Fréttatíminn - 25.11.2016, Síða 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016
Albaníu að þau ætli að hefja leit að
jarðneskum leifum 6000 manna
sem hurfu sporlaust á tímum Hoxha.
Þannig endurtekur mannkynssagan
sig, fyrst í skáldskap og svo í raun-
veruleikanum.
Sú Albanía sem hann tók við
var þó afskaplega frumstæð – iðn-
byltingin kom ekki til Albaníu fyrr
en með Hoxha og 80 prósent lands-
manna stunduðu landbúnað fyrir
heimstyrjöldina, jafnstór prósenta
var ólæs – og það má bókaormur-
inn Hoxha eiga að hann kenndi
þeim að lesa. Hins vegar hafði hann
vafasöm áhrif á hártísku karlmanna
þjóðarinnar. Þegar ljósmyndir í
Þjóðminjasafninu í Tírana eru skoð-
aðar þá eru albanskir karlmenn upp
til hópa afskaplega vígalegir með sítt
skegg og enn síðari makka – en eftir
að Hoxha tók við urðu karlmenn að
gera svo vel að skera hár sitt og skegg
til að vera yfirvöldum þóknanlegir.
Kapítalistaklaufar og gnarrískur
borgarstjóri
En hvernig rímar þetta allt saman
við nútímann, við landið sem Kevi
litli fæddist í tæpum aldarfjórðungi
eftir að kommúnisminn leið undir
lok?
Albanía hefur vissulega opnast
og hún er ólíkt frjálsari en áður – en
hún er þrátt fyrir það á vissan hátt
ennþá eitt lokaðasta land Evrópu og
landlæg spilling getur gert landið
óbærilegt að búa í fyrir þá sem lenda
upp á kant við vitlausa aðila. Þjóðin
keppir við Moldóvu um titilinn fá-
tækasta land álfunnar og er enn að
súpa seyðið af kapítalisma og komm-
únisma fortíðarinnar.
Já, kapítalisma, því eftir að komm-
únisminn féll tóku nefnilega við
einhverjar misheppnuðustu frjáls-
hyggjutilraunir í gervöllu austrinu.
Pýramídasvindl og stjórnlaus kap-
ítalismi réðu ríkjum í tæpan áratug,
oft að undirlagi stjórnvalda, og svo
bættist við flóttamannastraumur í
kjölfar Kósóvóstríðsins, sem snerti
Albaníu á margvíslegan hátt.
Ástandið hefur batnað síðan – en
spilling grasserar ennþá og landið
er ennþá bláfátækt og stéttaskipting
mikil. Þegar ég kom þangað fyrst
fyrir tæpum áratug virtist forn-
eskjan í fyrstu mikil – í Shköder sá
maður jakkafataklædda menn á hjól-
um og fyrir utan fúrgoninn minn
(litlar rútur sem sjá um almennings-
Karlmennskueiður
Kanún-lögin snúast ekki bara um
blóðhefnd. Albanía er mjög kar-
lægt þjóðfélag, þar sem erfið-
isvinna lendir oft mest á konum
og þær höfðu lengi lítið um það að
segja hverjum þær giftust. En þar
bauðst þó konum eitt sem þeim
bauðst hvergi annars staðar; að
gerast karlar. Til þess þurftu þær
að sverja karlmennskueið sem og
skírlífseið – og með því gátu þær
bjargað sér frá ástlausu hjóna-
bandi ef svo bar undir og öðlast
allt það frelsi sem konum var
annars neitað um. Þessar karla-
konur máttu drekka raki, reykja
sígarettur og skjóta af byssum
eins og hver annar karlmaður. Þær
klæða sig líka eins og karlar og
klipptu sig eins og karlar og tóku
sér karlmannsnafn.
Nýleg ítölsk-albönsk kvik-
mynd, Karlmennskueiður (Vergine
giurata, Sworn Virgin á ensku)
lýsir þessu hlutskipti ágætlega,
en hún fjallar um karl-konu sem
ákveður eftir fjórtán ár sem karl
að gerast kona aftur.
Edi Rami. Listamaðurinn sem varð
borgarstjóri og forsætisráðherra.
Götulíf í Tírana.
samgöngur Albaníu) voru sárafáir
bílar á götunum.
