Fréttatíminn - 13.01.2017, Page 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017
Konurnar í Gilead eru skyldaðar til
þess að ganga í nokkurs konar ein-
kennisbúningum sem að minna
einna helst á nunnuklæði frá mið-
öldum, litamerktar eftir röðun
innan stigveldisins.
Þrátt fyrir að þetta hljómi
eins og mjög fjarstæðukenndur
veruleiki fyrir flestar konur á Vest-
urlöndum í dag þá er þetta samt
sem áður óhugnanlega líkt því
sem gerst hefur til
dæmis í Afganistan
undir stjórn Talí-
bana. Langvar-
andi stríðsátök og
hernaðarlegrar
íhlutanir vest-
rænna heimsvelda
allt frá nýlendu-
tímum 19. aldar
allt fram til dags-
ins í dag undir-
bjuggu jarðveg-
inn fyrir valdatíð
Talíbana. Það
fyrsta sem flest-
um kemur í hug í
dag þegar minnst
er á Afganistan
er kona í búrku.
Innrás Banda-
ríkjanna í
Afganistan var
að mörgu leyti
réttlætt á þeirri
forsendu að nú
þyrftu hin frjáls-
lyndu Vestur-
lönd að frelsa
konurnar úr búrkunum. Í sláandi
lýsingu í bókinni upplifir Offred
sig sem sýningargrip þegar hún
verður á vegi hópi ferðamanna
sem ljósmynda hana í bak og fyrir,
hún má vitaskuld ekki tala við þá
og hún skynjar það hvernig hún er
hlutgerð sem forvitnileg og exó-
tísk vera. Þetta kallast óneitanlega
á við blætið sem til hefur orðið í
heiminum (sérstaklega á Vestur-
löndum) gagnvart fatnaði og þá að-
allega búrkunum og hijabinu – höf-
uðslæðunum – sem múslimskar
konur ganga með, sumar tilneydd-
ar en aðrar að eigin vali – en allir
virðast hafa skoðun á því hvernig
múslimskar konur eigi eða eigi
ekki að klæða sig. Eflaust, eins og
margar konur sem ólust upp í Mið-
-Austurlöndum fyrir sirka 1980,
man Offred lífið eins og það var
áður en klerkarnir tóku völdin.
Konur hafa ekki alltaf verið í búrk-
um og svarið við spurningunni
um það hver hafi klætt konurnar í
þær er alls ekki svo einfalt.
Umhverfisváin og þríleikurinn
Þrátt fyrir að Handmaid’s Tale sé
enn þekktasta verk Atwood hef-
ur hún skrifað fjölmargar bæk-
ur og hefur hlotið mörg verð-
laun fyrir. Maddaddam þríleikur
hennar, (Oryx and Crake (2003),
The Year of the Flood (2009) og
Maddaddam (2013), hefur notið
mikilla vinsælda undanfarin ár
og eru einnig sjónvarpsþættir
byggðir á þeim í leikstjórn Dar-
ren Aronofsky
í framleiðslu.
Maddaddam þrí-
leikurinn gerist,
líkt og Handmaid’s
Tale, í dystópísk-
um heimi þar
sem hamslaus
neyslu- og gróða-
hyggja í skugga
loftslagsbreytinga
og siðlausrar til-
raunastarfsemi
með genamengi
manna og dýra
leiðir til nokkurs
konar (manngerðs)
heimsendis sem
fáir lifa af. Í heimi
Maddaddam, áður
en mannkynið nær
útrýmir sjálfu sér, er
lífi þegnanna stjórn-
að af CorpSeCorps,
stórfyrirtæki sem
sér um allt eftirlit og
öryggismál. Ríkis-
valdið hefur flust al-
farið yfir á risavaxnar fyrirtækja-
samsteypur og öll spilin eru lögð
í hendur genatækninnar sem fer
vitaskuld úr böndunum. Skyndi-
bitinn heitir „Secret Burger“
vegna þess að enginn má eða vill
vita nákvæmlega hvers konar kjöt
fer í hann, hugvísindi og listir eru
einskis virði í samfélaginu þar sem
sjálfsmorð í beinni útsendingu
á netinu eru skemmtiefni og að-
alpersónurnar spila EXTINCTA-
THON, flókinn leik á netinu sem
gengur út á að geta nefnt allar
lifandi og útdauðar dýrategund-
ir. Efalaust hafa margir lesendur
bóka hennar rekið sig á ýmislegt í
samtímanum sem virðist vera eins
og beint upp úr ímyndunarafli
Atwood.
Heimurinn sem gæti orðið
Margaret Atwood varpar því
fram í bókum sínum ansi myrkri
framtíðarsýn á heiminn sem gæti
orðið ef við höldum áfram á sömu
braut og við erum á í dag. Hvort
sem það er hvert við stefnum í
umhverfismálum eða hvað gerist
þegar hættuleg öfl sem grassera
undir yfirborðinu, eins og rasismi
og kvennhatur, ná yfirhöndinni.
Handmaid’s Tale lifir því enn góðu
lífi árið 2017 og á mikið erindi við
samtímann. Það er gleðiefni að
sagnabrunnur Atwood nái enn
meiri útbreiðslu með sjónvarps-
þáttum byggðum á bæði Hand-
maid’s Tale og Maddaddam þrí-
leiknum.
