Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 10
Hælisleitendur „Ég veit ekki hver er ábyrgur, en ég mun komast að því, og ég mun byrja á Útlendinga- stofnun,“ segir Bujar Rama, eldri bróðir Bejtullah Rama, sem kveikti í sér í byrjun desember í Víðinesi, þar sem hann dvaldi sem hælisleitandi. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Bejtullah kom hingað til lands sem hælisleitandi frá Makedóníu í vetur. Hann bjó áður í höfuðborg Makedóníu, Skopje, og er af al- bönskum uppruna. Hann var 25 ára gamall þegar hann lést. „Bróðir minn var mjög duglegur. Hann vann í Skopje á skyndibita- stað og var að koma undir sig fótun- um þegar fortíðin bankaði upp á,“ útskýrir Bujar sem er þremur árum eldri en bróðir hans, en Fréttatím- inn ræddi við hann þar sem hann var staddur í Makedóníu. Bejtullah var yngsti bróðirinn í fjölskyldunni og átti í vandræðum á unglingsárum að sögn Bujar. „Hann var villtur. Hann átti það til að slást og lenda í vandræðum,“ segir Bujar, en bróðir hans virðist hafa náð tökum á lífi sínu og virtist vera að ná sér á strik. „Svo kom að því að hann var handtekinn vegna slagsmála sem hann lenti í þegar hann var sautján ára gamall. Þá lá fyrir að hann yrði að fara í fangelsi,“ segir Bujar. Bróð- ir hans óttaðist fangelsið og skyndi- lega var framtíð hans ótrygg. „Albanir fá ekki góða meðferð í makedónískum fangelsum,“ útskýr- ir Bujar. „Ég settist því niður með honum og sagði honum að nú væri síðasta tækifærið runnið upp. Hann yrði að fara úr landi ef hann ætl- aði að eiga sér einhverja framtíð. Ég keyrði hann því upp á flugvöll- inn í Pristina og þaðan flaug hann til Íslands.“ Bujar segir bróðir sinn hafa leit- að til Íslands í von um að fá ein- hverja vinnu og skapa sér nýja framtíð. Í fyrstu var hann von- góður, hann vann sem verkamað- ur um skamman tíma, en svo fékk hann svarið. Það var það sama og Útlendingastofnun gefur öllum hæl- isleitendum sem flýja heimahagana af efnahagslegum ástæðum. Svarið var nei. Bróðir hans hafði dvalið í skamman tíma á Víðinesi. Í stað þess að snúa aftur heim og takast á við afleiðingar gjörða sinna, tók hann til örþrifaráða. Hann hellti yfir sig eldfimum vökva á herbergi sínu, og kveikti í sér. Fréttatíminn ræddi við palest- ínska flóttamanninn Saif Anfana, daginn eftir að Bejtullah kveikti í sér. Hann lýsti því hvernig aðrir íbú- ar hefðu elt hann logandi um ganga hússins og niður í fjöru. Þar datt Bejtullah í fjörugrjótinu og félagar hans náðu að slökkva eldinn. Þá átti hann eftir að heyja dauðastríð á Landspítalanum í nokkra daga. „Þegar ég heyrði fréttirnar hérna heima, þá grunaði mig strax að þetta væri hann,“ segir Bujar. Rauði krossinn hafði samband við hann skömmu síðar og bauð honum til Íslands, sem Bujar þáði. Hann sat með bróður sínum, sem var þungt haldin, í tvo daga, áður en hann lést. Bujar segist hafa farið heim á hótelherbergi sitt í skamma stund. Þegar hann snéri aftur, var bróðir hans látinn. Bujar segist hafa farið á Víðines og sótt eigur bróður síns. „Þar hitti ég kunningja minn frá Makedóníu. Hann var ekki sami maðurinn og ég þekkti heima,“ segir Bujar og bætir við að það sé eitthvað meira en mikið að í hælisleitendamálum hér á landi. Hann er einnig reiður öllum eftirlitsaðilum. Bujar full- yrðir að hælisleitendur sem voru með Bejtullah á Víðinesi hafi gert Útlendingastofnun, Rauða Krossin- um og starfsfólki á Víðisnesi viðvart um að bróðir hans hafi verið að tala um sjálfsmorð. „Samt gerði enginn neitt,“ segir Bujar. Hann segir