Fréttatíminn - 30.12.2016, Side 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
Áramótafjörið
hefst í Partýbúðinni
Blöðrur, kórónur, konfetti og knöll.
Unnið í samstarfi við Partýbúðina
Partýbúðin leggur mikið upp úr því að þar sé hægt að fá flest allt í áramótapartý-ið. Til að mynda eru þar
yfir 60 tegundir af áramótahöttum
og um 20 gerðir af áramótakór-
ónum. „Þetta kvöld vilja margar
konur vera elegant með flottan
hatt, hárspöng eða kórónu, háls-
festi og jafnvel grímu. Þær sem
vilja ganga alla leið geta fengið sér
fjaðralengjur til þess að setja yfir
herðarnar,“ segir Halla Ýr Alberts-
dóttir, rekstrarstjóri Partýbúðar-
innar. Hún bendir á að mennirnir
láti sér oftast duga að fá sér hatt,
gleraugu og jafnvel slaufu og börn-
in litla hatta eða kórónur.
Loftið fyllt með blöðrum
En mál málanna eru blöðrurnar
sem setja ótrúlega mikinn svip á
alla fögnuði. Að sögn Höllu koma
margir og kaupa bara örfáar blöðr-
ur til þess að skreyta fyrir áramóta-
veisluna meðan aðrir eru stórtæk-
ari. „Blöðrur gera alltaf mikið fyrir
veislur. Við erum meðal annars með
stórar álblöðrur sem mynda 2017,
Happy New Year álblöðrur og latex-
blöðrur. Í dag og á morgun (gaml-
ársdag) fyllum við loft búðarinnar
af helíumblöðrum sem fólk getur
kippt með sér. Með þessu móti á
enginn að þurfa að bíða eftir því
að blásið verði í blöðrurnar þeirra,“
segir Halla.
Knöll, bombur og lúðrar
En úrvalið er svo mikið fjölbreyttara
en bara blöðrur og hattar, í Partý-
búðinni má einnig finna stjörnuljós
sem mynda 2017, goskerti, knöll,
kastrúllur, ýlur, lúðra, innibombur og
„að ógleymdum hurðahengjunum
sem er til dæmis hægt að hengja
upp á vegg og nota sem bakgrunn
fyrir „myndavegg“ en einnig erum
við með áramóta pinnagrímur sem
hægt er að fíflast með við mynda-
vegginn,“ segir Halla.
Að endingu er vert að minnast
á að þurrís verður til sölu á
gamlársdag í Partýbúðinni en hann
er hægt að nota til þess að búa til
ótrúlega skemmtileg áhrif sem slá
alltaf í gegn.
Hægt er að sjá úrvalið á
Facebooksíðu Partýbúðarinnar en
þar eru myndir af áramótavörun-
um ásamt verði. Opið til 21 í kvöld
og til 17 á morgun, gamlársdag.
…gamlárspartý 2 | amk… FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2016