Fréttatíminn - 20.01.2017, Qupperneq 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Samuel Abrams segir góðan árangur
finnskra skóla mega rekja til aðferða
þeirra við að innleiða þekkt við-
skiptamódel í ríkisrekna skóla:
Hækka laun kennara
Líkt og Henry Ford sagði þá kostar
minna að borga meira. Það þarf að
hækka laun kennara, til að ná há-
marksárangri, laða að hæfileikafólk
og halda í það.
Minnka stýringu utan frá
Skólum á ekki að vera stjórnað utan
frá, heldur á að setja meira vald
í hendur kennara og skólastjórn-
enda. Að mati Abrams þurfa allar
góðar stofnanir að virkja sinn eigin
mannauð.
Leggja niður próf
Sumir hafa sagt að það eigi að borga
fyrir árangur, en Abrams telur það
ekki vænlegt til árangurs. Hann
bendir á rök föður japanska bíla-
iðnaðarins W. Edward Deming, því
til stuðnings; að mæla kaup út frá
árangri virkar ekki því það býr til ótta
og dregur úr samstöðu, fyrirtækið
endar alltaf á því að tapa. Það sama á
við um próf, þau draga úr árangri og
hafa engin áhrif á getu nemenda.
Þrátt fyrir að koma úr frekar líkum þjóðfélögum, sem bæði hafa jafnrétti og velferð í fyrirrúmi, standa finnskir nemendur sig
mun betur en sænskir í PISA-prófunum. Um helmingur grunnskóla í Svíþjóð er einkarekinn en í Finnlandi eru skólar ríkisreknir.
Henry Ford.
sig best Norðurlandanna í lestri,
stærðfræði og vísindum (eðl-
is- og efnafræði). Abrams seg-
ir margt spila hér inn í. Í Finn-
landi, að ýmsu leyti ólíkt hinum
Norðurlöndunum, fái kennarar
góð laun, góða menntun og þjálf-
un, gott starfsumhverfi og njóti
almennt mikillar virðingar í sam-
félaginu. Í Finnlandi er því aldrei
skortur á kennurum, ólíkt hinum
Norðurlöndunum þar sem vant-
ar kennara, sérstaklega í vísinda-
greinum.
Fækkun nemenda í bekkjum,
bætt starfsumhverfi, menntun og
launahækkanir eru meðal aðgerða
sem Finnar hafa lagt áherslu á en
Abrams segir galdurinn ekki bara
liggja þar. Á meðan Svíar ákváðu
að fara þá leið að einkavæða skól-
ana fóru Finnar aðra leið. Þeir
hafa haldið í ríkisreknu skólana
en á sama tíma innleitt mjög hag-
kvæm viðskiptamódel í stefnu skól-
anna. Þetta er það sem Abrams
kallar finnsku þversögnina; gott
gengi finnskra skóla má rekja til
þess hversu vel þeim er stjórnað,
af innanhúsfólki sem er gjörkunn-
ugt eðli starfsins, og þannig hef-
ur þekkt módel úr viðskiptaheim-
inum verið í heiðri haft í stefnu
þeirra. Skólar eru ekki reknir af
einkaaðilum með hámarksgróða
í huga, heldur af ríkinu með há-
marksárangur skólanna, og þar
með nemendanna, í huga. Það
sem Ford tókst við færibandið hef-
ur Finnum tekist í skólunum, að
hámarka árangur með góðu og vel
menntuðu starfsfólki, hærri laun-
um og styttri vinnudegi. Þessi fyr-
irmynd úr viðskiptaheiminum sem
Finnar hafa stuðst við, felst í því
að auka skilvirkni skólastarfsins
með því að draga úr miðstýringu
og leggja áherslu á að nýta starfs-
fólk skólanna í botn. Þeir leggja
áherslu á að stýra skólunum inn-
an frá, af fólki sem hefur margra
ára reynslu af skólastarfi, en sækja
ekki sérfræðiþekkingu til verktaka-
eða stjórnunarfyrirtækja, líkt og
algengt er í Bandaríkjunum.
