Fréttatíminn - 30.12.2016, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
Svona var
árið 2016 með
þeirra augum
Hvernig ár var 2016 og hvað stendur upp úr þegar litið er til baka
yfir síðustu tólf mánuði? Í mörgum erlendum fjölmiðlum hafa verið
birtar greinar með vangaveltum um að árið 2016 hafi verið versta
ár sögunnar en einnig skrif sem hrekja þá kenningu. Margir tala því
án alls gríns um þetta ár sem senn er á enda sem skelfilegt sögulega
séð. Ýmislegt kemur þar til eins og til dæmis stríðið í Sýrlandi, Brexit
í Bretlandi og kjör Donalds Trumps sem forseta Bandaríkjanna og
á Íslandi er 2016 ár Panamaskjalanna, afsagnar Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, nýrra kosninga og stjórnarkreppu. Fréttatíminn
fékk tíu einstaklinga til að tala um þetta tíðindamikla ár og velta upp
einkennum ársins, hápunktum þess og lágpunktum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Hörmungarþróun á sviði stjórnmála
Sigrún Pálsdóttir sagnfræðingur
Það verður ekki komist hjá því
að nefna hörmungarþróun
á sviði stjórnmála; uppgang
þjóðernishyggju, afturhalds og
lýðskrums sem náði einhvers
konar gróteskum hápunkti í
bandarísku forsetakosningun-
um. Framhald þeirrar sögu er
reyndar svo óþægilegt að mað-
ur treystir sér eiginlega ekki til
að fylgjast með henni.
En þá verður að minna á þá
gleðilegu staðreynd að slík öfl
fengu ekki hljómgrunn í kosn-
ingum til alþingis Íslendinga
sem boðað var til í kjölfar þess
að Panamaskjölin voru opinberuð. Sá atburður fer líka á hin margum-
töluðu söguspjöld verði svoleiðis spjöld enn í notkun þegar 2016 verður
saga.
Líkt og síðustu ár verður 2016 minnst fyrir það hörmungarástand sem
heldur áfram að skapast vegna átaka víða um heim, ekki bara í Sýrlandi
heldur líka í ríkjum Afríku og víðar. Vitneskjan í formi frétta, frásagna
og ljósmynda setur sögu átaka og voðaverka á 20. öld í nýtt samhengi
og raskar hugmyndum okkar um hnignun og framþróun í heiminum.
Fréttir af örlögum barna í slíkum aðstæðum, og sterkur grunur um of-
beldi gagnvart þeim í öllum skúmaskotum heimsins sem lenda utan kast-
ljóssins, eru svo lamandi að það er beinlínis fjarstæðukennt að heimur-
inn haldi áfram að fara fram úr á morgnana. Á meðan gerðist ýmislegt
fallegt í vísindum og listum. Upp úr því öllu stendur kveðjan frá David
Bowie.
Ógnir við frið og
stöðugleika
Úlfar Hauksson, sjómaður
hjá Samherja
Víða væri hægt að staldra við og
tína til viðburði á árinu 2016 sem
munu hafa áhrif til framtíðar.
Brexit-atkvæðagreiðslan í Bret-
landi kemur strax upp í hugann.
Erkidæmi um þjóðaratkvæða-
greiðslu sem snýst upp í lýðskrum
og lygar. Úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar komu öllum í opna skjöldu
og ekki síst þeim sem véluðu um
hana. Áhrifin munu verða víðtæk
og sér ekki fyrir endann á þessari
ábyrgðarlausu vegferð. Brexit -
ásamt kjöri Donald Trump - er því
miður ógn við frið og stöðugleika
í heiminum og er Ísland þar ekki
undanskilið.
Í lok árs 2015 var Parísar-
samkomulagið um aðgerðir í
loftslagsmálum samþykkt og
staðfest 4. nóvember 2016. Hér er
um stórt skref, en þó ekki stökk
fyrir mannkyn, að ræða varðandi
aðgerðir gegn hlýnun jarðar. Loft-
lagsbreytingar og hlýnun jarðar
er ein helsta ógn við frið og öryggi
til framtíðar. Hér er því líklega á
ferðinni mikilvægasta viðfangsefni
komandi kynslóða. Trumpisminn
í Bandaríkjunum gæti hins vegar
ógnað samkomulaginu.
Panamaskjölin og opinber-
un þeirra munu að mínu mati
hafa mikil áhrif til framtíðar og
gefa fordæmi um rannsóknar-
blaðamennsku og veita valdhöf-
um aðhald. Gríðarlega mikil-
vægt mál hvað varðar afhjúpun
leyndarhyggju. Öflug og fagleg
blaðamennska er afar mikilvæg í
öllu því umróti og valdaklækjum
sem veröldin býr við.
Frumkvöðlarnir og trúin
á framtíðina
Halla Tómasdóttir athafnakona
Í knattspyrnu, körfubolta, fimleikum,
cross-fit, sundi, golfi og svo mætti áfram
telja sýndu íslenskir íþróttamenn og kon-
ur hverju má áorka með mikilli vinnu,
metnaði og skýrri framtíðarsýn. Stuðn-
ingsmenn eiga ekki síður hrós skilið.
Áfram Ísland!
