Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017
Vann bug á kvíða
með jóga
Tónlistarmaðurinn og jógakennarinn Benedikt Freyr
kennir kvíðastjórnun með jóga
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Þú ert ekki allt í einu orðinn heilagur þótt þú stundir jóga, þetta er meira að sumir fara í ræktina og aðrir fara
í jóga, ég geri hvort tveggja,“
segir tónlistarmaðurinn og
jógakennarinn Benedikt Freyr
Jónsson sem tekst á við kvíða
sinn með töfrum jógaæfinga.
„Börn fæðast inn í heiminn
með fullkomna öndun og eru
áhyggjulaus. Í kring um sex ára
aldurinn byrjum við að breyta
önduninni því við erum að
byrja að takast á við samfélag-
ið. Við förum út af náttúrulegu
önduninni okkar og byrjum að
þróa með okkur vana sem við
tökum upp á. Ég tek oft eftir
því að til dæmis krakkar sem
eiga erfitt uppdráttar í skóla
eru oftast með aðeins grynnri
öndun eða byrja ósjálfrátt að
anda öfugt. Ég fattaði sjálf-
ur þegar ég var 25 ára að ég
andaði öfugt. Þessi öndun er
rosalega stresstengd,“ segir
Benedikt.
Að sögn Benedikts eru
margir þættir tengdir jóga sem
eru frábærir til að losa um
stress og streitu. „Það eru rosa-
lega margir þættir sem hjálpa
þér að losna við kvíða í jóga.
Jóga hjálpar þér að tengjast öll-
um orkustöðvunum þínum og
um leið að komast nær sjálfum
þér. Þetta er hreyfing fyrir þig
og svo er verið að gera æfingar
sem styrkja ákveðin svæði í lík-
amanum, ákveðnar orkustöðv-
ar. Í þessi tilviki erum við að
vinna mikið með miðjusvæðið
sem er kölluð þriðja orkustöð-
in. Það getur vantað mikið upp
á þriðju orkustöðina ef maður
er að eiga við kvíða. Með jóga
lærir maður að vera hlutlaus og
tilgangurinn með því að verða
hlutlaus er sá að vera alltaf í
núinu því ef maður er í núinu
þá nær maður að anda rétt og
slaka á.“
„Ég hef sjálfur verið að
stríða við kvíða og hann kem-
ur og fer,“ segir Benedikt en
hann er þekktur plötusnúð-
ur á skemmtistöðum bæjar-
ins og getur því fylgt mikill
frammistöðukvíði. „Ég hef sótt
mikið í það að vera í aðstæðum
sem valda kvíða, ég spila mikið
sem plötusnúður og kem fram
sem tónlistarmaður fyrir fram-
an fullt af fólki. Fyrst pössuðu
þessi líf ekkert saman en ég
drekk ekki og er þarafleiðandi
ekki að vinna á næturnar í ein-
hverju ástandi sem hentar ekki
lífsstílnum.“
Benedikt byrjaði í jóga fyr-
ir sex árum í Jógasetrinu og
breytti sú ákvörðun lífi hans.
„Ég var eini karlmaðurinn með
24 konum í tímanum og mér
fannst skrítið fyrir mig að vera
þarna þegar ég var að byrja.
En eftir tímann helltist yfir mig
vellíðunartilfinning og öndun-
in kom allt í einu rétt inn. Þetta
var rosaleg losun. Mér datt
aldrei í hug að ég vildi kenna
en þegar ég var kominn lengra
með vinnunni mína þá fannst
mér eins og ég þyrfti að gefa
áfram það sem ég hafði öðlast.“
Benedikt Freyr Jónsson er jógakennari ig tónlistarmaðuar ásamt því að vera fjögurra barna faðir.
Föstudagurinn þrettándi
rammkristinn og nýr
af nálinni
Þó bæði talan þrettán og föstudagur hafi verið talin boða óheppni um nokkurn
tíma er það ekki fyrr en síðla á nítjándu öld sem þessu tvennu er blandað saman.
Föstudagurinn þrettándi er
í dag og munu hjátrúarfullir
væntanlega hafa varann á. Fæst-
ir gera sér þó grein fyrir því að
trú á þennan meinta óhappadag
er rammkristin og frekar nýleg.
