Fréttatíminn - 30.12.2016, Side 50
50 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016
Athyglisverðustu
dýr ársins 2016
Dýrin eru bestu vinir
mannsins. Nokkur dýr
stóðu upp úr á árinu
og tók dýravinurinn
Sunna Ben saman lista
yfir athyglisverðustu
dýr ársins 2016.
Drauga
hvalurinn (e.
ghost shark). Ný
tegund af hákarli sem
var nýlega uppgötvuð og
náðist á myndband í fyrsta
sinn á dögunum.
Kötturinn hans Julian Assange
sem sást prúðbúinn með slaufu í
glugganum á sendiráðinu þar sem
þeir búa um þessar mundir.
Villikötturinn og sam félags
miðla drottningin Púkarófa.
Facebooksíðan hennar, sem
er með um 2000 fylgendur,
hefur vakið athygli á málefn
um villikatta og staðið fyrir
því að finna mörgum köttum
og kettlingum heimili á
árinu.
Páfagaukurinn Kobbi sem
náði háum aldri í blóma
búð en lést fyrir stuttu.
Harambe, ó Harambe. Górilla sem var skotin á árinu af
starfsmanni dýragarðs þegar barn hrundi í búrið hans.
Málið fékk mikla umfjöllun, en margir voru ósann
færðir um að barninu hafi stafað nokkur ógn af dýr
inu. Harambe hefur síðan verið mörgum innblástur,
meðal annars rapparanum góðkunna Young Thug
sem nefndi lag nýlegri plötu sinni, Jeffrey, í höfuðið á
honum. Hann sagðist hafa nefnt öll lögin á plötunni í
höfuðið á hetjunum sínum.
Elsti köttur heims, Nutmeg,
sem varð 31 árs á árinu
og fannst mjög lítið til
þess koma af myndum að
dæma.
Spilið sem setti jólaboðin á hliðina
Einskonar Skrafl fyrir
óþolinmóða sló í
gegn í jólaboðunum
í ár. Orðaleikurinn
reynir á kænsku og
hugmyndaflug.
Bananagrams er eins og hraðskrafl.
Orðaleikur fyrir þá sem eru
fljótir að hugsa.
Skraflarar og aðrir sem hafa gam-
an af orðaleikjum ættu að spreyta
sig Bananagramsi. Spilið var
aðal umfjöllunarefni í nokkrum
jólaboðum á höfuðborgarsvæð-
inu í ár, þar sem bæði ungir og
aldnir höfðu margt til málanna
að leggja. Spilið líkist Skrafli að
mörgu leyti en er hraðara og
getur þar af leiðandi verið mjög
fyndið. Auk þess geta fleiri tek-
ið þátt án þess að það hægi á
leiknum.
Leikmenn draga stafi og skrifa
orð sem mega tengjast með sama
hætti og orðin á skrafl-borðinu. Í
Bananagramsi býr hver og einn
til sína eigin krossgátu úr stöfun-
um sem hann dregur. Þegar sá
fyrsti hefur myndað orð úr öllum
stöfunum, kallar hann „draga“
og allir leikmenn þurfa að draga
viðbótarstaf og koma honum
fyrir í krossgátunni sinni. Þegar
leikmenn hafa dregið alla stafi úr
pokanum, snýst keppnin um að
vera fyrstur til að koma þeim fyrir
í krossgátunni. Sá fyrsti til að loka
kallar „Bananagrams“. Þá þarf að
fara gaumgæfilega yfir orðin sem
leikmenn hafa lagt niður, og hvort
þau samræmist ekki örugglega
íslenskri rétt-
ritun og reglum
spilsins.
Bananagrams
er alls ekki síðra
en Skraflið góða,
eða Krafla sem kom
út fyrir jólin.
Hér reynir á hug-
myndaflug, orðaforða,
húmor, kænsku og ekki síst
að vera fljótur að hugsa. | þt
Pöndur, en
þær voru á
árinu teknar
af lista yfir
dýr í útrým
ingarhættu.
Dýravinurinn
Sunna Ben fer yfir
athyglisverðustu
dýr 2016.
Landnámshænurnar í Þykkva
bæ, en umsóknum um hænu
í fóstur rigndi inn til bóndans
sem sér um þær eftir að upp
komst um óhuggulegheitin
hjá Brúneggjum. Nú eru allar
hænurnar komnar með fóstur
fjölskyldur.
Vináttan
Rífast aldrei
við kassann
Þær Alda Björk
Fossberg og Þórey
Mjöll Fossberg eru
systur úr hópi ellefu
systkina. Systurnar
vinna saman í
Kjörbúðinni á Eskifirði
þar sem Þórey eru
verslunarstjóri og
hefur unnið þar í alls
18 ár en Alda í rúm tvö.
„Við erum alls ellefu systkini. Sjö
stelpur og fjórir strákar,“ segir
Alda Björk og systir hennar kinkar
kolli.
„Við systurnar erum alveg
ógeðslega líkar og mjög nánar,“
segir Þórey.
Þar sem Þórey er verslunarstjóri
grínast Alda oft með að hún sé
aðstoðar-aðstoðarverslunarstjóri.
„Önnur systir okkar vinnur hér
líka og hún er aðstoðarverslunar-
stjóri. Ég grínast með að ég komi
þar á eftir.”
„En Þórey hefur verið hér í 18
ár,“ segir Alda.
„Nei ekki alveg svo lengi,“ segir
Þórey þá.
„Jú, þú byrjaðir daginn sem
Harpa Mjöll fæddist, dóttir mín.
Í alvöru. Þú komst ekki til mín á
Norðfjörð því þú varst að byrja í
vinnunni. Fyrsti dagurinn þinn.“
Þær segja að vel gangi að vinna
saman. „Við erum svo nánar. Ríf-
umst aldrei við kassann eða neitt
svoleiðis. Fólk hefur einmitt orð á
því hvað við erum glaðar hérna,“
segir Þórey.
„Við vorum að breytast úr Sam-
kaup Strax í Kjörbúð. Nú er verðið
lægra. Erum eiginlega bar með
lágvöru,“ bætir Þórey við.
„Fólk kann rosalega vel að meta
þetta hérna á Eskifirði enda náum
við ekkert að setjast niður og fá
okkur að drekka. Allir á hlaupum
því nóg er að gera,“ segir Alda. | bg
Alda og Þórey eru nánar systur og vinna saman í kjörbúðinni á Eskifirði. Mynd | BG
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
Vörurnar fást í Lyf og heilsu, Apótekaranum, Hraunbergsapóteki, Lyfjaveri,
Lyfsalanum Glæsibæ,Akureyrarapóteki, Apóteki Mos og Apóteki Ólafsvíkur.
Nánari upplýsingar
fást á www.wh.is.