Fréttatíminn - 20.01.2017, Page 12
Ein skipulagðasta
athöfn í heimi
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Ball um kvöldið
Að kvöldi innsetningardagsins er
auðvitað haldið ball og ljóst að gleði-
maðurinn Donald Trump mun ekki
láta það tækifæri sleppa. Reyndar
eru þrjú böll samþykkt að þessu sinni
í Washington en fjölmörg önnur er
að finna víða um landið og þau hafa
reyndar verið haldin af ýmsum hóp-
um síðustu daga. Fyrsta ballið héldu
Madison hjónin 1809 og þá kostaði 4
dollara inn.
Í dag, 20. janúar, tekur Donald John Trump við embætti forseta
Bandaríkjanna. Innsetningarathöfnin er í föstum skorðum, en
margt af hefðunum má rekja aftur til fyrstu daga ríkjasambandins.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Mánaða undirbúningur
Tvær nefndir hafa yfirumsjón með
athöfninni en vinnan hefur staðið yfir
frá því seint í september. Lögreglu-
menn og hermenn standa vaktina í
tugþúsunda tali en hermennirnir sjá
einnig um að spila í lúðrasveitum,
marsera í takt og skjóta heiðursskot-
um úr fallbyssum.
Washington ekki í Washington
Þó forsetar Bandaríkjanna taki við embætti í Washington D.C. var reyndin ekki
sú um manninn sem borgin er nefnd eftir. Fyrsti forsetinn, George Washington,
tók við embætti í New York árið 1789, á tröppum ráðhússins þar í borg. Was-
hington fékk fréttirnar af því að hann hefði verið kjörinn forseti nokkrum dög-
um eftir að það var ákveðið. Menn voru óákveðnir um titilinn sem fylgja átti
nýja embættinu. Sumir vildu tala um „hans góðviljuðu hátign“ en þingnefnd
ákvað að rétti titillinn væri „forseti Bandaríkjanna.“ Það var Thomas Jefferson
sem fyrstur tók við embættinu í Washington, árið 1801.
Verkfall í þingi og
skemmtanabransa
Fjölmargir sem venjulega mæta á
slíkar athafnir ætla nú að sitja heima.
Milli fimmtíu og sextíu þingmenn
Demókrata munu ekki mæta á athöfn
Trumps og hafa verið duglegir við
að lýsa ástæðum sínum á samfé-
lagsmiðlum síðustu daga. Fjölmargir
tónlistarmenn afþökkuðu boð um
að leika tónlist fyrir nýja forset-
ann umdeilda, meðal þeirra eru
Celine Dion, Elton John og Moby. Í
stað þeirra koma fram til dæm-
is danshópurinn The Rockettes,
hljómsveitin 3 Doors Down og
sveitasöngvarinn Lee Greenwood.
Í skjóli
þingsins
Þó völd forsetans bandaríska séu
mikil fer athöfnin samt fram á tröpp-
um þingsins og hefur gert það síðan
Andrew Jackson tók við embætti 1829.
Þannig er undirstrikað að forsetinn
sé þjónn fólksins í landinu. Lengi vel
gengu forsetarnir til athafnarinnar
með höfuðfat, oft pípuhatt, en
síðastur til þess var John F.
Kennedy árið 1961.
Hættuleg ræða
Frægt er að forsetinn William Henry
Harrison flutti lengstu innsetningar-
ræðu sögunnar árið 1841. Ræðan var
10000 orð á lengd, en gera má ráð
fyrir vel rúmri klukkustund í flutningi.
Þetta var að vetri til og forsetinn nýi
var ekki með hatt, í yfirhöfn eða með
hanska. Lungnabólga lagði hann að
velli mánuði síðar.
Allt í beinni
Auðvitað er í dag sýnt beint frá
athöfninni en fyrst var útvarpað
frá henni árið 1925 þegar Calvin
Coolidge tók við embætti. Harry
Truman hélt fyrstur sína innsetn-
ingarræðu í sjónvarpi en það var
Kennedy sem naut sín fyrstur í lit
1961 og Bill Clinton tók netstreymi
í sína þjónustu 1997.
Guð blessar allt saman
Við innsetningarathafnir er trúin
allt umlykjandi. Sex trúarleiðtogar
munu mæta núna og vitna til um að
allt fari rétt fram hjá Trump. Kristnar
kirkjudeildir eiga þarna sína fulltrúa
en líka gyðingdómurinn (þrátt fyr-
ir lítinn stuðning gyðinga við nýja
forsetann) og þar eru líka trúarleið-
togar úr kirkjudeildum þeirra sem eru
af spænskum ættum. Eiðurinn sem
forsetinn fer með endar auðvitað á
orðunum: „Svo hjálpi mér Guð.“ Það
er forseti hæstaréttar, John Roberts,
sem hlýðir honum yfir.
Risa skrúðganga
Allt frá 1805, þegar Thomas Jefferson
tók í annað sinn við embætti, hefur
bandaríski herinn þrammað í takt
til heiðurs nýjum forseta. Í dag taka
ríflega 8000 manns þátt í skrúð-
göngunni og passað er upp á þar
eigi öll fylki landsins sína fulltrúa.
Í göngunni eru ekki bara hermenn
heldur taka nemendur skóla og há-
skóla, sjúkraliðar, slökkviliðsmenn og
fyrrum hermenn líka
þátt.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum