Fréttatíminn - 30.12.2016, Qupperneq 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
honum og geta greint það sem
kemur á undan frá því sem kem-
ur á eftir.
Tíminn er sleipur eins og áll og
furðulega afstæður og abstrakt
þrátt fyrir að við getum mælt hann
með nákvæmri tækni. Við upplif-
um hann á eigin skinni og hann er
alltaf tilbúningur hugans þrátt fyr-
ir gang himintunglanna. Gráu hár-
unum og hrukkunum fjölgar, börn
vaxa úr grasi og ástvinir kveðja. Ár
og áratugir virðast þjappast saman
og svo gengur hvorki né rekur og
tíminn ætlar nærri því að standa
í stað. Það er þessi einkennilega
teygja í tímanum, hann hleypur
á undan manni eða hægir á sér á
víxl, oft án sýnilegrar ástæðu.
Tíminn og breytingar
Við verðum tímans helst vör þegar
við hugleiðum breytingar. Ísland
er þannig fjölbreyttara land en það
var fyrir nokkrum árum, hér eru
fleiri ferðamenn, atvinnuvegirnir
eru fjölbreyttari, áhugamál fólks
líka og við sem hér búum erum fjöl-
breyttari sem hópur. Breytingar
virðast þannig flæða áfram og gefa
okkur tilfinningu fyrir tímanum.
Sömu breytingar geta verið upp-
spretta ánægju eða angistar.
Ný tækni getur haft áhrif á það
hvernig við upplifum tíma. Það er
ekkert svo langt síðan að farsímar
voru ekki í vasa nánast allra eins
og nú er. Nettenging þeirra gefur
okkur djúpa tilfinningu fyrir hraða
og rauntíma atburða og breytinga,
jafnvel í fjarlægum löndum.
Ef horft er aftar í sögu tækninýj-
unga má nefna áhrif kvikmynda-
tækninnar sem lagði mikið til þess
hvernig hugsað er um tímann því
að þar má líka nema framvindu
hans og spila hann síðan aftur og
aftur. Enski ljósmyndarinn Ead-
weard Muybridge þótti til dæm-
is hálfgerður galdramaður þegar
hann sýndi fram á með ljósmynda-
tækni að á fleygiferð virðist hestur
á hlaupum svífa í lausu lofti. Fram-
vindu augnabliksins var þannig
hægt að deila niður með æ ná-
kvæmari hætti.
Skáldleg tök á tímanum
Tíminn er þannig skapaður að við
grípum oftar en ekki til skáldskap-
arins til að átta okkur á honum,
sama hvað vísindamenn rannsaka
hann mikið og upplifun okkar af
honum. „Tíminn líður áfram og
teymir mig á eftir sér“ segir eitt
skáldið, Megas, á meðan þjóðin
tengir við texta Bjartmars um að
„þannig týnist tíminn“ og metur
sem sitt uppáhaldslag.
Alveg sama hvað við reynum
þá getum ekki hugsað um tímann
nema út frá einum tímapunkti.
Það er nútíðin, okkar eigin athygli
Æðsti páfi tímans
Gregor páfi þrettándi ríkti á
páfastóli í þrettán ár á síðari
hluta 16. aldar. Áhugasvið hans
náðu yfir bæði tíma og rúm.
Gregor vildi stækka heimsmynd
samtímamanna sína og gerði
sendiboða sína út af örkinni
til Asíu til að átta sig betur á
löndum eins og Filipseyjum og
Japan.
Gregors er hins vegar helst
minnst fyrir tímatalið sitt sem
við notum enn. Það var hins
vegar ekki þannig að guðsmað-
urinn væri sjálfur að finna upp
á breytingunum um hvernig
menn sáu framgang tímans fyrir
sér, hann fékk sérfræðinga í verkið.
Það var ítalski stjörnufræðingurinn Alosius Lilius sem fyrstur lagði drög
að nýja tímatalinu en jesúítapresturinn Christopher Clavius tók við keflinu
og kláraði verkið, en samt ekki alveg því að á síðari tímum hafa smávægi-
legar lagfæringar átt sér stað.
Ástæðan fyrir tímatalsbreytingu Gregors sem átti sér stað árið 1582 var
að fyrra tímatal, það júlíanska, var ekki nógu nákvæmt og hafði safnað upp
skekkju allt frá árinu 45 f.Kr. þegar það var tekið í notkun. Í gamla tíma-
talinu var litið svo á að árið væri 365 dagar og sex klukkustundir en nýir
útreikningar sýndu að það var í raun 365 dagar, fimm klukkustundir og 49
mínútur. Því var komin upp skekkja sem páfi lagfærði með einu pennastriki.
Á eftir fjórða október 1582 kom því ekki fimmti október heldur 15. október.
