Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 8

Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016 Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ég man hvað mér fannst það skrítin tilhugsun áður en ég gerðist nunna að búa innilokuð á ein-um stað allt lífið. En þegar maður fær köllun þá verður þetta andlega líf eins og stöðugt ævintýri. Ævintýrið er raunverulegt þó það gerist innra með manni, það byggir ekki á neinni ímyndun, enda þarf maður að vera mjög raunsær til að gerast nunna því við þurfum að geta lif- að eftir svo mörgum reglum,“ seg- ir Agnes en hún er ein af þeim tólf pólsku konum sem búa í Karmelk- laustrinu í Hafnarfirði. Karmelreglan er kaþólsk trúar- regla sem sögð er hafa verið stofn- uð snemma á tólftu öld, við fjallið Carmel í Palestínu. Reglan er íhug- unarregla sem þýðir að konurnar sem tileinka henni líf sitt fara nán- ast aldrei út fyrir veggi klaustursins og eyða átta tímum af deginum í bænir og lestur trúarrita, auk þess að heita því að lifa við skírlífi og fátækt. Í dag má finna Karmelk- laustur víðsvegar um heiminn en byggingu klaustursins í Hafnarf- irði var lokið árið 1939. Árið 1983, þegar klaustrið hafði verið tómt í nokkurn tíma, var ákveðið að flytja sextán ungar nunnur úr fjölmennu klaustri í Elblag í Póllandi til Ís- lands og var Agnes í þeirra hópi. Síðan þá hafa sumar þeirra verið sendar í nýtt klaustur í Tromsö í Noregi og nýjar komið í staðinn en Agnes hefur verið í Hafnarfirði síð- an og mun aldrei fara þaðan. Fann trúna óvart Agnes var nítján ára menntaskóla- stúlka í Kraká þegar hún fann trúna og ári síðar fékk hún köllun sem hún lýsir sem andlegri upplífgun. „Ég er fædd inn í mjög venju- lega pólska fjölskyldu. Við fórum líkt að aðrir í messu á sunnudög- um, meira vegna hefðarinnar en af trúrækni. Þegar ég var nítján ára flutti ég að heiman á stúdentagarða í Kraká og hóf nám í vistfræði við háskólann. Þar kynntist ég hópi af fólki sem hittist reglulega til að lesa biblíuna saman og ég varð forvitinn um þennan félagsskap. Ég fór að hitta þau einu sinni í viku og eft- ir því sem við hittumst oftar fann ég hvernig eitthvað breyttist innra með mér og þegar eitt ár var liðið fór ég að finna sterkt fyrir því að guð er kærleikur. Ég fann mikla Strauk að heiman til að gerast nunna Agnes var nítján ára menntaskólastúlka í Kraká þegar hún fékk köllun um að verða nunna. Þremur árum síðar, árið 1983, var hún send ásamt sextán ungum nunnum frá Póllandi í Karmelklaustrið í Hafnarfirði. gleði og frið í hjartanu en á sama tíma var ég hissa því ég bjóst alls ekki við þessum tilfinningum. Ég var glöð og ánægð áður, það am- aði ekkert að í mínu lífi og það var ekkert sem ég var að forðast. Ég var í skemmtilegu námi, ég var í vinnu og mjög ánægð. Upphaflega var ég bara forvitin en ekki and- lega leitandi, en allt í einu fann ég hjarta mitt fyllast af innri gleði. Ég fór að bera þessa gleði saman við jarðneska gleði og sá að þetta var öðruvísi gleði því hún var sterkari og henni fylgdi svo mikill friður.“ Skilaboð frá Jesú Sumarið eftir fyrsta háskólaárið fór Agnes í heimsókn til systur sinn- ar sem býr í sveitinni utan við „Foreldrar mínir skildu ekkert hvað var að gerast og spurðu hvort ég væri nokkuð orðin geðveik.“ Myndir | Halla Í mörgum klaustrum deila nunnur herbergjum en í Karmelklaustri fær hver nunna sitt herbergi þar sem reglan byggir á andlegri íhugun. Systurnar nota tvo tíma á dag til að hugleiða en lesa líka andlega texta í næði í sínu herbergi auk þess að nýta herbergin til að skreyta kerti. Á hverjum degi eftir messu ganga systurnar um dimma ganga klaustursins með kerti og biðja sérstaka bæn fyrir einni systranna. Þannig fær hver systir sinn sérstaka dag, á tólf daga fresti. krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma@krumma.is Jólagjafirnar fást í verslun KRUMMA við Gylfaflöt 7 Opið: 23. des 8.30-23.00 24. des 10.00-12.00

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.