Ein frægasta tilvitnunin úr
Handmaid’s Tale er „Nolite te
bastardes carborundorum“. Of-
fred finnur þessa dularfullu setn-
ingu á latínu rista inni í skáp í her-
berginu þar sem hún sefur. Þrátt
fyrir að hún skilji ekki setninguna
fyrr en síðar veitir hún henni von í
ánauðinni, fyrirheit um einhvers-
konar samstöðu á milli þjáningar-
systra en líka andstöðu og baráttu
við ríkjandi öfl. Setningin þýðir
„Ekki leyfa óþokkunum að brjóta
þig niður“ – slagorð sem enn nýtist
femínistum sem og öllu umhverf-
is- og mannréttindabaráttufólki 21.
aldarinnar sem nú þarf að takast
á við fjögur ár af Donald Trump á
forsetastóli Bandaríkjanna.
Í apríl gefur streymisveitan Hulu út sjónvarpsþætti byggða
á skáldsögunni The Handmaid’s Tale eða Sögu þernunnar,
eftir kanadíska rithöfundinn Margaret Atwood. Bókin kom
fyrst út árið 1985 og er dystópísk vísindaskáldsaga sem
þar sem konur eru eign ríkisins. Sögusviðið er ekki
svo fjarlæg framtíð í Bandaríkjunum þar sem kristnir
bókstafstrúarmenn, sem kalla sig Syni Jakobs, hafa
komist til valda og stofnað klerkaveldið Gilead í
kjölfar umhverfisslysa og hryðjuverka sem þeir
kenna íslömskum öfgahópum um en bera sjálfir
ábyrgð á.
Marta Sigríður Pétursdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Margaret Atwood ætti að vera mörgum lesendum kunn enda er hún með þekktari sam-
tímahöfundum og eru helstu
einkenni höfundarverks henn-
ar beinskeyttur femínismi og
óhugnanleg hæfni til þess að lýsa
heiminum sem gæti orðið, enda
kýs hún sjálf að kalla þessa tegund
bókmenntaverka nokkurs konar
getgátu skáldskap (e. speculati-
ve fiction). The Handmaid’s Tale
olli töluverðu fjaðrafoki þegar
hún kom fyrst út en festist fljót-
lega í sessi sem sígilt femínískt
bókmenntaverk og var innlegg í
umræðu þess tíma, en kristilegir
sjónvarpspredikarar drottnuðu
yfir sjónvarpsskjánum og sam-
félagsumræðunni þá. í bókinni
er að finna beinar vísanir í fræga
sjónvarpspredikara þess tíma. Það
var svo gerð kvikmyndaaðlögun
eftir bókinni árið 1990 með Na-
töshu Richardsson í aðalhlutverki
og kom Harold Pinter að hand-
ritsgerðinni sem þótti mjög flókið
verkefni vegna þess að sagan er að
mestu leyti sögð í fyrstu persónu.
Umræða um Handmaid’s Tale
hefur sprottið upp aftur núna
bæði út af nýju sjónvarpsþáttun-
um og í kjölfar umdeilds framboðs
og svo sigurs Donalds Trump í
kosningabaráttunni um forseta-
embættið vestra. Það þarf vart að
taka það fram að Donald Trump
hefur með framgangi sínum tekist
að normalísera hatursfulla orð-
ræðu gagnvart konum og fólki af
öðrum þjóðernum og kynþáttum
en hvítum bandarískum auk þess
sem hann afneitar hnattrænni
hlýnun. Leikkonan Elizabeth
Moss, þekkt fyrir hlutverk sitt
sem Peggy í Mad Men, sem fer
með aðalhlutverkið í nýju þátt-
unum segir í viðtali við Vulture á
netinu að sig hafi ekki órað fyrir
því þegar undirbúningur hófst
fyrir þáttagerðina að þeir ættu
eftir að eiga svona mikið erindi við
samtímann.
Frá Gilead til Afganistan
Ástandið er eins í Gilead og víða
annars staðar í dystópískum fram-
tíðarsýnum að frjósemi er gríðar-
lega sjaldgæf (af völdum mengun-
ar) þannig að þær konur sem enn
eru frjóar verða að samfélagseign,
líkamar þeirra að útungunarvél-
um og þeim sem ekki framleiða
er hent á haugana – í vændi eða
vinnuþrælkun. Orð og notkun
tungumálsins er jafnframt forboð-
in í Gilead, enda er þöggun eitt
mikilvægasta vopn þeirra sem vilja
beygja aðra undir sig. Söguhetjan í
Handmaid’s Tale heitir þannig Of-
fred - Of Fred, hún tilheyrir Fred.
Sagan um
þernuna
snýr aftur
Elisabeth Moss
fer með aðalhlut-
verkið í þáttunum
sem byggja á The
Handmaid’s Tale.
Moss er þekktust
fyrir hlutverk sín
í MadMen, Top of
the Lake og
Girl, Interr-
upted.
Setningin „Ekki leyfa óþokkun-um að brjóta þig niður“ úr The Handmaid’s Tale er slagorð sem enn nýtist femínistum sem og öllu umhverfis- og mannréttinda-baráttufólki 21. aldarinnar sem nú þarf að takast á við fjögur ár af Donald Trump á forsetastóli
Bandaríkjanna.
Margaret Atwood varpar því fram í
bókum sínum ansi myrkri framtíðar-
sýn á heiminn sem gæti orðið ef við
höldum áfram á sömu braut og við
erum á í dag. Hvort sem það er hvert
við stefnum í umhverfismálum eða
hvað gerist þegar hættuleg öfl sem
grassera undir yfirborðinu, eins og ras-
ismi og kvennhatur, ná yfirhöndinni.
Mynd | Getty Images.
„Ekki leyfa óþokkunum
að brjóta þig niður.“
sushisocial.is
HOT MAGURO RÚLLA
Ljúffengar rækjur, gómsætur
túnfiskur, mjúkt avókadó,
spicy jalapeno mayo og
kimchee ... fáránlega góð!
Djúsí
Sushi