Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 52
MAGNOLIA OFFICINALIS Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“ SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 Ég var bara lögmaður að gera það sem lögmenn gera allan daginn á skrifstofunni, svo allt í einu var ég kominn í eitthvað allt annað. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Æskuvinirnir Dan-íel Tryggvi Thors og Jón Gunnar Jónsson breyttu heldur betur um stefnu í lífinu seint á síðasta ári þegar þeir sögðu upp störfum sínum í lögmennsku og fjármála- geiranum til að fara út í kaffihúsa- rekstur. Eitthvað sem hvorugur þeirra hafði nokkra reynslu af en eru núna búnir að opna staðinn PREPP á Rauðarárstíg. Þriðji eig- andinn er Davíð Tómas Tómasson tónlistarmaður sem er í námi í Há- skólanum í Reykjavík Gátu ekki sleppt tækifærinu „Við félagarnir vorum búnir að tala um það í lengri tíma að okkur langaði að gera eitthvað skapandi saman. Þetta snerist ekkert endi- lega um að fara saman út í rekstur á fyrirtæki, en svo datt þetta tækifæri inn á radarinn hjá okkur og við urðum að slá til. Við gátum ekki sleppt þessu,“ segir Dan- íel, en þeir félagarnir fréttu að Café Roma væri til sölu, sem var áður í sama húsnæði, „Við ákváðum að láta vaða og ég sagði upp vinnunni minni. Þrem- ur vikur síðar var ég orðinn vert á kaffihúsi.“ Daníel skellir upp úr. Hann gerir sér vel grein fyrir því að það var ekki endilega skynsemin sem réði ferðinni við þessa ákvarðanatöku. Hann langaði einfaldlega til að prófa eitthvað nýtt og taka smá áhættu. Óttast ekki hvað gerist Blaðamaður hittir Daníel á PREPP en Jón Gunnar er vant við látinn. Það er töluverður reytingur á kaffi- húsinu og Daníel er einn í húsinu vegna veikinda starfsfólks. Hann þarf því öðru hverju að skjótast og laga kaffi og samlokur, en PREPP er kaffihús með áherslu á mat, þar sem boðið er upp á samlokur og súpu dagsins ásamt bakkelsi. Og að sjálfsögðu kaffi. „Ég var bara lögmaður að gera það sem lögmenn gera allan daginn á skrifstofunni, svo allt í einu var ég kominn í eitthvað allt annað,“ segir Daníel þegar hann sest niður aftur eftir að hafa af- greitt nokkra kaffibolla. „Ég var búinn að búa mig undir lögmennskuna í lengri tíma og taka störf sem buðust í tengslum við það. Ég var búinn að undirbúa feril. Eins og hendi væri veifað var ég hins vegar kominn „all in“ í veitingageirann. En er ekki lífið of stutt til að vera alltaf öruggur? Ef þetta gengur ekki þá kemur bara næsta ævintýri eða ég fer aftur á skrifstofuna. Ég óttast ekkert hvað gerist í þessum efnum.“ Samningar tryggja vináttu Strákarnir eru æskuvinir sem kynntust í Melaskóla. Jón Gunn- ar og Davíð hófu þar saman skólagöngu en Daníel flutti í hverf- ið þegar hann var átta ára. Hér er því um að ræða yfir tuttugu ára sanna vináttu. „Við erum í vinahópi sem hefur fylgst að frá því við vorum börn og núna er þetta kaffihús vinahópsins,“ segir Daníel kankvís. Aðspurður segist hann ekki óttast að það hafi slæm áhrif á vináttuna vera í sam- eiginlegum rekstri, þar sem ýmislegt getur komið upp. „Við ræddum auðvit- að við lögmenn og neglum allt í samninga. Maður verður að gera sér grein fyrir því að samningar tryggja vináttu. Svo skiptir auðvit- að máli hvernig við erum í skapinu og vinnum saman. Við vitum alveg að hverju við göngum og hvaða kröfur og væntingar við gerum til hvers annars. Þannig að þó þetta fari alveg á fljúgandi hausinn þá munum við alveg fara saman í bjór á kvöldin. Maður má ekki kvíða því að allt fari á versta veg. Það er óþarfi að hafa áhyggjur af því fyrr en að því kemur. Ef að því kemur.“ Bjóst við yfirheyrslu Daníel segir fjölskyldu og vini hafa tekið merkilega vel í hugmyndina um að fara út í kaffihúsarekstur í stað þess að halda áfram að byggja upp feril sem lögmaður. „Ég spurði Stundum á maður að taka áhættu og hafa gaman Æskuvinir sögðu upp öruggum störfum sínum í lögmennsku og fjármálageiranum til að fara út í kaffihúsa­ rekstur, þrátt fyrir að hafa ekki neina reynslu í þeim efnum. Daníel, einn eigenda kaffihússins PREPP, segist hafa orðið að taka þessa áhættu þegar tækifærið gafst – annars hefði hann alltaf séð eftir því. auðvitað hvorki kóng né prest. Maður biður ekki um leyfi lengur. Ég tilkynnti fólki bara um þessa ákvörðun. Kannski stillti ég fólki þannig upp við vegg hvað skoðanir þess varðaði. Það var svolítið erfitt að segja mér að gera þetta ekki þegar ég var búinn að því. Ég bjóst alveg við því að foreldrar