Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Láttu Harvard drauminn rætast
Nú getur þú látið drauma þína ræt-
ast því skólinn býður upp ókeyp-
is námskeið á netinu fyrir hvern
sem hefur áhuga á að bæta við sig
góðri vitneskju. Nú á mánudag
byrjar nýtt tíu vikna námskeið um
áskoranir í alþjóðlegri lýðheilsu
og getur það námskeið kryddað
samtölin í saumaklúbbnum eða
búningsklefanum í World Class. Ef
þú vilt ganga alla leið er hægt að
nálgast fatnað frá skólanum á
vefsíðunni www.theharvards-
hop.com og þú getur nælt þér
í eitt stykki Harvard peysu.
Láttu drauminn loksins rætast
og láttu það eftir þér að skrá
þig! | hdó
Hlekkur á
námskeið
fylgir
greininni
á vef
Frétta
tímans.
Hefur þig alltaf dreymt um að taka áfanga í hinum
virta Harvard háskóla en ekki haft efni á því?
Konur mótmæla Trump í Reykjavík
„Á öllum Vesturlöndum gætir
vaxandi andúðar í garð innflytj-
enda og flóttamanna. Í Banda-
ríkjunum beinist það sérstaklega
gegn konum, samkynhneigðum,
blökkumönnum og öðrum minni-
hlutahópum. Þetta er orðræða
haturs sem fer eins og eldur í sinu
um heiminn. Þetta er hegðun
sem við verðum að berjast gegn
að verði að normi og þetta er sér-
staklega hættulegt þar sem þetta
kemur frá valdamönnum. Ungir
strákar megi ekki halda að svona
hegðun sé í lagi og ungar stelpur
mega ekki læra að það sé í lagi að
karlar áreiti þær,“ segir Xárene.
Xárene segir að mikilvægast sé
að læra af kosningasigri Trump.
Það sé ekki hægt að ganga að
neinu sem vísu og grasrótarstarf
sé nauðsynlegt til að snúa við
þessari þróun. „Meirihluti Banda-
ríkjamanna kaus ekki Trump og
við leggjum áherslu á það. Við
megum ekki sofa á verðinum því
eftir tvö ár verður
kosið í báðum deild-
um þingsins. Ég
vona að frjálslynt
og framsækið
fólk verði kosið
á þing og það
verði hægt að
vinda ofan af
þessari þró-
un,“ segir
Xárene.
Hún
segir að
karlar
séu vel-
komnir til að taka þátt í mót-
mælagöngunni. „Við erum að
mótmæla kvenhatri
Trumps og það geta all-
ir barist fyrir mann-
réttindum,“ segir
Xárene. Mótmæl-
in hefjast við
Arnarhól klukk-
an tvö á laugar-
daginn. | hjf
Fréttatíminn tók saman hugmyndir að fimm
gjöfum sem myndu nýtast vel sem hinar
fullkomnu bóndadagsgjafir.
Bóndadags
gjafir
Ísbúð
Þetta er dagur
hugulsemi og því
er sterkur leik-
ur að fara saman
í hverfisísbúðina
og leyfa makanum
að velja sér stærsta
ísinn í ísbúðinni með
öllu namminu sem hann
getur í sig látið. Kannski
vill bóndinn deila ísnum,
kannski ekki, aðeins tím-
inn mun leiða það í ljós.
Spotify lagalistar
Búðu til persónulegan
lagalista með öllum
rómantísku lögum sem
þér dettur í hug sem
tengjast makanum
þínum. Hugmyndir
að lögum á listann:
Still Crazy After
All These Ye-
ars með Paul
Simon, Ég
skal bíða þín
með Hauki
Morthens
og Sunday
Kind of
Love með Ettu
James.
Yfirráð yfir
fjarstýr-
ingunni
Stærsta
þrætuepli
heimil-
anna er
hvað á
að horfa
á í kvöld.
Leyfðu
bóndanum
að fá full yf-
irráð yfir fjar-
stýringunni í kvöld, sama
hversu leiðinlegt valið
er. Þú munt ekki sjá eft-
ir ákvörðuninni þegar
þú sérð glampa í augum
makans og stolt brosið
á vörunum þegar hann
velur uppáhalds kvik-
myndina sína loksins.
Spilakvöld
Spilið þið eitthvað skemmti-
legt saman og eins til
dæmis orðaleikinn
Scrabble og leyfðu
bóndanum að vinna
bara þennan eina dag
og hrósaðu honum fyr-
ir að vera alveg ótrúlega klár fyrir
að vinna. Allir fara kátir að sofa
með sigur dagsins.
Einkatón-
leikar
Nýttu
daginn og
æfðu þrjú lög
fyrir kvöldið og komdu
bóndanum á óvart
með einkatónleik-
um. Allar klósett-
pásur í vinnunni
geta nýst í það að
æfa sviðsframkom-
una og þylja upp
texta. Hafðu
generalprufu
í bílnum á
leiðinni heim úr
vinnunni til að
vera með allt
á hreinu fyrir
stóru tónleik-
ana.
„Konur verða að sýna samstöðu og lýsa van-
þóknun sinni á því að æðsti valdamaður Banda-
ríkjanna sé yfirlýst karlremba sem segist geta
gripið í píkurnar á þeim,“ segir Xárene Eskandar,
skipuleggjandi mótmælagöngu kvenna gegn
Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem haldin
verður í Reykjavík á laugardaginn. Samskonar
mótmæli eru skipulögð um heim allan.
Xárene Eskandar
er skipuleggjandi
mótmælagöng
kvenna gegn Donald
Trump. Mynd | Hari