Breytingin náði vel til kaþólskra landa Evrópu en mótmælendaríki þurftu
mörg hver meira en öld til að breyta tímatalinu. Ísland var auðvitað sam-
ferða Danmörku í breytingunni árið 1700 þegar ellefu dagar voru felldir úr
nóvember. Stóra-Bretland og nýlendur Ameríku uppfærðu ekki sitt daga tal
fyrr en um miðja 18. öld og Rússar ekki fyrr en í byltingunni 1917 svo dæmi
séu nefnd.
Í ljósmyndum sínum sýndi hinn enski Eadweard Muybridge fram á tengsl hreyfingar og tíma. Myndir hans höfðu mikil áhrif á fjölmarga listamenn sem unnu með
tímann, til dæmis ítölsku fúturistana í upphafi 20. aldar. Tíminn hefur lengi heillað listamenn í ýmsum greinum og skyldi engan undra.
Óhugnanleg framrás tímans. Breytingar eru einn mælikvarði á tímann, bæði breytingar í persónulegu lífi hvers einstaklings og
breytingar á umhverfi og náttúrunni. Hér sést Mendenhall jökullinn í Alaska. Fyrri myndin er tekin um 1940 en hin er nýleg.
í núinu sem býr jafnframt yfir
okkar eigin minni og okkar eigin
væntingum um framtíðina. Þessi
tenging okkar við núið gerir það
jafnframt að verkum að við eig-
um erfitt með að upplifa hreint
andartak og þess vegna, líklega,
eru núvitundaræfingar svo eftir-
sóknarverðar, núinu verður aldrei
fyllilega náð, það rennur okkur
úr greipum. Rétt eins og við átt-
um okkur illa á fjarlægðum þegar
við horfum upp í heiðan himin án
nokkurra viðmiða, reynist okkur
ómögulegt að öðlast hreina upplif-
un af tímanum og framrás hans. Sú
framrás er alltaf bundin breyting-
um í ytra umhverfi okkar. Við get-
um ekki skilið sjálf okkur frá tím-
anum, hjartað heldur áfram að
slá og blóðið að renna og nútíðina
smíðum við á hverju augnabliki.
Að baki okkar byggist fortíðin upp,
lag fyrir lag, og framtíðin er óskrif-
að blað. Aftur og aftur reynist best
að grípa til meðala skáldskapar-
ins, myndlíkinga. Tíminn er bara
þannig.
Glíma við tímann
Hraðinn í samfélaginu er mikið
ræddur og hann hefur áhrif á mörg
okkar. Sumir þrífast á honum en
aðrir upplifa sig úr takti við sam-
tíðina. Krafan um að gera marga
hluti í einu er hávær en slíkt „fjöl-
verkavinnsla“ er mýta, mannshug-
urinn þarf að deila athyglinni frá
einu verkefni til annars.
Um áramót koma dagbækur
á markað. Bæði dagbækur til að
skipuleggja tímann sem bíður
okkar á næsta ári, færa þar sam-
viskusamlega inn fundi og ver-
kefni, og bækur til að skrá það
hvernig við verjum tíma okkar. Sú
iðja að skrifa dagbók virðist alltaf
verða sjaldgæfari og sjaldgæfari á
tímum samfélagsmiðla. Við skrá-
um atburði í lífi okkar inn í gagna-
banka sem stórfyrirtæki úti í hin-
um stóra heimi hafa umsjón með.
Hvernig það þróast verður að koma
í ljós með tíð og tíma.
Við tölum um tímamót í lífi okk-
ar sem einstaklinga eða í sam-
vistum hópsins sem við tilheyr-
um. Samt áttum við okkur aldrei
fyllilega á mikilvægi tímamóta í
lífi okkar fyrr en þau eru um garð
gengin. Breytingarnar mynda
þannig tímamótin en í tímann sjálf-
an koma engin skil, hann heldur
bara áfram. Sekúndurnar í kring-
um áramót eru ekkert merkilegri
en aðrar í árinu. Það er menning
okkar og tímatalskerfi sem upp-
hefja þær í hugum okkar.
Við verðum tímans helst
vör þegar við hugleið-
um breytingar. Ísland er
þannig fjölbreyttara land
en það var fyrir nokkrum
árum, hér eru fleiri
ferðamenn, atvinnuveg-
irnir eru fjölbreyttari,
áhugamál fólks líka og
við sem hér búum erum
fjölbreyttari sem hópur.
Breytingar virðast þannig
flæða áfram og gefa okkur
tilfinningu fyrir tímanum.
Sömu breytingar geta
verið uppspretta ánægju
eða angistar.
xxx.3 | helgin. LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2016
SLEPPTU
ÞYNNKUNNI
After Party
töflurnar gegn
þynnku.
Náttúruleg efni
sem gera daginn
eftir drykkju
bærilegri.
Kíktu á síðuna okkar
www.icecare.is eða á facebook IceCare þín heilsa
Fæst í apótekum,
heilsuverslunum
og heilsuhillum
stórmarkaða