Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 12
Ein skipulagðasta athöfn í heimi 12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017 Ball um kvöldið Að kvöldi innsetningardagsins er auðvitað haldið ball og ljóst að gleði- maðurinn Donald Trump mun ekki láta það tækifæri sleppa. Reyndar eru þrjú böll samþykkt að þessu sinni í Washington en fjölmörg önnur er að finna víða um landið og þau hafa reyndar verið haldin af ýmsum hóp- um síðustu daga. Fyrsta ballið héldu Madison hjónin 1809 og þá kostaði 4 dollara inn. Í dag, 20. janúar, tekur Donald John Trump við embætti forseta Bandaríkjanna. Innsetningarathöfnin er í föstum skorðum, en margt af hefðunum má rekja aftur til fyrstu daga ríkjasambandins. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Mánaða undirbúningur Tvær nefndir hafa yfirumsjón með athöfninni en vinnan hefur staðið yfir frá því seint í september. Lögreglu- menn og hermenn standa vaktina í tugþúsunda tali en hermennirnir sjá einnig um að spila í lúðrasveitum, marsera í takt og skjóta heiðursskot- um úr fallbyssum. Washington ekki í Washington Þó forsetar Bandaríkjanna taki við embætti í Washington D.C. var reyndin ekki sú um manninn sem borgin er nefnd eftir. Fyrsti forsetinn, George Washington, tók við embætti í New York árið 1789, á tröppum ráðhússins þar í borg. Was- hington fékk fréttirnar af því að hann hefði verið kjörinn forseti nokkrum dög- um eftir að það var ákveðið. Menn voru óákveðnir um titilinn sem fylgja átti nýja embættinu. Sumir vildu tala um „hans góðviljuðu hátign“ en þingnefnd ákvað að rétti titillinn væri „forseti Bandaríkjanna.“ Það var Thomas Jefferson sem fyrstur tók við embættinu í Washington, árið 1801. Verkfall í þingi og skemmtanabransa Fjölmargir sem venjulega mæta á slíkar athafnir ætla nú að sitja heima. Milli fimmtíu og sextíu þingmenn Demókrata munu ekki mæta á athöfn Trumps og hafa verið duglegir við að lýsa ástæðum sínum á samfé- lagsmiðlum síðustu daga. Fjölmargir tónlistarmenn afþökkuðu boð um að leika tónlist fyrir nýja forset- ann umdeilda, meðal þeirra eru Celine Dion, Elton John og Moby. Í stað þeirra koma fram til dæm- is danshópurinn The Rockettes, hljómsveitin 3 Doors Down og sveitasöngvarinn Lee Greenwood. Í skjóli þingsins Þó völd forsetans bandaríska séu mikil fer athöfnin samt fram á tröpp- um þingsins og hefur gert það síðan Andrew Jackson tók við embætti 1829. Þannig er undirstrikað að forsetinn sé þjónn fólksins í landinu. Lengi vel gengu forsetarnir til athafnarinnar með höfuðfat, oft pípuhatt, en síðastur til þess var John F. Kennedy árið 1961. Hættuleg ræða Frægt er að forsetinn William Henry Harrison flutti lengstu innsetningar- ræðu sögunnar árið 1841. Ræðan var 10000 orð á lengd, en gera má ráð fyrir vel rúmri klukkustund í flutningi. Þetta var að vetri til og forsetinn nýi var ekki með hatt, í yfirhöfn eða með hanska. Lungnabólga lagði hann að velli mánuði síðar. Allt í beinni Auðvitað er í dag sýnt beint frá athöfninni en fyrst var útvarpað frá henni árið 1925 þegar Calvin Coolidge tók við embætti. Harry Truman hélt fyrstur sína innsetn- ingarræðu í sjónvarpi en það var Kennedy sem naut sín fyrstur í lit 1961 og Bill Clinton tók netstreymi í sína þjónustu 1997. Guð blessar allt saman Við innsetningarathafnir er trúin allt umlykjandi. Sex trúarleiðtogar munu mæta núna og vitna til um að allt fari rétt fram hjá Trump. Kristnar kirkjudeildir eiga þarna sína fulltrúa en líka gyðingdómurinn (þrátt fyr- ir lítinn stuðning gyðinga við nýja forsetann) og þar eru líka trúarleið- togar úr kirkjudeildum þeirra sem eru af spænskum ættum. Eiðurinn sem forsetinn fer með endar auðvitað á orðunum: „Svo hjálpi mér Guð.“ Það er forseti hæstaréttar, John Roberts, sem hlýðir honum yfir. Risa skrúðganga Allt frá 1805, þegar Thomas Jefferson tók í annað sinn við embætti, hefur bandaríski herinn þrammað í takt til heiðurs nýjum forseta. Í dag taka ríflega 8000 manns þátt í skrúð- göngunni og passað er upp á þar eigi öll fylki landsins sína fulltrúa. Í göngunni eru ekki bara hermenn heldur taka nemendur skóla og há- skóla, sjúkraliðar, slökkviliðsmenn og fyrrum hermenn líka þátt. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.