fjölskyldu sína eiga erfitt með að takast á við dauða bróður hans. „Við erum enn að gráta,“ segir Bujar. Það er ljóst af samtalinu við Buj- ar að fjölskyldan hans er enn mjög reið. „Það þarf sérstaka ástæðu til þess að fremja sjálfsmorð með þessum hætti, og einhver er sekur,“ segir Bujar sem segist stefna á að snúa aftur til Íslands og draga hvern þann sem hann telur ábyrgan fyrir andláti bróðir síns til ábyrgðar. „Í mínum huga er blóðið á hönd- um ríkisstjórnarinnar, þessari sömu og stýrir Útlendingastofnun,“ segir hann. „Bróðir minn kom til Íslands í leit að betra lífi, hann fór þaðan látinn,“ segir Bujar. Bujar segir háværa þögn hafa umlukið andlát bróður síns. Þannig hafi hann aldrei verið nefndur á nafn í umfjöllun um málið á eft- ir. Bujar segist gruna að þar sé um þöggun að ræða. „Það er óþægilegt fyrir yfirvöld ef það kemur andlit á þann sem lést í þeirra umsjá,“ seg- ir hann. Bujar segist leita réttlæist fyrir bróður sinn, hann vilji draga einhvern til ábyrgðar. „Bróðir minn var frábær mann- eskja, hann átti betra skilið,“ segir Bujar. 10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Bujar er litlu eldri en bróðir hans. Hann sendi bróður sinn til Íslands í von um að hann gæti búið sér til nýtt líf. Kennir yfirvöldum um dauða bróður síns Bejtullah var illa brunninn þegar félög- um hans tókst loks að slökkva eldinn. Hann átti þá enn eftir að heyja kvalar- fullt dauðastríð á Landspítalanum. Bejtullah fyrir miðju í Makedóníu þegar hann starfaði sem verkamaður. Bujar segir að starfsfólki hjá Útlendingastofnun hafi verið gert viðvart um sálarástand Bejtullah, en enginn hafi gripið í taumana. Ferðaþjónusta Bragi Benedikts- son, bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum, var lagstur upp í sófa með nýja bók þegar útkall barst á jólanótt. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Þetta var ekkert mál, útkallið sem kom daginn eftir, á annan í jólum, var meira mál,“ segir Bragi Bene- diktsson bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum en hann kom hópi ferða- manna til bjargar þegar klukkan var að nálgast miðnætti á jólanótt. Grímsstaðir á Fjöllum er eini bærinn í byggð frá Möðrudal að Mý- vatni og fær Bragi oft símtöl vegna ferðamanna í vanda. Þetta var því ekki í fyrsta sinn sem Bragi, sem er að nálgast áttugasta aldursárið, hef- ur þurft að hjálpa fólki í vanda en í þetta skiptið var hann lagstur upp í sófa með glænýja bók, saddur og sæll eftir jólasteikina, þegar símtal- ið barst. Nokkrir asískir ferðamenn sátu fastir í snjóskafli við brúnna á Jökulsá á fjöllum og úti var stór- hríð. Ferðamennirnir voru óhultir en komust hvorki lönd né strönd og voru nokkuð skelkaðir að sögn Braga. Eftir að hafa bjargað þeim úr skaflinum bauð Bragi þeim heim á Grímsstaði og gaf þeim afganga af jólamat og rúm að gista í. „Þetta var bara sjálfsagt. Það er alltaf eitthvað að gerast og sí- fellt meira eftir að ferðamanna- straumurinn fór að aukast. Aðalbjörgunarmaðurinn og sá sem vinnur við þetta í fullu starfi er nú samt hann Karl Viðar í Mývatns- Bjargaði ferðamönnum á jólanótt Bragi Benedikts- son, bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum, lætur hvorki hátíðar né veðurofsa stöðva sig þegar kemur að því að bjarga ferðamönnum úr ógöngum. sveit. En stundum er ég styttra frá og þá er hringt í mig. Þetta er bara eitt af því sem maður verður að gera,“ segir Bragi. ÚTSALA Við opnum kl. 12:00 mánudaginn 2. janúar afsláttur 20 –70%

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.