Fréttatíminn - 30.12.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
samanstanda af þáttum eins og
líkamstjáningu, handahreyfingu
og talanda en að stærstum hluta
svipbrigðum. Rafræn samskipti
skortir bæði hljómfall og látbragð
en einnig orðalaus samskipti og
því hafa lyndistákn fyllt inn í eyð-
ur sem hrá orð ritaðs máls skilja
eftir sig. Kaldhæðni, ást, háð, reiði
og allur skali tilfinninga og tján-
inga er nú gerður skiljanlegur með
lyndistáknunum. Þau gera, oft og
tíðum, ómannleg og fjarlæg staf-
ræn samskipti mannlegri.
„Emoji-táknin hjálpa okkur að
bæta upplýsingum við skilaboðin
sem annars væri ekki hægt að tjá í
stafrænum samskiptum. Þau bæta
upp fyrir eitthvað af þessum 93%
sem tapast í stafrænum samskipt-
um,‘‘ segir Rakel.
Tjáknin vöktu mikla athygli á
síðasta ári enda eitt slíkt valið orð
ársins 2015 hjá Oxford orðabók-
inni en orðabókin velur almennt
orð sem talin eru endurspegla
stemningu og anda ársins.
Tjákn má finna í öllum snjallsím-
um og á samfélagsmiðlum. Þau
eru þar af leiðandi hluti af daglegu
lífi flestra en það gerir að verkum
að fyrirbærið er hápólitískt. Líkt
og með önnur fyrirbæri sem valda
breytni í hegðun, hugsanamynstri
og málefnum er varða persónulega
og þjóðfélagslega hagsmuni, þá er
iðulega að finna einhvers konar yf-
irvald sem heldur utan um lög og
reglur. Í tilfelli tjáknanna þá heitir
sú stofnun Unicode Consortium og
sér um að koma skipulagi á kóðun
og tákn tölvuiðnaðarins. Innan
Unicode Consortium er undir-
nefnd sem nefnist Unicode Emoji
Subcommitte, og ber ábyrgð á
lyndistáknunum. Nefndin sér m.a.
um að uppfæra og endurskoða nú-
verandi tjákn en tekur einnig við
beiðnum um ný tjákn.
Kona með slæðu
Fyrr á árinu barst nefndinni t.d.
beiðni um tjákn af stúlku með hi-
jab-slæðu.
Beiðnina má rekja til þess að
vinkvennahópur í Þýskalandi
stofnaði Whatsapp-skilaboðaspjall-
þráð sín á milli. Táningsstúlkurnar
ákváðu að velja sér hver og ein eitt
tjákn sem átti að tákna þær sjálfar.
Ein valdi ljóshærðu prinsessuna,
ein valdi sér dansarann í rauða
kjólnum, ein valdi sér dökkhærðu
stúlkuna með síða hárið. Þegar
hins vegar kom að því að hin 15
ára Rayouf Alhumedhi veldi sér
lyndistákn, fann hún ekkert sem
henni fannst tákna sig. Alhumedhi
er múslimi og klæðist híjab-slæðu
daglega. Íslam er næstfjölmenn-
asta trú heimsins, áætlaður fjöldi
múslima í heiminum er eitthvað á
bilinu einn til einn og hálfur millj-
arður. Fjöldinn allur af konum um
allan heim ber slæður á hverjum
degi.
Það eru til tjákn af fólki af mis-
munandi kynþáttum og með ýmsa
háraliti. Það er tákn af manni
með konunglegan lífvarðahatt
og það er tákn af karlmanni með
túrban. „Hvers vegna er ekki tákn
af konu sem klæðist slæðu?,“ velti
Alhumedhi fyrir sér og ákvað
hún því að senda formlega beiðni
um tjáknið til Unicode Emoji
Subcommittee.
Rayouf Alhumedhi er uppruna-
lega frá Sádi Arabíu en býr í Þýska-
landi. Hún byrjaði að klæðast
slæðu þegar hún var 13 ára gömul.
Í beiðni sinni til nefndarinnar tók
hún saman sögu híjab-slæðunnar
og greindi frá rannsóknum sem
sýna mikilvægi þess en að rúm-
lega 550 milljónir múslimskra
kvenna um allan heim séu stoltar
af því að klæðast slæðunni, og
á þeim stafrænu tímum sem við
búum við í dag, séu lyndistáknin
bráðnauðsynleg eining í daglegum
samskiptum.
