjóarastíl með
bómullarklút
í bleikum tón.
Stíllinn er afslappað-
ur og óvæntur en hann er
samt alls ekki tilviljana-
kenndur og má segja að
þarna hafi Logi fundið
sinn einkennisbúning. Röndóttu
bolirnir fylgja Loga út í búð og
upp í stjórnarráð, sama hvern-
ig vindurinn blæs. Til að toppa
afslappelsið er Logi gjarnan með
hliðartösku og í sportlegum og
þægilegum skóm.
Ef þú
vilt vera
Birgitta, gæti Hókus
pókus verið búðin þín,
en þú getur líka
dressað þig upp
í Desigual á
Spáni.
Ef
þú
vilt
vera Katrín
kíktu þá í Polarn
O. Pyret eða
skelltu þér til
Skandinavíu í
verslunarferð.
Ef þú
vilt vera
Sigurður Ingi gæti
Saga Boutiqe
verið þín
verslun.
Ef þú
vilt vera Bjarni,
beint í Boss
með’ig.
Ef þú
vilt vera
Óttar ferðu rakleiðis
í herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar,
eða á flóamarkað
í bresku
sveitaþorpi.
Ef
þú vilt
vera Logi
ættirðu að skella þér á
Bretagne-skagann í
Frakklandi. Þar
er þægilegur
bómullar fatnaður
og rendur í
algleymingi.
Ef þú
vilt vera
Benedikt skelltu þér þá
í eina af herra fata-
verslunum bæjarins,
Guðstein eða
Herragarðinn.
SVARTUR FÖSTUDAGUR?
LÝSUM FREKAR
UPP
SKAMMDEGIÐ
20-50%
afsláttur af öllum jólavörum,
jólaljósum og seríum
í dag og um helgina.
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | rvm.is
AFGREIÐSLUTÍMI
Virka daga: kl. 9.00–18.00
Laugardaga: kl. 10.00–16.00
Sunnudaga: kl. 12.00–16.00
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016