Almennt er talið að rekja megi
uppruna hjátrúarinnar til síð-
ustu kvöldmáltíðarinnar.
Bæði föstudagur og talan þrett-
án hafa verið talin boða óheppni í
kristni frá miðöldum. Líklegast er
að föstudagur hafi verið talin boða
óheppni vegna krossfestingar Jesú
sem bar upp á þann dag. Í Kantara-
borgarsögum Geoffrey Chaucer frá
14. öld er til að mynda varað við því
að fólk ferðist á föstudegi. Talan
þrettán boðar óheppni af svipuð-
um ástæðum og föstudagur innan
kristni en hún er tengd við svik-
arann Júdas. Hann var þrettándi
maðurinn sem sat við borðið þegar
Jesús snæddi í síðasta skiptið.
Ólíkt föstudegi eru ekki mörg
dæmi í bókmenntum um að talan
þrettán hafi boðað óheppni fyrir
nítjándu öld. Eitt dæmi er þó frá 16.
öld en talnaspekingurinn Petrus
Bungus taldi töluna boða óheppni
meðal annars vegna þess að kurr
kom upp á meðal gyðinga þrettán
sinnum í Mósebók. Því hefur jafn-
framt verið varpað fram að þrettán
boði óheppni þar sem það sé kven-
leg tala þar sem konur hafa yfirleitt
þrettán tíðahringi á ári.
Þó bæði talan og dagurinn
hafi verið talin boða óheppni um
nokkurn tíma er það ekki fyrr
en síðla á nítjándu öld sem þessu
tvennu er blandað saman. Raunar
kemst hjátrúin ekki á flug fyrr en
við upphaf tuttugustu aldar og er
talið að metsölubókin Föstudagur-
inn þrettándi eftir Thomas W. Law-
son, frá árinu 1907, hafi þar skipt
sköpum. | hjf
Ég fattaði sjálfur
þegar ég var 25 ára
að ég andaði öfugt.
Opinn hljóðnemi og lifandi karókíband
Djöflarnir starta nýjung í íslenskri karókímenningu.
Það er alls ekki oft sem hægt er að
syngja sín uppáhaldslög við lifandi
tónlist en hljómsveitin Djöflarnir
mun bæta úr því á Kexinu í kvöld.
„Persónulega hlakka ég mest til að
sjá einhvern taka Let it Go og I Will
Survive, ef það tekur þau engin
þá verð ég bara að gera það sjálf,“
segir Sandra Barelli, karókíkynnir
með meiru sem lofar miklu stuði
í kvöld. „Svo er fullt af góðum ís-
lensku lögum á listanum og það
er auðvitað nýjung í karókí hér á
landi. Það eru 120 lög á listanum
og hann mun ganga um salinn og
svo tek ég við pöntunum.
Djöflana skipa listamennirnir
sem sjá um tónlistina í Djöflaeyj-
unni í Þjóðleikhúsinu og verð-
ur þetta fyrsta tilraun þeirra á
karókísviði en þeir stefna ótrauðir
á frekari frama í þeim efnum með
uppákomum í hverskyns partíum.
Gamanið hefst klukkan 20 í kvöld.
| hh
Í kvöld ætla nokkrir af okkar færustu tónlistarmönnum að þjónusta karókísöngvara landsins með lifandi undirspili á Kexinu.
Djöflana skipa tónlistarmennirnir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Hjörtur Ingvi
Jóhannsson hljómborðsleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxafónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari.
BRIDS
SKÓLINN
BYRJENDUR (stig 1) 23. janúar 8 mánudagar frá 20-23
ÚRSPILIÐ (stig 3) 25. janúar 8 miðvikudagar frá 20-23
• STIG 1 Á byrjendanámskeiði er farið vel yfir leikreglur
spilsins og undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfis.
Ekkert mál að mæta ein/einn.
• STIG 3 Spilamennskan er í forgrunni á þessu námskeiði,
áætlanagerð sagnhafa í trompi og grandi. Mikið spilað og
ekki nauðsynlegt að koma með makker.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík
• Sjá nánar á . . . bridge.is
• Upplýsingar og innritun í síma . . . 898-5427
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