Fréttatíminn - 20.01.2017, Qupperneq 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Flíkin sem
fylgir þér
Öll eigum við þessa einu flík sem fylgir manni gegnum flutninga
og tiltektir. Fréttatíminn fékk stílistann Ernu Bergmann til að deila
með lesendum hvaða flík hefur fylgt henni sem lengst.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@gmail.com
Ég fann ekki neinsstaðar hin fullkomnu ferm-ingarföt þannig að mamma bauðst til
að sauma handa mér ferm-
ingarkjólinn. Við þræddum
blöð og saumaverslanir og
ég fann fullkomið efni og úr
því saumuðum við mamma
kjólinn minn sem ég endaði
á því að vera í,“ segir Erna
Bergmann stílisti um kjólinn
sem hefur fylgt henni alla tíð
og fær aldrei að fjúka.
Erna hefur verið dugleg að
halda fatamarkaði gegnum tíð-
ina og losað sig við föt en þessi
kjóll fékk alltaf að eiga pláss
í skápnum. „Ég vann mikið í
fatabúðum og er stílisti þannig
það hefur alltaf fylgt mér mik-
ið að fötum en
þessi kjóll á sérstakan stað í
hjartanu á mér og ég mun eiga
hann að eilífu. Nú hef ég tamið
mér að kaupa færri vandaðar
flíkur í stað þess að fylla skáp-
inn af einhverju sem er jafnvel
fjöldaframleitt.“
„Ég fermdist árið 1996 sem
var hápunktur 10 áratugar-
ins. Ég keypti platform skó
og svona „næntís“ keðju
um hálsinn sem ég keypti í
17 tískuvöruversluninni, ég
gerði samning við mömmu
um að vera með kross um
hálsinn í athöfninni en
fékk að vera með keðjuna
í veislunni,“ segir Erna og
hlær. „Ég fann mér aldrei
nægilega flott föt fyrir
böll í gagnfræðaskóla svo
mamma bauðst alltaf til að
sauma með mér föt sem
ég hannaði. Þarna byrjaði
áhugi minn á hönnun og
stíliseringu en ég gerði mér
aldrei í hugarlund á þessum
tímapunkti að maður gæti
unnið við akkúrat þetta sem
ég vinn við nú í dag.“
Þessi kjóll á sérstakan
stað í hjarta mér
og ég mun eiga hann
að eilífu, segir Erna
Bergmann.
Erna í nýsaumuðum fermingarkjólnum.
Mynd | BIG
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VILNÍUS Í LITHÁEN
Vilníus er eins og margar aðrar borgir í
Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir
því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins
1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco.
Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í
gamla bænum og gamli byggingastíllinn
blasir hvarvetna við.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
frettatiminn.is
Bjóða í pólskt millistríðs matarboð
Pólsku vinkonurnar Sylwia
Olszewska og Katarzyna Maria
Sosnowska ætla að færa gesti
aftur til Varsjár á millistríðsár-
unum þarnæsta sunnudag og
bjóða upp á sex rétta kvöldverð.
Þá munu þær að opna pólska
pop-up veitingastaðinn Polka
Bistro í ellefta sinn. Enginn
pólskur veitingastaður er á
Íslandi þrátt fyrir að hér búi
um 15 þúsund Pólverjar.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Sylwia segir að mataræði Pólverja
sé nokkuð öðruvísi í dag miðað
við fjórða áratug seinustu aldar,
þó margt sé auðvitað sígilt. Hún
segist hafa lesið blaðagreinar frá
þessum tíma og þannig komist að
því hvaða réttir voru vinsælastir
á árunum fyrir seinni heimsstyrj-
öld. „Við viljum bjóða fólki upp á
hefðbundinn mat sem fólk borðaði
á þessum tíma. Við verðum með
þrjá kalda og tvo heita forrétti. Að-
alrétturinn er steikt svínakjöt, fyllt
með sveskjum og hvítlauk,“ segir
Sylwia.
Sylwia segir að þær haldi Polka
Bistro fyrst og fremst til gamans.
Hún segist hafa áhuga á að opna
pólskan veitingastað á Íslandi en
það sé hins vegar of dýrt til að
vera raunhæft. „Það er mjög skrýt-
ið að það sé ekki pólskur veitinga-
staður á Íslandi. Við eigum ekki
peninga til þess. Maður verður að
eiga nóg af peningum ef maður
ætlar að gera það almennilega. Svo
er ég líka í fullu starfi sem mark-
aðsfræðingur hjá Iceland Group,“
segir Sylwia.
Húsnæðið rúmar einungis fimm-
tíu manns og er því nauðsynlegt
að bóka borð fyrir fram. Sylwia
segir að hægt sé bóka borð með
því að senda skilaboð á Facebook-
-síðu Polka Bistro. Viðburðurinn
verður haldinn í Tungumálaskól-
anum við Borgartún 1 þarnæsta
sunnudag, 29. janúar, frá klukkan
14 til 19 og kostar 6.900 krónur.
Sylwia Olszewska og Katarzyna Maria
Sosnowska halda Polka Bistro í ellefta
sinn þarnæsta sunnudag.