Sökum eðlis og notkunar eru
tjáknin alþjóðlegur samskipta-
máti, þau tala, má segja, alþjóðlegt
tungumál.
„Það skiptir miklu máli að í
tjáknunum gæti fjölbreytileika þar
sem þau eru orðin svo stór hluti af
daglegum samskiptum og daglegu
lífi. Það skiptir því miklu máli að
flestir fái tákn sem tengist þeim og
lýsir þeirra lífi. Það er áhugavert að
skoða mismunandi jafnréttisbar-
áttu í emoji-táknum. Þegar kemur
t.d. að baráttu hinsegin fólks þá
eru tjáknin að standa sig vel þar
sem hægt er að velja hinsegin pör
og fjölskyldur. En svo ef við skoð-
um baráttu fatlaðs fólks, t.d. er
einstaklingur að hlaupa, einstak-
lingur að labba en það er ekki
einstaklingur í hjólastól,‘‘ segir
Rakel Tómasdóttir.
Í haust bættust við 72 tjákn í
snjallsímum okkar, meðal þeirra
voru ólétt kona, svart hjarta,
górilla, prins, innkaupakerra,
dansandi maður, skeið, beikon og
mjólkurglas. Unicode hefur ný-
lega greint frá því að stúlkan með
slæðuna verði í næstu uppfærslu
tjákna, ásamt 55 öðrum nýjum
tjáknum.
Tjáknin eru orðin umfjöllun-
arefni fræðimanna, fjölmiðla,
listamanna og kvikmyndahúsa en
Sony Pictures Animation vinna
nú að teiknimynd sem nefnist
The Emoji Movie og fer í sýn-
ingar á næsta ári. Tjáknin hafa
einnig orðið viðfangsefni þýðenda
en hönnuður að nafni Joe Hale
þýddi klassíska skáldsögu Lewis
Carroll um Lísu í Undralandi yfir
í tjákn. Hale er þeirrar skoðun-
ar að tungumálið, eitt og sér, nái
ekki utan um það sem átt er við.
Hann telur lyndistáknin eina leið
mannsins til þess að fara fram úr
tungumálinu og öðlast einhvers
konar hærra stig samskipta.
Fyrsta ráðstefnan um tjákn
Meira en 400 manns sóttu fyrstu
ráðstefnuna um lyndistákn í San
Fransisco í síðasta mánuði. Um
var að ræða þriggja daga ráð-
stefnu sem nefnist Emojicon og
bar undirtitilinn „A Celebration of
All Things Emoji‘‘ eða „hátíðahöld
vegna alls er varðar tjákn‘‘. Ýmis-
legt athyglisvert átti sér þar stað,
þar á meðal rökræður fræðimanna
um framtíð tungumálsins.
Sagt er að sagan endurtaki sig.
Samskipti manna gætu hafa byrjað
á myndrænan máta með teikning-
um á hellisveggi á forsögulegum
tímum. Nú tugþúsundum árum
síðar leitum við aftur í myndrænu
samskiptin. Tjáknin virðast vera
komin til að vera enda heppileg
lausn á nýjum samskiptamáta
stafræns heims sem skortir oft
tengslin við hið mannlega eðli.
Broskallinn sem hlær og grætur
gleðitárum, hláturkarlinn tárvoti, varð
fyrir valinu sem orð ársins 2015 hjá
Oxford orðabókinni.
Brot úr þýðingu Joe Hale á Lísu í Undralandi.
Híjab-slæðutjáknin sem
fylgdu tillögu Rayouf
Alhumedhi.
Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið.
Fást í öllum helstu matvöruverslunum
og í fiskborði stórmarkaðanna.
Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
ittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur dagl ga
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
20% afsláttur
af öllum vör m
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bl húsin F xafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 2-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
ittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur dagleg
most.c_tiska
o t.tiskufataverslun
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu
þegar þú vilt, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt
bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á
hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.ISSÍMI: 588 8900
Vikuferðir
sumarið 2
017 frá
kr. 137.00
0.-
per mann
í
2ja manna
herbergi