Það breyttist þó þegar maður kom
til höfuðborgarinnar, Tírana, en þar
mátti sjá handbragð Edi Rama út
um allt. Hann var myndlistarmað-
ur áður en hann varð borgarstjóri
upp úr aldamótum og lýsti borgar-
stjórastarfinu svona: „Þetta er ein
mest spennandi vinna í heimi, af því
ég get skapað og barist fyrir góðum
málefnum á hverjum degi. Það að
vera borgarstjóri í Tirana er hæsta
stig konseptlistar, það er list í sinni
tærustu mynd.“
Sem listamaður tókst Rama að
breyta ásýnd Tirana þrátt fyrir
að borgin væri á kúpunni. Hann
greip til einfalds bragðs sem hann
hafði lært í listinni; að mála. Hús-
in voru grá og guggin, gráminn var
yfirþyrmandi. Þannig að hann gaf
íbúum niðurníddustu og gráustu
blokkanna litríka málningu. Það
var enginn peningur til að leggjast
í miklar framkvæmdir, ráða innan-
húsarkítekta, skipta um innbú og
hvað þá að byggja upp á nýtt. En
þess þurfti ekki nauðsynlega, í bili
var meira en nóg að fá bara smá lit.
Grámygluleg hverfi breyttust í litrík
og glaðleg hverfi, full af röndóttum,
marglitum og fallegum húsum.
Þetta virtist smitast út í borg-
arsamfélagið, fólk fór að skapa
nærumhverfi sitt upp á nýtt. Eitt
dæmi er forljótur pýramídi sem ar-
kítektinn dóttir Hoxha teiknaði upp
í valdabrjálæði sínu. Núna nota börn
og unglingar þennan risapýramída
sem rennibraut. Aðaltorgið er fullt af
klessubílum sem krakkar leika sér í
og gamlar konur labba þar óáreittar
í gegn á meðan krakkarnir klessa á
bíla hvors annars, traustið er full-
komið.
Það er að segja á milli gömlu kon-
unnar og krakkana á klessubílun-
um. Rama reyndist hins vegar ekki
bara vera hugmyndaríkur heldur
líka spilltur eins og forverar hans,
með milljónir geymdar á aflands-
reikningum. Hann varð þrátt fyrir
það forsætisráðherra stuttu eftir að
hann var borgarstjóri og er það enn.
Maður skynjar vanda Albana í
dag dálítið þannig að þeir séu enn-
þá að læra á lýðræði og kapítalisma,
þeir eru jafn óvanir hvoru tveggja,
hafa litla tilfinningu fyrir því hvern-
ig þessi kerfi virka og eru ennþá að
átta sig á göllunum, sem var mögu-
lega ástæðan fyrir því að þeir leyfðu
kapítalismanum að vera nær óheft-
ur um stund, með skelfilegum af-
leiðingum.
Þeir virðast líka einfaldlega vera
klaufalegir kapítalistar. Fáeinir
glúrnir kynningarfulltrúar færu til
dæmis létt með að margfalda túris-
mann í landinu – þetta er land sem
bíður þess að vera uppgötvað, en
gerir ósköp lítið í því að láta vita af
sér.
En ferðalangur til Albaníu upplif-
ir gestgjafana töluvert öðruvísi en
hershöfðinginn í sögu Kadaré. Á
móti honum tekur hlédrægt en hlý-
legt fólk, fólk sem ennþá er örlítið
hissa að sjá ferðamenn og nálgast þá
af ósvikinni forvitni um þessa fáeinu
gesti sem rata til þeirra.
Maður skynjar vanda Albana í dag dálítið þannig að
þeir séu ennþá að læra á lýðræði og kapítalisma,
þeir eru jafn óvanir hvoru tveggja, hafa litla tilfinn-
ingu fyrir því hvernig þessi kerfi virka og eru ennþá
að átta sig á göllunum, sem var mögulega ástæðan
fyrir því að þeir leyfðu kapítalismanum að vera nær
óheftur um stund, með skelfilegum afleiðingum.
12.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7
7.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
9.999 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
10.999 kr.
SALZBURG f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - f e b rú a r 2 0 1 7
15.999 kr.
BOSTON f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
20% afsláttur 20% afsláttur
Fáðu enn lægra verð!
TIL ALLRA WOWFANGASTAÐA
WOW!
Fjólublár
föstudagur!