Fréttatíminn - 20.01.2017, Qupperneq 6
Íþróttir „Þótt ofþjálfun hafi verið
rannsökuð hjá íþróttafólki vantar
sambærilegar rannsóknir þegar
kemur að almenningi: Hvað er
heilbrigð líkamsrækt og hvar
byrja öfgarnar?“ spyr Guðlaug
Þorsteinsdóttir sem veitir for-
stöðu átröskunarteymi á geðdeild
LSH. Guðlaug segir marga skjól-
stæðinga sína eiga bakgrunn í
afreksíþróttum en áhættan þar er
þreföld. „Þetta eru hæfileikaríkir
og metnaðargjarnir krakkar sem
missa tökin og fara að ofgera sér.“
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Venjulegt fólk getur líka byrjað
að ofgera sér þegar líkaminn fær
ekki næga hvíld milli æfinga og
líkaminn ekki nauðsynlega nær-
ingu. „Þá er fólk líka að innbyrða
allskyns efni, bæði lögleg og eins
ólögleg til að hraða brennslu og
byggja sig fljótar upp.Og meiðsl
geta einnig sett strik í reikninginn,
fólk hreinlega slítur sér út,“ segir
Guðlaug.
Petra Lind sálfræðingur kynnir
nýja rannsókn sína á líkamsímynd
fólks úr ólíkum íþróttagreinum,
þar sem hefur orðið til ákveðin
menning í kringum ákveðnar
íþróttagreinar, eins og dans, fim-
leika og hlaup, sem einkennist af
stöðugri sjálfsgagnrýni á líkamann
og þráhyggju í mataræði. „Það
sem kannski var mest sláandi við
þessar niðurstöður er að einkenni
átraskana eru að ryðja sér til rúms
innan fleiri íþróttagreina og þær
ná nú bæði til karla og kvenna.
Þannig eru einkenni neikvæðrar
líkamsímyndar og átröskunar eig-
inlega komnar inn á öll svið íþrótt-
anna, jafnvel boltaíþrótta.“
Vantar að rannsaka hinn öfgakennda Íslending
Hvað er heilbrigð
líkamsrækt og hvar
byrja öfgarnar?
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Guðlaug Þorsteins-
dóttir geðlæknir
segir að það vanti
rannsóknir á líkams-
rækt hins öfgakennda
Íslendings.
Petra Lind sálfræðing-
ur hefur rannsakað
líkamsímynd fólks úr
ólíkum íþróttagrein-
um.
Skattamál Íslenska skattkerfið
sker sig frá skattkerfum ríkjanna
í okkar heimshluta að því leyti
að þótt skattbyrði launatekna sé
hér með því hæsta sem þekkist er
skattbyrði fyrirtækja og fjár-
magns lægri en nokkurs staðar
í okkar heimshluta. Það er helst
að finna sambærileg dæmi í þeim
löndum Austur-Evrópu sem geng-
ið hafa lengst í nýfrjálshyggjuátt.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Þótt vinstri stjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttur og Steingríms J. Sig-
fússonar hafi hækkað skatta á fyrir-
tæki og fjármagn fljótlega eftir Hrun
er skatthlutfallið á Íslandi enn mjög
lágt í alþjóðlegum samanburði. Fyr-
ir hækkanir vinstri stjórnarinnar
var tekjuskattur á fyrirtæki 15 pró-
sent og fjármagnstekjuskattur 10%.
Samanlagður skattur á fjármagnið
frá fyrirtækinu til eigenda síns eft-
ir að fyrirtækið hafði greitt arð var
því 23,5 prósent. Það er sambæri-
legt hlutfall og er í Lettlandi í dag
og lægra en í Slóvakíu og Eistlandi,
þar sem enginn fjármagnsskattur er
innheimtur.
Austur-evrópskt kerfi
Með hækkun fyrirtækjaskatts upp í
20 prósent og fjármagnstekjuskatts
upp í 20 prósent hækkaði saman-
lagt hlutfallið á Íslandi upp í 36
prósent. Við það fóru Íslendingar
úr þriðja neðsta sætinu af 35 ríkj-
um Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar, OECD, upp um fjögur
sæti. Í dag er þetta hlutfall hærra en
í áðurnefndum löndum, Lettlandi,
Slóvakíu og Eistlandi, en einnig
hærra en í Póllandi, Ungverjalandi
og Tékklandi.
Það er hins vegar ekki lægra í
nokkru landi í nágrenni við okk-
ur. Sviss kemst næst því með 37,8
prósent, Austurríki með 41,9 pró-
sent og Holland með 43,8 prósent.
Á hinum endanum er Kanada með
66 prósent, Frakkland með 64,4
prósent og Lúxemborg með 57,5
prósent.
Á Norðurlöndunum er þetta
hlutfall lægst í Svíþjóð, 45,4 pró-
sent, rétt tæplega 10 prósentustig-
um hærra en á Íslandi. Það er síðan
46,6 prósent í Noregi, 47,2 prósent
í Finnlandi og 54,8 prósent í Dan-
mörku.
