Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 2
Trúmál Sóknargjöld þjóðkirkj- unnar eru ekki félagsgjöld ólíkt því sem hefur verið haldið fram af ráðherra sem rökum fyrir mörg hundruð milljóna króna aukaframlagi til kirkjunnar. Sindri Guðjónsson, fyrrverandi for- maður Vantrúar, stefndi ríkinu til að fá úr því skorið hvort það fyrir- komulag að ríkið noti tekjuskatt til að greiða sóknargjöld brjóti í bága við ákvæði stjórnarskrár um trú- frelsi. Honum barst nýverið vörn ríkisins í málinu þar sem því er al- farið mótmælt að sóknargjöld séu félagsgjöld heldur framlög frá rík- inu. Það þýðir að rök meðal annars Ólafar Nordal, fyrrverandi innan- ríkisráðherra, fyrir leiðréttingu á skerðingu fjárframlaga til kirkj- unnar, falla um sjálf sig. Ólöf sagði við RÚV árið 2015 að ríkið væri að innheimta sóknargjöldin fyrir hönd kirkjunnar. Framlög til Þjóðkirkjunnar hafa hækkað um mörg hundruð millj- ónir króna á síðustu árum á grund- velli þess að sóknargjöld væru fé- lagsgjöld. Í fjárlögum ársins 2016 hækkuðu framlög til kirkjunnar um 400 milljónir króna til að „vega á móti hluta aðhaldskrafna á tímabil- inu 2009–2012“, líkt og það er orðað í frumvarpi. | hjf Sindri Guðjónsson stefndi ríkinu vegna sóknargjalda. 2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017 Lægra verð í Lyfju lyfja.is Verð: 720 kr Hjarta-Aspirín á 20% afslætti út janúar. Verð áður: 899 kr afslátt ur 20% Dómsmál Sveinn Andri Sveins- son fær ekki að taka skýrslur af tveimur matsmönnum, taugalæknum, sem leggja fram faglegt mat tengt andláti níu mánaða gamals ungbarns sem Sig urður Guðmunds son var dæmd ur fyr ir að hafa valdið dauða í dag gæslu í Kópa vogi árið 2001. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Málið var endurupptekið hér á landi árið 2013 eftir að þekkt- ur barnatauga- læknir í Bret- landi, Waney Squier, lagði fram sér- fræðimat þar sem einkenni svokallaðs „shaken baby syndrome“ voru dregin í efa. Eins og fyrr segir var Sigurður Guðmundsson dæmdur fyrir að hafa orðið barninu að bana og var talið að hann hefði hrist barnið harkalega með þeim afleiðingum að það lést í hans umsjá. Sigurður hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og varð mál hans það fyrsta sem var endurupptekið af Hæsta- rétti Íslands árið 2013. Þar vó mat Waney Squier þungt. Í vikunni fór Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sigurðar, fram á að fá að taka skýrslur af matsmönnunum tveimur í sitt hvoru lagi, en hann telur að þeir hafi ekki fylgt lögum þar sem þeir áttu að komast að sameigin- legri niðurstöðu sem matsmenn. Niðurstaðan er sú sama hjá þeim báðum í flestum efnisatriðum, en þeir virðast ekki hafa fundað líkt og reglur kveða á um. Hæstiréttur hafnaði því að Sveinn Andri fengi að taka skýrslur af mönnunum. Sveinn segir niðurstöður þeirra mikilvægar fyrir málflutning rík- issaksóknara. „Það er kveðið á um það í lögum að yfirmatsmenn eiga að funda um niðurstöð- una, og til að halda öllu til haga vildi ég láta á þetta reyna,“ segir Sveinn Andri. Sveinn Andri segir mat breska taugalæknisins enn liggja fyrir sem eitt helsta gagnið í endur- upptökumálinu, þrátt fyrir að henni hafi verið meinað að bera sérfræðivitni fyrir breskum dóm- stólum af breska læknaráðinu. Úr- skurður um málið féll í nóvember síðastliðnum og þar kom fram að Squier hefði farið út fyrir þekk- ingarsvið sitt í dómsmálum sem varða barnahristing. Eins hafi hún sérvalið rannsóknir til þess að rökstyðja eigin skoðanir. Búist er við að mál Sigurðar verði tekið fyrir í Hæstarétti næsta haust. Læknir í barnahristingsmáli má ekki bera vitni í Bretlandi Waney Squier er þekktur breskur barnataugalæknir. Kirkjan fékk hundruð milljóna á röngum forsendum Starfandi stjórnmálamenn í vestrænum lýðræðisríkjum í Panamaskjölunum og afdrif þeirra Nafn Staða eftir Panamaskjölin Staða í dag Bjarni Benediktsson Óbreytt Þingmaður og forsætisráðherra David Cameron (Bretland) Óbreytt Hætti sem forsætisráðherra eftir Brexit Jose Manuel Soria (Spánn) Sagði af sér ráðherraembætti Hættur í stjórnmálum Júlíus Vífill Ingvarsson Sagði af sér sem borgarfulltrúi Hættur í stjórnmálum Konrad Mizzi (Malta) Missti ráðherraembætti Ráðherra án málaflokks Malcom Turnbull (Ástralía) Óbreytt Forsætisráðherra Mauricio Macri (Argentína) Óbreytt Forseti Ólöf Nordal Óbreytt Þingkona Petro Poroschenko (Úkraína) Óbreytt Forseti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Sagði af sér ráðherraembætti Þingmaður Fyrrverandi stjórnmálamenn í Panamaskjölunum eru ekki á listanum, einungis stjórnmálamenn sem voru starfandi þegar skjölin voru opinberuð í vor. Bjarni er eini stjórn mála ­ maðurinn í Panama­ skjölunum sem hefur orðið forsætisráðherra Stjórnmál Bjarni Benediktsson er eini stjórnmálamaðurinn í Panamaskjölunum sem er í valdameira embætti nú en þegar Panamaskjölin voru opinberuð. Tveir af þremur erlendum ráð- herrum misstu ráðuneyti sín út af Panamaskjölunum. Á Íslandi sagði einn af þremur Panama- ráðherrum af sér. Vegtylla Bjarna Benediktssonar vekur heimsathygli út af veru hans í Panamaskjölunum. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er eini starf- andi stjórnmálamaðurinn í heim- inum úr Panamaskjölunum sem orðið hefur forsætisráðherra eftir lýðræðislegar kosningar í kjölfar- ið á birtingu skjalanna. Samkvæmt athugun Fréttatímans á afdrifum þeirra stjórnmálamanna í vestræn- um lýðræðisríkjum sem koma fyrir í skýrslunni er Bjarni sá eini sem nú er í valdameira embætti en hann var í þegar Panamaskjölin voru birt. Þessi bætta pólitíska staða Bjarna er afleiðing lýðræðislegra kosninga. Bjarni átti hlut í félaginu Falson og co. á Seychelles-eyjum en félag- ið var notað í fasteignaviðskiptum í Dubaí, líkt og komið hefur fram. Eftir atburði vikunnar er Bjarni orðinn forsætisráðherra í nýrri rík- isstjórn Íslands og bentu erlendir fjölmiðlar á það, meðal annars Was- hington Post, Süddeutsche Zeitung, Le Monde og fleiri á að Ísland hefði ýtt einum forsætisráðherra sem kemur fyrir í Panamaskjölunum úr embætti en að svo væri annar stjórnmálamaður í Panamaskjölun- um tekinn við sama embætti. Þessi staðreynd um nýjan forsætisráð- herra Íslands vekur því athygli víða um lönd, rétt eins og aðkoma Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar að félaginu Wintris á Tortólu vakti athygli erlendra fjölmiðla í fyrra. Boðað var til nýrra kosninga í haust út af skattaskjólstengslum Sigmund- ar Davíðs og er ein af niðurstöðum kosninganna að annar stjórnmála- maður sem stundaði viðskipti í skattaskjóli tekur við. Tveir forsetar lýðræðisríkja eru í Panamaskjölunum, Mauricio Macri í Argentínu og Petro Poroschenko í Úkraínu, og eru þeir báðir ennþá forsetar viðkomandi landa þrátt fyr- ir að hafa verið í skjölunum. Þá er Malcolm Turnbull ennþá forsætis- ráðherra Ástralíu þrátt fyrir að vera í skjölunum en hann var stjórnandi félags á Bresku Jómfrúareyjum fyr- ir rúmum tuttugu árum. Þessir þrír menn voru hins vegar kosnir til embætta áður en Panamaskjölin voru opinberuð, öfugt við Bjarna. Íslensku stjórnmálamennirnir í Panamaskjölunum. David Cameron hætti sem forsætisráðherra eftir Brexit. Jose Manuel Soria er hættur í stjórnmálum. Konrad Mizzi missti ráðherraembætti. Malcom Turnbull er forsætisráðherra í Ástralíu. Mauricio Macri er forseti Argentínu. Petro Poroschenko. Ríkið má kaupa jörð við Jökulsárlón Stjórnmál Eitt af síðustu verkum fyrri ríkisstjórnar var að nýta forkaupsrétt að jörðinni Felli við Jökulsárlón. Deilur hafa staðið um viðskiptin. Íslenska ríkið getur nýtt forkaups- rétt sinn að jörðinni Felli við Jök- ulsárlón og þar með eignast jörðina. Þetta er mat sýslumannsins á Suðurlandi en Fréttablaðið sagði frá því í gær, fimmtudag, að kaup ríkisins á jörðinni gætu verið í upp- námi þar sem fráfarandi ríkisstjórn hafi tilkynnt það of seint að hún ætl- aði að nýta rétt sinn. Fell verður því ríkisjörð þrátt fyrir allt, miðað við þetta mat sýslumannsins. Ákvörðunin um að ganga inn í kaupin á jörðinni var eitt af síð- ustu verkum fráfarandi ríkisstjórn- ar sem veitti 1.5 milljarða króna til kaupanna á fjáraukalögum fyrir árið 2017. Þannig gekk ríkið inn í tilboð eignarhaldsfélagsins Fögru- sala ehf. en á bak við það félag voru óþekktir aðilar. Fjárfestingarfélagið Thule Investments fór hins vegar fyrir kaupunum en ekki fékkst uppgefið hverjir hefðu fjármagnað félagið. Til stóð að byggja hótel á jörðinni og vera með aðstöðu þar fyrir ferðamenn. Ekki liggur fyrir hvað ríkið ætlar að gera við jörðina. | ifv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.