Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017 Nestisboxamenning í Bandaríkjunum Árið 1935 hlaut Mikki Mús þann heið- ur að vera fyrsta teiknimyndapersón- an til að prýða nestisbox. Skreytingar boxanna þróuð- ust með tíð og tíma og á sjöunda ára- tugnum voru geimboxin gríðarlega vinsæl. Samloka í nestispoka Hér á landi kjósa flestir litlu plast- nestispokana, þó það sé auðvit- að miklu umhverfisvænna að nota margnota box. Í dag eru flest nestis- box úr plasti og margir nota líka mat- arílát á borð við tupperware. Aldrei meira en eitt álegg Skólabörn á Spáni þekkja lítið annað en hvítt langlokubrauð, baquette, með áleggi í nesti. Það sem aðskil- ur spænsku samlokuna frá öðrum samlokum er að á henni er aldrei meira en ein áleggstegund og er þar reykt skinka og spænsk eggjakaka, tortilla, ofarlega á lista þó börnin fái stundum súkkulaðismjör til hátíða- brigða. Orka í smjörpappír Í Noregi pakka allir nestinu sínu í smjörpappír og þar þekkjast hrein- lega ekki nestisbox. Á samlokuna fer oftar en ekki dökkur mysuostur eða kavíar og skola skólabörnin þessu svo niður með mjólk úr lítilli fernu. Epli úr plasti Sum börn fá heitan mat í hádeginu og þurfa ekki mikið meira en einn ávöxt í nestistímanum. Þá er sniðugt er að eiga margnota box sem er sérstaklega hugsað fyrir ávexti. Tiffin box Indversku nest- isboxin, sem kall- ast tiffin, eru á mörgum hæðum og henta því sér- staklega vel fyrir allskyns afganga. Hrísgrjón eða kar- töflur á einni hæð, hverskyns afgangar á annarri og sal- at eða eftirréttur á þeirri þriðju. Hugmyndir í nestisboxið Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Hér á landi hefur aldrei myndast sérstök menning þegar kemur að því að pakka inn nesti, líkt og til dæmis á Spáni þar sem gjörsam- lega allir pakka nesti í álpappír eða í Noregi þar sem hvert manns- barn pakkar inn í smjörpappír. Hér kjósa margir litlu plast-nestispok- ana og sumir margnota box en það hefur heldur aldrei myndast nein sérstök nestisboxamenning, eins og í Bandaríkjunum þar sem nýtt nestibox er hluti af innkaupunum í upphafi hvers skólaárs. Flestir foreldrar þekkja þann höfuðverk sem því fylgir að finna rétta nestið í skólann fyrir börnin eða með sér í vinnuna, þó flestir stærri vinnu- staðir bjóða nú upp á hádegismat og sífellt fleiri borði úti í hádeginu. En hér eru nokkrar hugmyndir í boxið fyrir ráðþrota foreldra og þá sem vilja spara. Bentobox Á fáum stöðum í heiminum eru nest- isboxin jafn metnaðarfull og í Japan. Boxin, sem kallast Bento, koma í allskyns útgáfum en eru alltaf með mörgum hólfum. Í Japan er algengast að sjá sushi, tofu, hrísgrjón og græn- meti í boxunum en auðvitað er hægt að setja hvað sem hugurinn girnist í litlu hólfin. Nesti fyrir matvanda Nestismáltíðir eru oft skreytt- ar sem vinsæl dýr eða teikni- myndapersónur í Japan og kallast Kayraben. Það sem upphaflega byrjaði sem leið til að fá börn til að borða hollan mat er nú orðið að vin- sælli keppnisíþrótt þar í landi. Amerískt nesti Samloka, ávextir, kex og djús er sú næring sem helst ratar í amerísku nestisboxin. Hugmyndir í boxið: Samloka getur verið með svo miklu fleira áleggi en osti, kæfu eða skinku. Prófið til dæmis epli og hnetusmjör. Í stað þess að nota samlokubruð er hægt að nota vefjur eða pítubrauð og þeir metnaðarfullu geta gert ein- falda sushirúllu. Hnetur, þurrkaðir ávextir, harðfiskur og smjör, ávextir, niðursneitt grænmeti með ídýfu, og harðsoðin egg eru fínasta meðlæti. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.