Söguleg kosningabarátta og úrslit kosn-
inganna í Bandaríkjunum hafa klofið
Ameríku í herðar niður og búast má við
verulegum áhrifum á heimsmyndina.
Alvarlegast er að sjá merki þess að hatur
og ljótleiki hafi fengið byr undir báða
vængi, bæði þar og víðar. Oft var þörf en
nú er nauðsynlegra en nokkru sinni að
uppbyggilegir leiðtogar um allan heim standi fast í lappirnar og haldi á
lofti gildum sem skipta máli; Heiðarleika, virðingu, jafnrétti og réttlæti.
Á Íslandi, og um allan heim, eru frumkvöðlar að leysa fjölbreytt og
flókin verkefni sem leiðtogar heimsins virðast standa ráðalausir frammi
fyrir. Frumkvöðlar með áherslur umfram fjárhagsleg markmið vinna
hörðum höndum að lausnum í loftslagsmálum, heilbrigðara fjármála-
kerfi og betra samfélagi almennt. Þeir gefa okkur fullt tilefni til að trúa á
framtíðina og meðal þeirra má finna leiðtoga og lausnir sem við þurfum
á að halda.
62 eiga meira en 3500 milljónir
Steinar Bragi Guðmundsson rithöfundur
Í upphafi árs birtust tölur um misskiptingu auðs í heiminum:
62 manneskjur eiga nú jafn mikið og fátækari helmingur
mannkyns (3500 milljónir manna). Þetta lið kemst fyrir
í einni rútu. Allar hreyfingar í pólitík Vesturlanda nú
um stundir ætti að skoða í ljósi þessara talna. Vandamál
okkar hafa ekkert að gera með innflytjendur eða íslam,
og við eigum vel efni á því að ráðast í grundvallar-
breytingar til að setja upp græn orkukerfi svo við bráðn-
um ekki öll oní jörðina áður en öldin er úti.
Lágpunktur ársins er augljóslega kosning Trump í
stað Bernie Sanders, en hápunkturinn er að orðið
sósíalismi varð nothæft í heimsveldinu.
Ég veit annars ekki hvort við höfum sérstaka
ástæðu til bjartsýni – Trump í vestri og Pútín í
austri – en meðan við bíðum eftir endalokun-
um má hafa í huga að frelsi er ekki annað orð
yfir græðgi. Faðmaðu svo þau sem eru næst þér,
leystu út allt sem þú átt og gefðu það.
Framúrskarandi árangur
karlalandsliðsins á EM
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fótboltakona
Eitt af því sem stóð upp úr á þessu ári var að Donald Trump var kosinn
forseti Bandaríkjanna. Það hafa aldrei verið jafn miklar deilur um báða
frambjóðendur einsog var á þessu ári en þó virtist Hillary Clinton betri
kostur en Trump. Ég held að þetta muni
breyta stjórnmálunum í heiminum til
frambúðar og því pólitíska umhverfi sem
ég hef alist upp við.
Þar sem ég er mikil fótboltakona fannst
mér árangur íslenska karlalandsliðsins á
EM framúrskarandi, ásamt árangri Leceist-
er í ensku úrvaldsdeildinni og svo árangri
Wales líka á EM. Mér fannst þetta gaman
því að þetta sýnir að „lítil“ lið með kannski
minna fjármagn á milli handanna geta
náð góðum árangri með réttu hugarfari og
góðri vinnusemi.
Dauði David Bowie og Prince. Ég er mik-
ill tónlistarunnandi og höfðu þessir tveir
mikil áhrif á tónlistarmenningu síns tíma.
Mikilvægi þess að elska lífið
Björg Guðrún Gísladóttir, starfsmaður Stígamóta
Það sem kemur fyrst í huga minn er lát
Eddu Heiðrúnar Bachman á árinu. Ég
þekkti hana ekki persónulega en Edda
Heiðrún sýndi okkur samferðafólk-
inu sínu á svo hæverskan og einstakan
hátt í gegnum veikindin sín hvað það
er mikilvægt að elska lífið og njóta þess
þrátt fyrir að það slái mann niður og
færi manni erfið og jafnvel á stundum
óyfirstíganleg verkefni.
Ég hef áhyggjur af tungumálinu okk-
ar. Um daginn varð ég vitni að því að
hópur unglinga sem voru að tala sín á
milli ensku voru spurð af því af hverju
þau notuðu ekki íslensku. Var svarið að
þeim fyndist það auðveldara, þau voru öll íslensk. Það að sumir
unglingahópar velji að tala sín á milli á ensku frekar en að nota sitt
móðurmál af því að þeim finnst það auðveldara er áhyggjuefni.
Svo að lokum ber að nefna hugrakka Stígamótafólkið sem steig fram
fyrir skjöldu og sagði frá reynslu sinni af að hafa verið beitt kynferðisof-
beldi í söfnunarþættinum á Stöð 2 #Styttum svartnættið.
Tim Bryan
@timbryanofficial
Daniel Wellington
WD
D A N I E LW E L L I N G T O N . C O M
I N S TA G R A M . C O M / D A N I E LW E L L I N G T O N
FA C E B O O K . C O M / D A N I E LW E L L I N G T O N O F F I C I A L
T W I T T E R . C O M / I T I S D W
P I N T E R E S T. C O M / I T I S D W