Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 12

Fréttatíminn - 23.12.2016, Síða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. desember 2016 um nauðsynlega að kaupa eitt- hvað sem við getum bara gert sjálf- ar. Það er ekki refsing að búa hér, við viljum vera hér og þetta er mjög gleðilegt líf,“ segir Agnes brosandi. „Auðvitað er ekki alltaf allt gott hjá okkur, við erum með tilfinn- ingar eins og allar manneskjur en við viljum sýna kærleika með öll- um okkar verkum. Við getum ver- ið með ólíkar skoðanir á hlutunum og verið pirraðar út í hver aðra, en þá lítum við á það sem tækifæri til að læra. Allt sem kemur upp á í samskiptum er efniviður í að læra meira og til að sýna ást.“ „Við notum öll tækifæri til að deila boðskapnum og taka á móti fólki sem vill ræða andleg hugðar- efni. Við erum hér fyrst og fremst til að biðja fyrir íslensku þjóðinni og við vonumst til þess að líf okk- ar hafi áhrif til góðs,“ segir Agnes en ítrekar það að hún dæmi engan, leiðir fólks til að vera góðar mann- eskjur séu ólíkar og að lifa í kristni sé ekki eina leiðin til þess. „Ég skil að fólki finnist við þurfa að fórna miklu til að lifa í klaustri því ég hugsaði þannig sjálf, mér fannst það óhugsandi fórn. Í dag finnst mér fórnirnar hafa verið engar í samanburði við alla þá ást sem ég fæ frá guði. En svona líður mér því þetta er mín köllun. Sum- ir fá annarskonar köllun og fylgja henni og fá allt það sem ég er að fá í klaustrinu á annan hátt. Ég held að hvert einasta hjarta þrái að finna hamingjuna og ég held að gullna reglan sé að hjálpa öðrum og lifa ekki bara fyrir sjálfan sig, þá kem- ur hamingjan til okkar. Þetta gildir allsstaðar í heiminum, ekki bara í klaustrinu.“ Hátíð Jóhannesar af krossinum var haldin í aðdraganda jólanna og við það tækifæri sungu systurnar ný lög sem Jónas Sen samdi sérstaklega fyrir þær. Eftir messuna buðu systurnar þeim sem mættu til messu í kaffi og samsöng. Þrátt fyrir að lífið í klaustrinu breytist ekki mikið yfir jólahátíðina gefa systurnar sér samt tíma til að setja upp jólaskraut.. „Það er ekki refsing að búa hér, við viljum vera hér og þetta er mjög gleðilegt líf.“ OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS ILMKERTI OG HÍBÝLAILMIR Í SÉRFLOKKI Maison Holiday tinaskja 325 ml. kr. 4.300 Japonica Tinaskja 118 ml. kr.2.450 Japonica Híbýlailmur 177 ml. 5.990 Room & Body Mist 100 ml. 4.500 Maison Holiday Glerkrús með loki í gjafakassa 355 ml. kr. 8.900 Ilmur af jólum VOLUSPA STÓRVERSLUN SMÁRATORGI VERÐDÆMI DÖMU & HERRAFÖT bolir 1.990,- skyrtur 5.990,- buxur 8.990,- regnbuxur 2.990,- softshellbuxur 8.990,- fóðraðar buxur 6.990,- snjóbuxur 9.990,- flíspeysur 3.990,- softshelljakkar 7.990,- jakkar 5.990,- warmloft jakkar 7.990,- úlpur 14.990,- fóðraðar kápur 13.990,- BARNAFÖT flíspeysur 3.490,- softshelljakkar 6.990,- softshellbuxur 6.990,- snjóbuxur 9.990,- fóðraðar buxur 6.990,- regnbuxur 2.990,- úlpur 9.990,- fóðraðar kápur 9.990,- Laugard. 17. des. 11-18 Sunnud. 18. des. 12-18 Mánud. 19. des. 11-18 Þriðjud. 20. des. 11-18 Miðvikud. 21. des. 11-20 Fimmtud. 22. des. 11-20 Þorláksmessa 11-22 Aðfangadagur 11-13 Opnunartími til jóla Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is Verð frá 34.900 Every Day Messenger er margverðlaunuð ljósmynda- og tölvutaska sem lítur ekki bara vel út heldur bíður upp á marga burðarmöguleika og skipulag sem á sér engan líka. Every Day Messenger frá Peak Design

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.