Engin próf umbreyta skólastarfi
En sú ákvörðun sem hefur haft
hvað mest áhrif á árangur skól-
anna, að mati Abrams, var að taka
próf algjörlega af dagskrá. Í stað
þess að láta alla nemendur taka
lokapróf leggja skólarnir kannanir
fyrir lítinn hluta nemenda. Þetta
þýðir að starfsfólk skólanna hef-
ur tíma til að sinna öðru en próf-
um, sem aftur veldur því að álag
á starfsfólk, og foreldra, er minna.
Og nemendur geta einbeitt sér að
því að læra í stað þess að undirbúa
prófatörn. Kannanir eru í hönd-
um aðila utan skólans og raska því
mikilvægasta starfi skólans sem
minnst, sjálfri kennslunni. Með
því að sleppa því að meta árang-
ur nemenda með prófum hverfur
hættan á því að kennslan snúist um
það eitt að meta árangur, og hætt-
an á því að fög sem ekki er prófað í
detti úr skólastarfinu hverfur. Fög
sem eiga oft undir högg að sækja
en sem Finnar telja alveg jafn mik-
ilvæg og önnur; myndlist, tónlist,
handverk og leikur, hafa ennþá
mikið vægi í finnskum skólum og
eru án efa enn einn hlekkurinn
í langri keðju af góðum árangri
Finna í PISA prófunum. Skólastarf-
ið hverfist ekki um góðar einkunn-
ir, líkt og í einkareknu umhverfi
þar sem allt snýst um að vera efstur
á lista eða sýna árangur, sam-
kvæmt umdeilanlegum einföldum
mælikvörðum.
Ísland neðst á lista
Í fyrirlestri sínum í HÍ benti Abrams
að lokum á að laun kennara og
árangur í PISA könnunum helst
í hendur; því betur sem kennur-
um er borgað því betri árangur
sýna nemendur í PISA könnun-
um. Bandaríkin og Noregur borga
kennurum 68% og 71% af meðal-
launum annara háskólamennt-
aðra og eru nemendur þaðan und-
ir PISA meðallagi (tölur frá 2012).
Finnland og Kanada borga kennur-
um hins vegar jafn mikið og meira
en meðallaun háskólamenntaðra
og er árangur nemenda þar langt
yfir meðallagi. Ísland er neðst á
þessum lista þar sem kennarar fá
greitt um 50% af meðaltali launa
háskólamenntaðra, árið 2015, og
árangur íslenskra nemenda í PISA
könnunum er langt undir með-
allagi. Að hækka laun í dag þýð-
ir þó ekki endilega að einkunnir
hækki á morgun því skólar eru, líkt
og áður var bent á, ekki matvara
heldur flókið fyrirbæri sem tekur
tíma að hlúa vel að. Í Finnlandi
og Kanada hafa kennarar feng-
ið laun yfir meðaltali annarra há-
skólamenntaðra í langan tíma sem
þýðir að kennarastéttin laðar til
sín gott starfsfólk. En sama hvern-
ig á dæmið er litið er eitt þó alveg
skýrt í huga Abrams. Það borgar
sig alltaf að borga kennurum vel
og það borgar sig alltaf að sleppa
prófum. En það borgar sig aldrei
að einkavæða skóla.
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
ÚTSALA
20.–31. JANÚAR
10–50%
afsláttur
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10–18 • LAUGARDAGA KL. 11–16 • FAXAFENI 10
Sólarferðir frá kr.
49.850
m/afslætti
Allt að
25.000 kr.
afsláttur á mann
Sumarið
2017 er komið
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
ga
á
s
lík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
ittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
20% afsláttur
af öllum vör m
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bl húsin F xafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 2-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
ittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur dagleg
most.c_tiska
o t.tisku ataverslun
JAKKI
ÁÐUR KR. 12.900
NÚNA KR. 6450