Meðaltal Norðurlandanna er 48,5
prósent og meðaltal velferðarríkj-
anna í okkar heimshluta, Norður-
landanna, Bretlandseyja, Niður-
landa, Þýskalands og Frakklands;
er 51,0 prósent. Íslendingar inn-
heimta því ekki nema rúmlega tvo
þriðju af þeim sköttum af fyrirtækj-
um og fjármagni sem gert er í ná-
grannalöndunum.
Vantar 35 milljarða
Þetta hlutfall segir ekki til um
tekjutap ríkissjóðs vegna lágra
skatta á fyrirtæki og fjármagn í
samanburði við næstu lönd. Þar
ræður líka samsetning skattsins,
hversu hár tekjuskattur fyrirtækja
er og hversu hár fjármagnstekju-
skatturinn er. Þegar það er skoðað
kemur í ljós að Íslendingar myndu
innheimta hæsta skattinn af fyrir-
tækjum og fjármagni ef þeir tækju
upp skattkerfi Frakka. Miðað við
áætlaða skattstofna tekjuskatts fyr-
irtækja og fjármagnstekjuskatts í
fyrra myndu Íslendingar innheimta
um 80 milljörðum króna meira en
þeir gera í dag.
Frakkland er ýkt dæmi. En ef við
tökum meðaltalsfrávik íslenskra
skattheimtu og velferðarríkjanna
næst okkur, Norðurlanda, Bret-
landseyja, Niðurlanda, Þýska-
lands og Frakklands, innheimta Ís-
lendingar um 35 milljörðum króna
minna í skatt af fyrirtækjum og fjár-
magni en okkar næstu nágrannar.
Lækkun skatta á fyrirtæki og
fjármagn í velferðarríkjunum, þró-
un sem var drifin áfram af skatta-
samkeppni og fjárflótta til aflands-
svæða, er helsta ástæða hrörnunar
velferðarkerfanna og þeirra samfé-
Kanada
Frakkland
Ástralía
Mexíkó
Lúxemborg
Írland
Bandaríkin
Suður-Kórea
Danmörk
Chile
Belgía
Nýja Sjáland
Bretland
Portúgal
Ísrael
Þýskaland
Tyrkland
Finnland
Noregur
Ítalía
Svíþjóð
Japan
Holland
Spánn
Austurríki
Sviss
Slóvenía
Grikkland
Ísland
Pólland
Tékkland
Ungverjaland
Lettland
Slóvakía
Eistland
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70%
Skattbyrði fyrirtækja
og fjármagns
Heimild: OECD
Íslenska ríkið innheimtir mun lægri skatta
af fyrirtækjum og fjármagni en okkar
helstu nágrannalönd, Ísland er líkara lönd-
um Austur-Evrópu en næstu nágrönnum
okkar að þessu leyti. Súlurnar sýna sam-
anlagða skattbyrði hagnaðar fyrirtækja og
fjármagnstekna af arði í löndum Efnahags-
og framfarastofnunarinnar, OECD. Eins og
sjá má er skattbyrði næstum tvöfalt hærri í
Kanada en á Íslandi og víðast í okkar heims-
hluta er hún miklum mun hærri.
Ekkert er um
skattahækkanir
á fyrirtæki
eða fjármagn
í stjórnarsátt-
mála ríkis-
stjórnar Bjarna
Benedikts-
sonar, þess
aðeins getið að
tryggingagjald
á launatekjur
verði lækkað
og settir á
grænir skattar
til að ýta undir
umhverfis-
væna hegðan
neytenda og
fyrirtækja.
Mikil eftirgjöf skatta til
fyrirtækja og fjármagns
lagslegu rósta sem hún hefur skap-
að. Í okkar heimshluta gekk ekkert
ríki jafn langt í þessum skattalækk-
unum og Ísland. Þrátt fyrir nokkra
leiðréttingu í tíð vinstri stjórnarinn-
ar skera Íslendingar sig enn úr öðr-
um þjóðum í okkar nágrenni fyrir
mikla eftirgjöf skatta til fyrirtækja
og fjármagns.
Mjúk og falleg
„satin striped“
Policotton sængurföt.
Sængurver 140x200 cm
Koddaver 50x70 cm
Fullt verð: 6.490 kr.
DORMA HOME
sængurföt
Aðeins 4.868 kr.
Svart eða brúnt
PU-leður.
Stærð: 80x90 H: 105 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
POLO
hægindastóll
ÚTSALA DORMA
NÚ Á FJÓRUM STÖÐUM
Nýttu tækifærið
ÚTSALAN
í fullu fjöri
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 12–16 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
25%
AFSLÁTTUR
Aðeins 19.950 kr.
50%
AFSLÁTTUR
NATURE’S REST
heilsurúm m/classic botni
Verðdæmi
120 x 200 cm
Fullt verð: 79.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 120x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Svart PU
leður á botni.
Aðeins 59.920 kr.
OPIÐ Á SUNNUDÖGUM Í
DORMA SMÁRATORGI