Fréttatíminn - 20.01.2017, Síða 30

Fréttatíminn - 20.01.2017, Síða 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017 50 kíló af marigold blómum sem ég skellti í sundlaugina við húsið,“ segir Áslaug sem eyddi svo afmælisdeginum, og nóttinni, í að synda á milli uppáhaldsblóma sinna. „Konurnar sem unnu í hús- inu hjálpuðu okkur að skreyta líka garðinn og svæðið umhverfis laugina með blómum og bjuggu til ávaxtatertu á mörgum hæðum og ávaxtakokteila úr drekaávöxtum. Þetta var algjört ávaxtagleðiblóma- flæði,“ segir Áslaug hlæjandi. Eldsnemma daginn eftir blóma- sundið, á upphafsdegi sjötta ára- tugarins, settist Áslaug upp á þak hússins, leit yfir blómadalinn, saup á ávaxtakokteil og hugsaði um það hversu heppin hún væri. „Allt í einu fannst mér allt svo frá- bært, og þetta var allt svo óvart. Ég passa mig alltaf á því að halda upp á mig af og til, og þess vegna var ég alls ekkert stressuð yfir þessum áfanga. Mér fannst ég ekki þurfa neitt og hafði engar væntingar né nokkurn áhuga á því að halda nokkra flugeldasýningu. Svo það var mjög óvænt gleði að synda og fagna með fólkinu á Norður-Balí.“ Eldsnemma daginn eftir blómasundið, á upphafsdegi sjötta áratugarins, settist Ás- laug upp á þak hússins, leit yfir blómadalinn, saup á ávaxtakokteil og hugsaði um það hversu heppin hún væri. Melónuspjót með marigold blómum og marigold blómaturni. Áslaug útbjó dekkhlaðið veisluborð þar sem ávextir og blóm voru í aðalhlutverki. Allir í húsinu og næstu nágrannar hjálpuðust að við að tína 50 kg af blómum og skreyta sundlaugina, garðinn og veisluborðið með einu af uppáhaldsblómi Áslaugar, morgunfrú (Marigold) Daginn byrjaði Áslaug á ávaxtakokteil. Afmælistertan var samsett úr öllu því ferskasta sem nánasta umhverfi hafði upp á að bjóða. Melónum, drekaávext- inum, vínberjum og blómum. Þórunn Birna fyllir laugina af blómum. Áslaug og Þórunn Birna eyddu nánast öllum deginum í að baða sig í blómahafinu. Í SKÍÐAFERÐINA Oakley bretta- og skíðagleraugu. Oakley bretta- og skíðahjálmar, margir litir, frá kr. 25.900.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.