mínir myndu yfirheyra mig og spyrja hvern þremilinn ég væri að gera. Að kasta akademískum ferli mín- um á glæ, eða eitthvað. En þvert á móti þá hef ég fundið fyrir mikl- um stuðningi. Þau hafa gaman af rekstrarpælingum og mamma er mikill kokkur. Hún spyr mikið út í matseðilinn okkar og vill helst ráða hvað er á honum. Við vitum auðvitað ekki allt, þannig að þegar hún kemur og segir okkur hvernig hlutirnir eiga að vera þá hlustum við alveg á það,“ segir Daníel og vinkar til mömmu sinnar, sem er einmitt nýkomin inn á kaffihúsið. Hún vill fá kaffi og sonurinn stekk- ur til. Varð veikur af álagi Þeir félagar höfðu í raun enga reynslu af kaffihúsabransanum þó Daníel hafi unnið um tíma á kaffi- húsi þegar hann var tvítugur. „Ég byggi ekki á þeirri reynslu þegar kemur að því að þróa matseðil, stýra innkaupum eða setja minn brag á þennan stað. Við komum svolítið að tómum kofanum hvað þessa innviði varðar en við erum að læra þetta. Við höfum gert ótal mistök og rekið okkur á hluti sem við vissum ekki að yrðu vandamál. En við erum mjög brattir á fram- haldið. Ég held að þetta eigi eftir að ganga vel hjá okkur og hlakka til framtíðarinnar á þessum stað.“ Daníel segist ekki hafa fengið neina bakþanka þó vissulega sé hann útkeyrður eftir erfiðar vikur við að koma rekstrinum af stað. „Ég hef ekki fengið frí í marga mánuði. Ég varð veikur um daginn og ég held að það hafi ekki verið alvöru veikindi, ég var bara alveg úrvinda. Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt og við tökum þessu bara eins og það er. Þegar skútan er byrjuð að sigla aðeins lygnari sjó þá fer maður í frí. Þangað til er þetta púl og það bjóst enginn við öðru.“ Með opna buxnaklauf á torgi En þó það sé ekki bakþönkum fyrir að fara þá viðurkennir Dan- íel að verkefnið virðist stundum yfirþyrmandi. „Þetta er mikill tilfinningarússíbani suma daga. Við reynum að byggja okkar módel þannig upp að hádegið sé álagstími, en svo kemur rólegt há- degi og þá líður manni eins maður standi með opna buxnaklauf á ein- hverju torgi og allir séu að horfa á mann og hlæja. Daginn eftir er svo kannski troðið af fólki og þá líður manni svaka vel. Maður þarf svo- lítið að koma jafnvægi á þessar til- finningar og læra væntingastjórn- un,“ útskýrir hann. En hefur vináttan eitthvað breyst eða þróast eftir að þeir fóru að starfa svo náið saman? „Ætli við séum ekki bara orðnir betri vinir. Ég hef hangið meira með Jóni Gunnari heldur en kærust- unni minni síðustu mánuði. Við höfum alltaf verið mjög góðir Jón Gunnar og Daníel Tryggvi hafa verið vinir frá því í grunnskóla og óttast ekki að sam- eiginlegur rekstur hafi slæm áhrif á traustan vinskapinn. vinir og að hanga saman í þrettán tíma á dag hefur ekki valdið því að slest hafi upp á vinskapinn. Við höfum báðir mikið jafnaðargeð og það skiptir miklu máli. Maður fer ekki út í svona með hverjum sem er. Fólk þarf að eiga skap saman annars fer allt í bál og brand þegar það kemur einn slæmur dagur.“ Geta haft jákvæð áhrif Heilt yfir finnst honum það hafa gengið glimrandi vel að koma rekstrinum í gang og er mjög ánægður með að hafa stokkið út í djúpu laugina með þessum hætti. „Ég tók mér auðvitað nokkra daga í hugsa hvort ég ætlaði að gera þetta eða ekki. En þetta voru mjög fáir dagar. Ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að slá til var sú að ég taldi að ef ég myndi halda áfram að sitja á skrifstofunni og sinna sömu verkefnunum, sem voru vissulega fín, þá myndi ég sjá eftir því. Ég er ennþá ungur og af hverju ekki bara að kasta teningunum og sjá hvað gerist? Ég veit að ég lendi alltaf standandi. Stundum á maður bara að taka áhættu og hafa gaman,“ segir Dan- íel einlægur. Og þeir hafa nú þegar sett sér markmið fyrir árið. „Við stefn- um ótrauðir á að opna annan stað undir sama merki innan árs. Ég segi þetta fyrst og fremst því við verðum að vera brattir og stefna að einhverju. Ég trúi því að allt gangi betur ef maður er jákvæður. Svo eru önnur markmið sem ég hef verið að átta mig á. Þetta gerð- ist allt svo hratt, á þremur vikum var ég allt í einu kominn í galla að smíða staðinn og smíða matseðil jafnóðum. Að opna einhverja búllu er alveg hlutur út af fyrir sig en svo áttar maður sig á því að mað- ur er með eitthvert samfélagstól í höndunum. Að maður geti haft já- kvæð áhrif á fólk þegar það kemur hingað. Það er alveg frábært.“ Daníel Tryggvi Thors Lögfræðingur og kaffihúsaeigandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.